Fréttablaðið - 08.09.2004, Blaðsíða 28
20 8. september 2004 MIÐVIKUDAGUR
Við mælum með ...
... að KA-menn í handboltanum dragi hinn gamalkunna, pípureykjandi markvörð, Magnús Gauta Gautason, á flot á nýjan
leik. Þessi viðkunnalegi, fyrrverandi kaupfélagsstjóri KEA, sem var upp á sitt besta í kringum 1980, myndi ekki standa sig
verr en núverandi markmenn liðsins sem hafa fengið 77 mörk á sig í síðustu tveim leikjum. Svo skemmtilega vill til að
Magnús Gauti er gjaldkeri handknattleiksdeildar KA þannig að það eru hæg heimatökin að gera samning við kappann sem
er vart með háar launakröfur enda þarf hann að halda öllum kostnaði niðri hjá deildinni.sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
5 6 7 8 9 10 11
Miðvikudagur
SEPTEMBER
Vissir þú að ...
... það eru liðin meira en tólf ár síðan
Hörður Magnússon tryggði íslenska lands
liðinu sinn eina sigur í Ungverjalandi.
Ísland vann leikinn 2–1 með mörkum frá
Herði og Þorvaldi Örlygssyni
HANDBOLTI Haukar eru meistarar
meistaranna en þá nafnbót trygg -
ðu þeir sér í gærkvöld með örugg-
um og sanngjörnum sigri á KA,
42-31. Þetta er annar sigur Hauka
á KA á aðeins þremur dögum en á
sunnudagskvöld mættust þessi lið
í úrslitaleik Reykjavík Open og þá
var nákvæmlega það sama uppi á
teningnum - Haukar miklu betri.
KA-menn hófu leikinn þó af
miklum krafti og Haukarnir virt-
ust einfaldlega ekki mættir.
Smám saman komust Íslands-
meistararnir inn í leikinn en þeir
komust ekki yfir fyrr en fimm
mínútur voru eftir af fyrri hálf-
leik. Strax í byrjun síðari hálf-
leiks var ljóst hvert stefndi - al-
veg sama hvað norðanmenn reyn-
du þá voru Haukarnir alltaf skref-
inu á undan og það reyndar frekar
stóru skrefi. Þeir juku muninn
jafnt og þétt og þegar upp var
staðið var hann orðinn ellefu
mörk.
Þórir Ólafsson fór hamförum
og það er virkilega gaman að
fylgjast með þessum strák. Vignir
Svavarsson er alltaf að verða
sterkari og sterkari og þá sýndu
Halldór Ingólfsson og Jón Karl
Björnsson gamalkunna takta. Það
segir sitt um styrk Haukanna að
Ásgeir Örn Hallgrímsson þurfti
lítið sem ekkert að beita sér og
hann hafði þetta að segja eftir
leik:
„Þetta var góður sigur og
alltaf gaman að hampa bikar en
það er þó ýmislegt sem við þurf-
um að laga í leik okkar fyrir Evr-
ópukeppnina sem byrjar um
næstu helgi. Við höfum misst
nokkra sterka leikmenn sem
skildu stórt skarð eftir sig í vörn-
inni en það er nokkuð sem við
erum að vinna í á fullu. Annars
eru menn bara bjartsýnir hér á
Ásvöllum og það er engin spurn-
ing að við stefnum á alla titla
sem í boði eru,“ sagði Ásgeir Örn
Hallgrímsson.
Hjá KA voru þeir Jónatan
Magnússon og Hörður Fannar
Sigþórsson atkvæðamestir.
sms@frettabladid.is
VIGNIR LYFTI BIKARNUM Vignir Svavars-
son hefur tekið við fyrirliðabandinu hjá
Haukum og hér lyftir hann bikar fyrir sigur í
meistarakeppni HSÍ. Fréttablaðið/Stefán
Haukar meistarar meistaranna
Íslandsmeistarar Hauka unnu 11 marka sigur, 42–31, á bikarmeisturum KA á Ásvöllum í gær
í meistarakeppni HSÍ í karlaflokki. Þórir Ólafsson skoraði 12 mörk fyrir Haukaliðið.
■ ■ LEIKIR
19.00 Haukar og Njarðvík mætast
í Grindavík í Reykjanesmótinu í
körfubolta.
21.00 Grindavík og Keflavík
mætast í Grindavík í
Reykjanesmótinu í körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
18.00 US PGA-mótaröðin á Sýn.
Umfjöllum um Buick-golfmótið.
19.00 Ungverjaland-Ísland á Sýn.
Bein útsending frá landsleik
þjóðanna í undankeppni HM.
21.00 Pólland-England á Sýn.
Útsending frá landsleik þjóðanna
í undankeppni HM.
23.00 Olíssport á Sýn. Íþróttafréttir
dagsins bæði heima og erlendis.
00.10 Ungverjaland-Ísland á Sýn.
Endursýning frá landsleik þjóðan-
na í undankeppni HM sem fram
fór fyrr um kvöldið.
Kári Kort,
sölufulltrúi
GAGNHEIÐI 55, SELFOSSI - VERÐ 10,5 millj.
• Nýtt húsnæði
• Laust v/ kaupsamning
• Skilist fokhelt
Til sölu 148,7fm Iðnaðarhúsnæði - Góð aðkoma
Hús Verslunarinnar, Kringlan 7, 103 Reykjavík, S: 534 4400
• Innkeyrsluhurð 4m hæð
rafdrifin
• Bílaplan grófjafnað
• Skilalýsing á skrifstofu
S. 892-2506
Logi Ólafsson annar íslensku landsliðsþjálfaranna:.
Góð samviska mikilvæg
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu mætir því ungverska
í dag í Búdapest í forkeppni heims-
meistaramótsins. Leikurinn er
mikilvægur fyrir íslenska liðið
sem byrjaði mótið illa, með 3-1
tapi gegn Búlgörum heima.
Logi Ólafsson, annar þjálfara
íslenska liðsins, segir það mikil-
vægt að strákarnir taki sig saman
í andlitinu og geri betur en þeir
gerðu gegn Búlgörum. „Í leiknum
gegn Búlgörum komumst við
aldrei í þann takt sem við þurftum
til að ná góðum leik. Við verðum að
segja Búlgörum það til hróss að
þeir héldu boltanum vel innan liðs-
ins og voru snöggir að losa hann
því þeir vissu að við værum
grimmir í návígjum. Það er kann-
ski tímanna tákn að Búlgarar
breyta leikskipulagi sínu gegn
okkur, kerfi sem þeir spiluðu
ágætlega gegn Írum fyrir skömm-
u. Þeir lögðu leikinn upp út frá
okkar leikstíl og okkar mönnum.
Það er kannski nýlunda fyrir okk-
ur,“ segir Logi.
Logi segir Ungverja leika sama
leikstíl og íslenska liðið og því sé
nauðsynlegt að vera sterkir í stöð-
unni maður gegn manni. Upplegg-
ið okkar fyrir leikinn er hreint og
beint að spila mun betri vörn en
við gerðum gegn Búlgörum. Til
þess að við höfum möguleika á
sigri í svona keppni verðum við að
spila mjög sterka vörn og halda
markinu hreinu. Við erum það góð-
ir í að koma okkur fram völlinn
þegar við vinnum boltann og búa
til hraðar sóknir og við verðum að
styrkja okkur enn frekar í því,“
segir Logi.
Rúnar Kristinsson, Pétur
Hafliði Marteinsson og Brynjar
Björn Gunnarsson verða fjarri
góðu gamni í leiknum í dag. Rúnar
og Pétur eru meiddir en Brynjar
Björn í banni eftir að hafa fengið
að líta rauða spjaldið gegn Búlgör-
um. „Við höfum góða menn og það
kemur maður í manns stað. Það
hefði getað verið gott að byggja
ofan á liðið sem mætti Ítölum en
því er ekki til að dreifa og við not-
um þá menn sem við höfum. Það
eru kannski svolítið öðruvísi leik-
menn en á margan hátt öflugir,“
segir Logi.
Logi segir mikilvægt að ná góð-
um úrslitum úr leiknum í dag.
„Það er fyrst og fremst mikilvægt
fyrir okkur að koma með góða
samvisku út úr leiknum þannig að
við höfum gert það sem í okkar
valdi stendur til að ná góðum úr-
slitum. Góð úrslit eru mjög nauð-
synleg fyrir okkur.“
kristjan@frettabladid.is
LOGI LANDSLIÐSÞJÁLFARI Logi Ólafsson segir góð úrslit algjörlega nauðsynleg.
HAUKAR–KA 42–31 (17–15)
Haukar Mörk/víti-Skot/víti (hrað.u.hl.)
Þórir Ólafsson 12/2-17/2 (4)
Vignir Svavarsson 8-9 (2)
Jón Karl Björnsson 7/2-8/2 (1)
Halldór Ingólfsson 5-8 (0)
Andri Stefan 5-12 (2)
Vigfús Gunnarsson 2/1-3/1 (0)
Pétur Þorláksson 1-2 (1)
Gísli Jón Þórisson 1-2 (0)
Ásgeir Örn Hallgrímsson 1-3 (1)
Markverðir Varin/víti-Skot (hlutfall)
Birkir Ívar Guðmundsson 8-27 (30%)
Jónas Stefánsson 11-21/1 (52%)
Björn Viðar Björnsson 0-2 (0%)
KA Mörk/víti-Skot/víti (hrað.u.hl.)
Hörður Fannar Sigþórsson 7-10 (1)
Jónatan Þór Magnússon 7-12 (0)
Andri Snær Stefánsson 5-7 (3)
Michael Bladt 5-9 (1)
Halldór Jóhann Sigfússon 4/1-5/1 (0)
Bjartur Máni Sigurðsson 2-2 (0)
Magnús Stefánsson 1-3 (0)
Ragnar Njálsson 0-1 (0)
Haukur Steindórsson 0-1 (0)
Markverðir Varin/víti-Skot (hlutfall)
Hafþór Einarsson 9-35/4 (26%)
Stefán Guðnason 6-22/1 (27%)
TÖLFRÆÐIN
Vítanýting (fiskuð): 5 af 5, 100% (Vignir
2, Pétur Magnússon, Jón Karl, Andri) – 1
af 1, 100% (Magnús).
Hraðaupphlaupsmörk: 11–5.
Brottvísanir (í mín): 6–18 (Jónatan rautt
spjald 53. mín.).
Sigurmarkið á 90. mínútu
Íslenska U-21 árs liðið í knattspyrnu
tapaði í gær fyrir Ungverjum í undan-
keppni Evrópumótsins. Íslenska liðið
stóð sig frábærlega en það lék einum
færra drjúgan hluta leiksins. Ungverjarn-
ir skoruðu þegar fimm sekúndur voru
eftir af venjulegum leiktíma og þrátt fyr-
ir hetjulega baráttu náðu strákarnir okk-
ar ekki að jafna. Það var vitað fyrir leik
að það yrði á brattann að sækja fyrir ís-
lenska liðið í gær enda höfðu tíu leik-
menn átt við magakveisu að stríða og
voru varla búnir að jafna sig áður en
flautað var til leiks. Vegna veikindanna
náði liðið aðeins að æfa einu sinni í
Ungverjalandi og það munar um
minna. Ungverjarnir byrjuðu leikinn bet-
ur en náðu ekki að skapa sér nein telj-
andi færi. Íslenska liðið varð síðan fyrir
áfalli þegar Gunnar Þór Gunnarsson var
rekinn af velli þegar hann fékk að líta
sitt annað gula spjald á stuttum tíma.
Íslensku strákarnir gáfust síður en svo
upp heldur þjöppuðu sér saman og
börðust af krafti. Þeir náðu að skapa sér
nokkur færi en tókst ekki að nýta þau
sem skildi. Ungverjarnir misstu mann út
af þegar um 60 mínútur voru liðnar en
það breytti litlu. Þegar skammt var til
leiksloka virtust flestir vera búnir að
sætta sig við markalaust jafntefli. Ung-
verjarnir komust hins vegar í sókn og á
klaufalegan hátt rann boltinn framhjá
vörninni og Bjarna Þórði í markinu.
Fimm sekúndur eftir og staðan orðinn
1-0. Íslensku strákarnir gáfust sem fyrr
ekki upp heldur reyndu hvað þeir gátu
að sækja en því miður gafst ekki nægur
tími til að skora. Davíð Þór Viðarsson
var bestur íslensku leikmanna í gær
sem og öll aftasta varnarlína og Bjarni
Þórður í markinu. Ljóst var að nokkrir
leikmenn voru þreyttir eftir magakveis-
una en þeir börðust þó eins og ljón og
voru óheppni að tapa leiknum.
DAVÍÐ ÞÓR BESTUR Davíð Þór Viðars-
son lék best í gær. Hér fær hann harðar
móttökur. Fréttablaðið/Kristján