Fréttablaðið - 07.09.2004, Page 22

Fréttablaðið - 07.09.2004, Page 22
Morgunmatur er ein mikilvægasta máltíð dagsins og gott að hafa fjölbreytnina að leiðarljósi í vali á matseðlinum. Prófaðu til dæmis hreina jógúrt með múslí og hunangi - það er holl- ur og góður morgunmatur í dagsins önn. Mikið úrval af fallegum og vönduðum fatnaði. Glæsileg föt fyrir konur í öllum stærðum eða 36 - 58 og barnaföt fyrir 4 - 14 ára. Bjóðum upp á heimakynningar - hringdu og bókaðu kynningu ! Nýju dönsku haust vörurnar frá ClaMal komnar í verslun NÝJU CLAMAL OG FREEMANS LISTARNIR KOMNIR ÚT STÓRAR STÆRÐIR Opið frá 10 - 18 virka daga Laugardaga frá 11 - 15 ClaMal og Freemans Reykjavíkurvegi 66 220 Hafnarfjörður - s: 565 3900 YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, s. 5885711 og 6946103 YOGA YOGA YOGA Líkamsæfingar, öndunaræfingar slökun og hugleiðsla Sértímar fyrir barnshafandi Allir yoga unnendur velkomnir. Er maginn vandamál? Stress, þreyta og sérstakur matur getur sett magann úr jafnvaægi. Óþægindi lýsa sér oft sem nábítur, brjóstsviði, vindgangur, harðlífi og niðurgangur. Þetta þykir öllum afar óþægilegt og líður þá illa í öllum líkamanum. Silicol fæst í apótekum Námskeið í svæðameðferð Á námskeiðinu lærir þú grunnþekkingu og aðferðafræði í svæðameðferð. Námskeiðið verður haldið á Hótel Keflavík Konur: 20.09.04 og 06.12.04 Menn: 21.09.04 og 07.12.04 Skráning á námskeið í síma 421 6158 eftir kl 19.00 Birgitta Jónsdóttir Klasen, nátturulæknir Ódýr hreyfing: Líkamsrækt fyrir alla Margir bera því við að þeir hafi ekki efni á því að fara í líkamsrækt og nota fjárhaginn sem afsökun fyrir að hanga eins og kartöflupokar fyrir framan sjón- varpið. En það er svo sannarlega hægt að rækta líkamann ódýrt og hér eru nokkrar aðferðir til þess: 1. Gakktu eða hjól- aðu í vinnuna. Ef vegalengdirnar eru ekkert mjög langar ertu alveg jafn lengi á leiðinni og að bakka út úr stæði, bíða á ljósum og finna bílastæði. 2. Taktu til hjá öllum sem þú þekkir. Allsherjartiltekt reynir á alla vöðva og eykur þrek og þol. Gott er að setja góða tónlist á og sveifla ryksugunni í takt. 3. Labbaðu heim úr kjörbúðinni með þungu pokana. Passaðu að raða þannig í þá að þeir séu jafnþungir svo að það komi ekki slagsíða á þig eins og galeiðuþrælana sem reru alltaf öðru megin. 4. Farðu í sund. Kostar ekki nema 165 krónur skipt- ið ef þú ert með tíu tíma kort og sápan í sturtun- um er ókeypis. 5. Gerðu æfingar á meðan þú talar í símann eða horfir á sjónvarpið. Magaæfingar er gott að gera yfir frétt- unum, þegar það er kannski mikil- vægara að heyra það sem er að gerast en að sjá það, og svo er hægt að lyfta mjólkurlítrum eða niðursuðudósum með hendinni sem heldur ekki á sím- tólinu. 6. Fiktaðu og vertu á stöðugu iði. Það segir sig sjálft og rannsóknir hafa sýnt að fólk sem er á iði brennir fleiri hitaeiningum yfir daginn en þeir sem sitja kyrrir. 7. Fáðu lánað barn og leiktu við það í klukkutíma. Foreldrar eru kannski ekkert endilega í betra formi en aðrir en það er af því að þeir leika sér ekki við börnin sín. Það er ótrúlega orkufrekt að leika við lítil börn, elta þau, skríða um og vera á stöðugri hreyfingu. 8. Farðu að versla. Í Kringluna, Smáralind eða á Lauga- veginn og farðu inn í hverja einustu búð. Ekki kaupa neitt, í þetta sinn er það göngutúrinn sem er málið. 9. Stundaðu kynlíf. Holl og góð hreyfing og getur verið mjög ódýr ... „Pilates þéttir og lengir vöðva líkamans, en æfingarnar felast í að styrkja og teygja líkamann undir algjörri stjórnun, þannig að hugur fylgi hverri æfingu og fólk hvíli líkamann meðan það æfir,“ segir Jóhann Björgvins- son, löggiltur pilateskennari. „Ég er að kenna þessa hreinu pilates- tækni, en ég lærði hjá konu í New York sem er eini eftirlifandi kennarinn sem lærði hjá Joseph Hubertus Pilates sjálfum. Kerfið þróaði Pilates þegar hann vann í fyrri heimsstyrjöld- inni við að koma sjúkum her- mönnum aftur til heilsu, en hann helgaði líf sitt þessu kerfi þar til hann lést 87 ára að aldri. Ég er með tvenns konar æfingar, annars vegar einkatíma þar sem er kennt í sérhönnuðum tækjum og hins vegar hóptíma þar sem er kennt á dýnum. Í hóptímunum eru aldrei fleiri en tíu nemendur og mikið aðhald. Æfingarnar krefjast mikillar einbeitingar og ég er alltaf að laga fólk til á dýn- unum því aðalatriðið er að gera æfingarnar rétt, vernda bakið og stuðla að réttri líkamsstöðu. Þetta er fullkomið æfingakerfi og læknar eru farnir að viður- kenna það sem bestu þjálfun sem hægt er að hugsa sér. Í Banda- ríkjunum er þetta meira að segja orðið skyldugrein í skólum,“ segir Jóhann. Námskeið Jóhanns í pilates eru hafin, en kennt er í Sundlaug Seltjarnarness. edda@frettabladid.is Pilates þéttir og lengir vöðva líkamans og er ýmist stundað í einkatímum eða hámark 10 manna hóptímum. Pilates-æfingakerfið: Krefst einbeitingar og aðhalds

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.