Fréttablaðið - 07.09.2004, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 07.09.2004, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 7. september 2004 25 Mál og menning hefur gefið út bókina Örlögleysi eftir Nóbelsverðlaunahafann Imré Kertész í þýðingu Hjalta Kristgeirs- sonar. Í Búdapest árið 1944 er fjórtán ára gyðingur, György Köves, rekinn út úr strætisvagni af lögreglumanni. Saklaus drengurinn skilur engan veginn hvers vegna. Hann er færður um borð í lest ásamt þúsundum annarra gyðinga og það er ekki fyrr en lokunni er slegið frá l e s ta r vagn - inum á á f a n g a s t a ð og farþegarn- ir reknir út sem drengur- inn skilur hvað um er að vera: Orðrómurinn um dauða- b ú ð i r n a r , sem lítt hafði snert hann fram að því, reynist sann- ur. Örlögleysi er fyrsta skáldverk Imré Kertész sem kemur út á íslensku og er jafnan talin hans höfuðverk. Hann hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2002, ekki síst fyrir þessa sögu. Imre Kertész fæddist í Búdapest 1929 og er af gyðingaættum. Hann lifði sjálfur af vist í Auschwitz 1944-45 og sú reynsla hefur mótað allt hans höfundar- verk. Hann starfaði í fyrstu við blaða- mennsku en hóf síðar feril sem rithöf- undur og mikilvirkur þýðandi. NÝJAR BÆKUR „Á námskeiðinu verður leitast við að svara ýmsum áleitnum spurn- ingum varðandi landnám Íslend- inga í Ameríku,“ segir Jónas Þór sagnfræðingur, en hann hefur um- sjón með átta vikna námskeiði sem hefst í dag og fjallar um land- námssögu Íslendinga í Vestur- heimi. Það er Þjóðræknisfélag Íslendinga sem stendur fyrir námskeiðinu sem er þannig upp- byggt að þátttakendur ferðast í kjölfar fyrstu vesturfaranna til Ameríku og reyna að setja sig í spor þeirra og fylgjast með fram- vindunni. „Það verður svo tekið á móti hverjum hópnum frá Íslandi á fætur öðrum og þeim fylgt á ný- lendusvæðin sem valin eru hverju sinni,“ segir Jónas en svonefnt vesturfaratímabil stóð frá 1870 til 1914 og á þessum árum fóru um fimmtán þúsund Íslendingar vestur. „Hvað réði staðarvali og hvernig tókst til? Hvers vegna lukkaðist landnámið betur fyrsta áratuginn í Bandaríkjunum en Kanada? Af hverju voru vestur- fararnir svo iðulega ósammála um staðarval? Hverjar voru helstu fylkingarnar og hverjir leiðtogar? Hvernig töldu vestur- farar íslenskri arfleifð best borgið í Ameríku? Af hverju telja þekktir kanadískir sagnfræðingar Íslendinga hafa verið góða inn- flytjendur? Þessar spurningar eru á meðal þeirra sem leitast verður við að svara á námskeið- inu.“ Þeir sem vilja svo fara alla leið geta slegist með í ferð sem farin verður næsta sumar á veg- um ÞFÍ á slóðir vesturfara í Bandaríkjunum og Kanada. Námskeiðið er haldið í Gerðu- bergi í Reykjavík á þriðjudags- kvöldum kl. 7.30 ñ21.30 og hefst í dag. ■ JÓNAS ÞÓR: BÝÐUR FÓLKI AÐ FYLGJA VESTURFÖRUM EFTIR Á ÁTTA VIKNA NÁMSKEIÐI. Í kjölfar vesturfara JÓNAS ÞÓR Hefur tekið saman landnámssögu Íslendinga í Vesturheimi á tímabilinu 1856-1908 í bókinni Icelanders in North America: The First Settlers sem University of Manitoba Press í Winnipeg í Kanada gefur út. Hann mun næstu átta vikurnar deila sér- þekkingu sinni með áhugasömum á námskeiði um landám Íslendinga í vestri. AFMÆLI Guðrún Helgadóttir rithöfund- ur er 69 ára. Þorbjörn Jensson, fyrrv. lands- liðsþjálfari í handbolta, er 51 árs. ANDLÁT Jóhann Valdemarsson, frá Möðruvöll- um í Eyjafirði, lést 3. september. Dóra Guðbjartsdóttir, Aragötu 13, lést 3. september. JARÐARFARIR 13.30 Sigrún Skarphéðinsdóttir, Stóra- gerði 5, verður jarðsungin frá Frí- kirkjunni. 13.30 Guðjón Loftsson, Bjarkarbraut 7, Dalvík, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju. 13.30 Elín Sigríður Jakobsdóttir, síðast til heimilis í Hraunbæ 103, Reykja- vík, verður jarðsungin frá Árbæjar- kirkju. 13.30 Gunnar G. Schram, prófessor, Frostaskjóli 5, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík. 13.30 Halldóra Kristinsdóttir, áður Stór- holti 31, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu. 13.30 Elísabet F. Kristófersdóttir, Dal- braut 20, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Laugarneskirkju. 15.00 Hansína Margrét Bjarnadóttir, frá Suður-Reykjum, Mosfellssveit, verður jarðsungin frá Lágafells- kirkju.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.