Fréttablaðið - 07.09.2004, Síða 6
6 7. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Lithái með kókaín í meltingarvegi:
Varðhald framlengt um mánuð
DÓMSMÁL Gæsluvarðhald yfir
Litháa sem tekinn var sunnudag-
inn 29. ágúst í flugstöð Leifs
Eiríkssonar með 300 grömm af
kókaíni innvortis hefur verið
framlengt til 4. október.
Hjá Sýslumannsembættinu á
Keflavíkurflugvelli fengust þær
upplýsingar að rannsókn málsins
stæði yfir og að ekki yrðu gefnar
upplýsingar um gang hennar að
sinni. „Við fengum gæsluvarð-
haldið framlengt og höldum rann-
sókninni áfram,“ sagði Eyjólfur
Ágúst Kristjánsson, deildarlög-
fræðingur hjá Sýslumanninum á
Keflavíkurflugvelli.
Heimildir blaðsins herma hins
vegar að málið sé meðal annars
rannsakað með tilliti til tengsla
við líkfundarmálið í Neskaupstað
í febrúar síðastliðnum. Málin eru
mjög áþekk, mennirnir á svipuð-
um aldri og báðir frá Vilnius í
Litháen. Þá er í báðum tilvikum
um að ræða mikið magn eiturlyfja
sem smyglað er í meltingarvegi í
vandlega frágengnum pakkning-
um. ■
Fleiri börn deyja í
stríði en hermenn
Tvær milljónir barna létu lífið í stríði á undanförnum áratug. Fleiri börn hafa látist en hermenn.
Fimm milljónir barna hlutu varanlega fötlun og tólf milljónir barna urðu heimilislaus.
HJÁLPARSTARF Hin hörmulegu morð
á börnunum í barnaskólanum í
Beslan í Suður-Rússlandi hafa
beint athygli heimsins að ömur-
legu hlutskipti fjöldamargra barna
í hernaði og stríðsátökum í heimin-
um. Samkvæmt tölum frá Barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna, UN-
ICEF, dóu tvær milljónir saklausra
barna í stríði á undanförnum ára-
tug. Létu fleiri börn en hermenn
lífið. Þrefalt fleiri börn, eða sex
milljónir, hafa slasast alvarlega
eða hlotið varanlega fötlun af völd-
um stríða og búa við vonlausa
framtíð vegna þess.
„Sem betur fer er það sjaldgæft
þótt það sé því miður ekki einstakt
að hernaður beinist beinlínis að
börnum í hryðjuverkum líkt og
gerðist í Baslan,“ segir Þórir
Guðmundsson, upplýsingafulltrúi
Rauða krossins. „Börn verða fórn-
arlömb stríða á ýmsan annan hátt.
Þegar stríðsástand er við lýði
stoppar það oft bólusetningar-
herferðir, vatn mengast og öll sam-
félagsleg þjónusta fellur niður.
Börn eru berskjaldaðri en full-
orðnir fyrir slíku og láta börn lífið
á hverjum degi af völdum stríðs á
óbeinan hátt,“ segir Þórir.
Fimm milljónir barna hafa hlot-
ið varanlega fötlun vegna stríðsá-
taka, tólf milljónir eru heimilislaus
og ein milljón barna er munaðar-
laus. „Börn verða oft viðskila við
foreldra sína í stríði. Það er dag-
legt brauð að Rauði krossinn reyni
að koma börnum í fóstur til
ættingja,“ segir Þórir.
Talið er að 300 þúsund barna
séu nýtt í stríðsátökum víðs vegar
um heiminn. Þau eru notuð sem
hermenn, sendiboðar, eldabuskur
eða til vændis.
„Börn verða á mjög margan
hátt fyrir barðinu á ofbeldi. Um
300 þúsund börn eru notuð sem
hermenn. Þeim er rænt þegar þau
eru mjög ung, oft um sex ára. Svo
eru þau alin upp til að vera sam-
viskulausar drápsvélar. Það eru
dæmi um þetta í Sierra Leone og
Líberíu. Eitt af verkefnum Rauða
krossins er að endurhæfa slík börn
og koma þeim inn í samfélagið
aftur. Það er langt frá því auðvelt
verk því mörg þessara barna hafa
orðið vitni og tekið þátt í miklum
hörmungum,“ segir Þórir.
Tíu þúsund börn deyja árlega
eða missa útlim vegna sprengja
þrátt fyrir að samþykkt hafi verið
bann gegn framleiðslu og notkun
jarðsprengja. „Það veit enginn
hversu margar jarðsprengjur eru
til í heiminum en giskað hefur
verið á 100 milljónir. Þeim er oft
komið fyrir þar sem börn eru
mikið á ferð, til að mynda nálægt
vatnsbólum og verða börn því oft
fórnarlömb þeirra,“ segir Þórir.
sda@frettabladid.is
Innskráning í flug:
Skrá sig
úr farsíma
FINNLAND, AP Viðskiptavinir
finnska flugfélagsins Finnair
geta frá og með næsta mánuði
skráð sig inn í flug með því einu
að senda smáskilaboð úr far-
síma. Flugfélagið býður þeim
farþegum sem fljúga oft upp á
þjónustuna en takmarkar hana
við það að þeir séu aðeins með
handfarangur.
Það eina sem farþeginn þarf að
gera er að senda tvenn smáskilaboð.
Annars vegar um að hann sé á
leiðinni og síðan staðfestingu þegar
hann hefur fengið allar upplýsingar,
svo sem um sætisnúmer og hlið, í
smáskilaboðum. ■
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað hét fellibylurinn sem gekk yfirFlórída um helgina?
2Hver er formaður einkavæðingar-nefndar?
3Hversu margir gestir komu á Þjóð-minjasafnið um helgina?
Svörin eru á bls. 38
Atvinnuhermenn:
Stríða við
offituvanda
ÍSRAEL, AP Holdafar ísraelskra
hermanna veldur yfirmönnum
þeirra áhyggjum en nú er svo kom-
ið að meira en helmingur
hermannanna eru feitari en góðu
hófi gegnir.
„Atvinnuher-
mennirnir okkar
eru í slæmu
formi,“ sagði Dorit
Tekes majór, sem
hefur yfirumsjón
með prófunum á
heilsufari ísrael-
skra hermanna.
„Offita er ekki
vandamál, heldur
sjúkdómur,“ sagði
Tekes og bætti við:
„Þetta er kannski sjúkdómur sem
er gaman að verða fyrir, þar sem
það felur í sér að borða mikið af
súkkulaði og öðrum fitandi mat, en
offita er samt sjúkdómur í allri
merkingu þess orðs.“ ■
Kajakleiðangur blindra:
Norðurljós í
fyrsta sinn
GRÆNLAND Nú eru aðeins sjö róðrar-
dagar eftir hjá fjórmenningunum í
kajakleiðangri Blindrafélagsins
niður með austurströnd Grænlands.
Fjórmenningarnir eru nú á erfið-
asta hluta leiðarinnar, og róa í 3ja
stiga hita og miklum ís.
Blindrafélagið hefur látið opna
símanúmer sem hægt er að hringja
í og leggja þannig sitt af mörkum til
stuðnings leiðangrinum. Númerið
er 902 5100, og við það að hringja í
það dragast 1000 krónur af sím-
reikningi viðkomandi.
Margt hefur á daga leiðangurs-
manna drifið. M.a. sá einn leiðang-
ursmanna, með einungis 10% sjón,
norðurljósin í fyrsta skipti. ■
SÆRÐ BÖRN Í RÚSSLANDI
Samkvæmt tölum frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, dóu tvær milljónir saklausra barna í stríði á undanförnum áratug. Fleiri
börn en hermenn létu lífið.
FEITUR HER-
MAÐUR
Um 57 prósent
hermanna eru of
þungir og margir
allt of þungir.
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR
Gæsluvarðhald yfir Litháa sem gripinn var í
Leifsstöð fyrir rúmri viku með kókaín inn-
vortis hefur verið framlengt um mánuð.