Fréttablaðið - 04.09.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
LAUGARDAGUR
STÓRLEIKUR Í LAUGARDAL Ís-
lenska landsliðið í fótbolta mætir Búlgör-
um á Laugardalsvelli klukkan 16. Leikur-
inn er fyrsti leikur liðanna í undankeppni
heimsmeistarakeppninnar sem fer fram í
Þýskalandi árið 2006.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA SKÚRIR Einkum þó sunnan til.
Bjart með köflum fyrir austan. Lægir norð-
austan til síðdegis. Hiti 9-15 stig, hlýjast á
Austurlandi. Sjá síðu 6
4. september 2004 – 240. tölublað – 4. árgangur
LANDSSÍMINN KAUPIR Landssím-
inn hefur eignast réttinn á enska boltanum
og tryggt sér ítök í Skjá einum með kaupum
á eignarhaldsfélaginu Fjörgný. Sjá síðu 2
FIMMTÁN DAGAR Í VERKFALL
Kennarar lögðu fram formlega verkfalls-
boðun á fundi Ríkissáttasemjara í gær.
Fimmtán dagar eru í verkfall náist ekki
samningar. Sjá síðu 2
SAMIÐ UM LYFJAVERÐ Lyfjaverðs-
lækkun mun á þessu ári nema um 763
milljónum króna í heildsölu, sem svarar til
um 1.136 milljóna króna í smásölu. Sjá
síðu 4
AUKIN UMFERÐ Samkvæmt mælum
aka tæplega hundrað ökutæki á mínútu í
Ártúnsbrekku og á Kringlumýrarbraut þegar
mest lætur. Sjá síðu 6
59%74%
Kvikmyndir 38
Tónlist 39
Leikhús 39
Myndlist 39
Íþróttir 34
Sjónvarp 40
Jón Pétur og Kara:
● blanda geði við fólk og drífa það með
Fagna 15 ára afmæli
dansskóla
SÍÐA 20
▲
● bílar
Lét æskudraum
sinn rætast
Ólafur Gunnarsson:
● felur ekki sýndarveruleikann
Tekur þátt í dans-
festivali um helgina
Margrét Sara Guðjónsdóttir:
▲
SÍÐA 42
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sjónvarpsstöðvarnar keppast nú
við að kynna vetrardagskrána.
Nýir dagskrárliðir bætast við og
vinsælir þættir snúa aftur.
Við sjónvarpstækin:
VIÐSKIPTAUMHVERFI „Ef svigrúm fyrir-
tækja er þrengt með lagasetningu er
uppbyggingar- og þróunarstarf
þeirra í hættu. Forsenda langtíma-
áætlana er stöðugt starfsumhverfi.
Það er því ábyrgðarhluti að breyta
starfsskilyrðum fyrirtækja og skapa
þannig óvissu um forsendur rekstr-
ar.“ Þetta sagði Björgólfur Guð-
mundsson, formaður bankaráðs
Landsbankans, á málþingi Sambands
ungra sjálfstæðismanna í gærkvöldi.
Björgólfur sagði að starfsum-
hverfi íslenskra fyrirtækja þyrfti
helst að vera betra en í nágranna-
löndunum. Stjórnmálamenn væru
skyldugir að fylgjast með því að um-
hverfi atvinnulífs sé ætíð sam-
keppnishæft.
Þrátt fyrir aukið viðskiptafrelsi
og hagsæld á Íslandi teldu yfirvöld
að reisa þyrfti viðskiptalífinu skorð-
ur. „Því er haldið fram að krafturinn
í viðskiptalífinu og máttur einstakra
fyrirtæki ógni eða ögri samfélaginu
og því þurfi stjórnvöld að grípa í
taumana og stýra á ný með lagasetn-
ingu framvindu viðskipta. Atvinnu-
og viðskiptalífið ógnar hvorki
stjórnmálamönnum né samfélaginu.
Atvinnulífið líkt og stjórnmálin
þjónar fólkinu í landinu.“
Hann ræddi einnig um mikilvægi
frjálsra fjölmiðla í nútímasamfélag-
inu. „Ég hef meira álit á fjölmiðlum
sem reyna að endurspegla það sem
fram fer í samfélaginu fremur en að
stjórna því með fyrirmælum og föð-
urlegum áminningum. Mér hefur
komið verulega á óvart hvernig ein-
staka fjölmiðlar vilja skrifa stefnu-
skrár stjórnmálaflokka og segja þeim
fyrir um skoðanir.“ Aðspurður sagð-
ist Björgólfur eiga við Morgunblaðið.
„Lengst ganga fjölmiðlar sem hafa
blindast af fortíðarþrá og ögra nú
samfélaginu og eðlilegri þróun þess
með nær linnulausum ótta við breyt-
ingar. Þeir virðast sakna þeirra tíma
þegar íslenskt atvinnulíf var einangr-
að og lokað klíkusamfélag.“
sda@frettabladid.is
Ekki skapa óvissu
Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, segir að yfirvöld megi ekki reisa
viðskiptalífinu skorður. Hann gagnrýnir fjölmiðla sem hafi blindast af fortíðarþrá.
SÍÐUR 24 & 25
▲
Hugsjónakonan dr. Vilborg
Ísleifsdóttir-Bickel rekur
lýðháskóla fyrir fórnarlömb
nauðgana í stríðinu í Bosníu.
Perlur og tár í Bosníu:
SÍÐUR 28 & 29
▲ Komið í næstu verslun!
1200 frábærar spurningar i
Spilið
M
YN
D
/A
P
BESLAN, AP Gíslatökunni í Beslan í
Norður-Ossetíu lauk með ósköpum
eftir að sprengjur sprungu í íþrótta-
húsinu þar sem gíslunum var haldið
og bardagar brutust út milli hryðju-
verkamanna og hermanna sem
höfðu tekið sér stöðu í kringum
skólasvæðið. Meira en 200 manns
létu lífið og rúmlega 700 voru flutt-
ir særðir á sjúkrahús.
Morðin í gær byrjuðu um níu-
leytið að morgni að staðartíma með
því að hryðjuverkamennirnir tóku
tuttugu karlmenn úr gíslahópnum
af lífi. Upp úr hádegi jókst blóðbað-
ið svo þegar sprengingar heyrðust
um það leyti sem hjálparstarfsmenn
voru að sækja lík sem legið höfðu
fyrir framan skólann í tvo daga. Þá
reyndu 30 gíslar, konur og börn, að
flýja en gíslatökumenn skutu á þau.
Hermenn hófu þá skothríð á húsið
og réðust skömmu síðar til atlögu.
Sjá síðu 4
Rúmlega 200 létust og fleiri hundruð særðust:
Gíslatöku lauk með blóðbaði
Schwarzenegger:
Kolféll á
söguprófi
VÍN, AP Austurrískir sagnfræðing-
ar eru allt annað en ánægðir með
þá vafasömu sagnfræði sem
Arnold Schwarzenegger fór með í
ræðu sinni á
flokksþingi
repúblikana.
Í ræðu sinni
s a g ð i s t
S c h w a r z -
enegger hafa
séð sovéska
skriðdreka á
götum heima-
bæjar síns í
æsku og
kvaðst hafa
yfirgefið sós-
íalískt land
þegar hann
flutti frá
Austurríki 1968.
Staðreyndin er sú að heimabær
hans var hernuminn af Bretum en
ekki Sovétmönnum þegar
Schwarzenegger fæddist árið
1947 og að allir kanslarar Austur-
ríkis frá stríðslokum til 1970 voru
íhaldsmenn, en að vísu í sam-
steypustjórn með jafnaðarmönn-
um. ■
ARNOLD
SCHWARZENEGGER
Austurríski ríkisstjórinn í
Kaliforníu virtist illa að
sér í sögu föðurlands
síns.
SÆRT BARN BORIÐ Á BROTT
Þegar þriggja sólarhringa martröð lauk lágu á þriðja hundrað manns í valnum og fleiri hundruð einstaklingar höfðu verið fluttir á sjúkra-
hús, margir mjög alvarlega meiddir.