Fréttablaðið - 12.09.2004, Blaðsíða 10
„Mig langar að kanna hvort ekki
sé hægt að nota fiska meira í
þessar tilraunir, frekar en mýsn-
ar,“ segir Pétur Henry Petersen
líffræðingur, sem nýverið hlaut
tveggja ára styrk frá EMBO,
samtökum evrópskra sameinda-
líffræðinga.
Pétur hefur meðal annars
rannsakað hlutverk ákveðinna
gena í tilurð taugakerfisins.
Hann lauk nýverið doktorsprófi
frá Yale-háskóla í Bandaríkjun-
um, en hyggst nota styrkinn til
þess að stunda rannsóknir í Nor-
egi næstu tvö árin.
„Við höfum aðallega áhuga á
að skoða þar svokallaðar
stjörnufrumur og vinna með
ákveðið gen í þeim. Þessar frum-
ur eru ákaflega mikilvægar
fyrir alla heilastarfsemi, en áður
héldu menn að þær væru bara í
aukahlutverki.“
Einnig er vitað að
heilakrabbamein er oft leitt af
þessum stjörnufrumum, eða
astrocytes eins og þær heita á
útlenskunni.
„Ein hugmyndin er hvort við
getum fylgst með fari og starf-
semi þessara frumna í lifandi
vef. Ein af ástæðum þess hve
erfitt er að eiga við heilakrabba-
mein, ef það er leitt af þessum
stjörnufrumum, er að stuttu
eftir að krabbameinið verður til
eykst farið á þeim og þar af leið-
andi eru þær fljótt komnar út
um allan heila. Þá er orðið erfitt
að skera þær burtu.“
Einnig er talið að ákveðið gen
í þessum stjörnufrumum geti átt
einhvern þátt í flogaveiki, og
Pétur hefur meðal annars áhuga
á að kanna hvort hægt sé að
slökkva á eða lækka tjáningu á
þessu geni.
„Ég veit ekki hvað af þessu
kemur til með að ganga upp. Oft
er rennt blint í sjóinn með hvað
gengur upp og hvað ekki, en
maður reynir að setja markið
hátt og vona það besta.“
Tilraunir af þessu tagi eru
oftar en ekki stundaðar með
músum. Þær fara gjarnan þan-
nig fram að geni er eytt í
ákveðnum vef, og síðan skoðað
hvaða afleiðingar það hefur.
Í meistaraverkefni sínu við
Háskóla Íslands fjallaði Pétur
um stofnerfðafræði þorsks, og
hefur sem fyrr segir áhuga á því
að notast meira við fiska í til-
raunum sínum en gert hefur
verið.
„Það er kannski liður í því að
færa sig nær Íslandi aftur. Ég
hef verið sex ár í Bandaríkjun-
um og verð núna í tvö ár í
Noregi, og er þá reyndar strax
kominn nær Íslandi.“
Pétur hyggst reyndar vera
með annan fótinn hér á landi
þótt hann stundi rannsóknir
sínar í Noregi.
„Konan mín og sonur okkar
verða á Íslandi þannig að ég
verð fljúgandi á milli.“ ■
10 12. september 2004 SUNNUDAGUR
JESSE OWENS
Þessi magnaða íþróttahetja
fæddist á þessum degi árið 1913.
AFMÆLI
Jón Bergþórsson, fyrrum stöðvarstjóri á
Nýju sendibílastöðinni, er 80 ára í dag.
Hann verður að heiman á afmælisdag-
inn.
Jón Hákon Magnússon al-
mannatengill er 63 ára.
Luca Lúkas Kostic knatt-
spyrnumaður er 46 ára.
ANDLÁT
Júlíus Pálsson, Hjarðartúni 5, Ólafsvík,
lést 9. september.
Haraldur Kr. Jóhannson, áður til heimil-
is í Hólmgarði 66, lést 6. september.
Hvað heitir blaðberinn?
Karl Sigurðsson.
Hvað ertu búin að bera út lengi ?
Frá upphafi.
Hvað ertu með í vasanum ?
Síma, veski og blaðberalykla.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera ?
Þvælast um.
Hvert er þitt mottó ?
Margur er smár þótt hann sé lítill ;)
[ BLAÐBERI ]
VIKUNNAR
Steven Biko, einn ötulasti baráttu-
maður fyrir réttindum blökku-
manna í Suður-Afríku, lést á þess-
um degi árið 1977 af völdum höfuð-
áverka sem hann hlaut eftir bar-
smíðar rannsóknarlögreglumanna
sex dögum fyrr. Steven Bantu Biko
fæddist árið 1946 og var því 31 árs
þegar hann lést. Hann barðist af
kappi gegn aðskilnaðarstefnu
stjórnvalda í Suður-Afríku og fékk
að gjalda fyrir andóf sitt með lífi
sínu. Hann komst vitaskuld oft í
kast við lögin og var færður til
yfirheyrslu í borginni Port Eliza-
beth þar sem rannsóknarlögreglu-
menn misþyrmdu honum harka-
lega. Hann fékk meðal annars þung
höfðuðhögg en í stað þess að fá
læknisþjónustu var hann hlekkj-
aður við gluggarimla í sólarhring.
Þann 11. september var honum svo
fleygt nöktum og hlekkjuðum aftur
í lögreglubíl og síðan var ekið með
hann 740 mílur í fangelsi í Pretor-
íu. Þar lést hann á steingólfi fanga-
klefa síns degi síðar. Þegar yfir-
völd tilkynntu andlát hans var því
haldið fram að hann hefði dáið án
þess að fá hvorki vott né þurrt
dögum saman þar sem hann hefði
verið í hungurverkfalli. Biko varð
píslarvottur í baráttunni gegn að-
skilnaðarstefnunni og dauði hans
vakti heimsathygli og varð til þess
að krafa alþjóðasamfélagsins um
tilslakanir í Suður ñ Afríku urðu
enn háværari. ■
ÞETTA GERÐIST
STEVEN BIKO DÓ Í SUÐUR-AFRÍSKU FANGELSI
12. september 1977
Frelsihetja barinn í hel
Sökkvir sér ofan í stjörnufrumur
TAUGALÍFFRÆÐI: PÉTUR HENRY PETERSEN HLAUT EFTIRSÓTTAN STYRK FRÁ EMBO.
„Vikan verður ansi þéttskipuð
hjá mér en ég vinn á fullu að
Nordisk Panorama, stutt- og
heimildarmyndahátíðinni sem
haldin verður í Reykjavík eftir
tvær vikur, og svo er ég að æfa
fyrir Hárið,î segir Þorvaldur
Davíð Kristjánsson. „Það
verður nóg að gera við að poppa
hátíðina upp og kynna fyrir al-
menningi hvað stutt- og heimild-
armyndir eru en landinn þekkir
ekkert voðalega vel til þess út á
hvað þetta gengur og er alls
ekkert vanur að hlaupa til þegar
svona efni kemur í bíó. Þetta er
risastórt dæmi og það er frábær
reynsla að fá að standa að þessu
með Evu Maríu Jónsdóttur í for-
svari. Ég hef fulla trú á að þetta
verði flottasta Nordisk
Panorama hátíðin sem haldin
hefur verið á Íslandi.“
Þetta verkefni ætti að vera
vel til þess fallið að yfirtaka líf
Þorvaldar næstu vikurnar en
hann þarf þó einnig að nota tím-
ann til að æfa nýtt hlutverk í
Hárinu en hann stekkur inn í
eitt aðalhlutverkanna í söng-
leiknum um mánaðamótin. „Ég
verð að sinna Nordisk
Panorama á daginn og æfa á
kvöldin. Stefnan er að nota öll
kvöld í vikunni í að lesa hand-
ritið.“
Það eru rúmlega 120 myndir
á dagskrá Nordisk Panorama og
Þorvaldur ætlar sér að sjálf-
sögðu að vera búinn að sjá
vænan hluta þeirra áður en há-
tíðin skellur á. „Þetta er góður
slatti og ég er búinn að kíkja á
einhverjar. Sumar eru auðvitað
ekkert sérstakar en aðrar þræl-
skemmtilegar og hver og einn
hlýtur að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi. Kosturinn við há-
tíðina er líka sá að með því að
kaupa armband, sem gildir sem
aðgöngumiði á allar myndirnar,
á 800 krónur getur maður
skoðað þær allar og finnir þú
ekki einhverja mynd við þitt
hæfi hlýtur að vera frekar erfitt
að gera þér til geðs.“ ■
VIKAN SEM VERÐUR: ÞORVALDUR DAVÍÐ KRISTJÁNSSON SÉR FRAM Á ANNASAMA DAGA.
Liggur yfir stuttmyndum og les Hárið
„Öll eigum við okkur drauma. En til þess að þeir geti ræst
þurfum við að vera ákveðin, einbeitt, sjálfsöguð og tilbúin til
að leggja á okkur erfiði.“
- Íþróttahetjan Jessie Owens vissi hvað hann söng þegar hann talaði
um lykilinn að því að ná árangri.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við fráfall ástkærrar
eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu,
langömmu og systur,
sem lést miðvikudaginn 18. ágúst sl. Útförin fór fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Halldór Ó. Stefánsson, Bára Halldórsdóttir, Brynja Halldórsdóttir
og fjölskyldur.
PÉTUR HENRY PETERSEN Ætlar að verja næstu tveimur árum í Noregi til að rannsaka
stjörnufrumur í heila.
ÞETTA GERÐIST LÍKA
1873 Fyrstu ritvélarnar voru settar á al-
mennan markað.
1953 Öldungadeildarþingmaðurinn
John F. Kennedy gekk að eiga
Jacqueline Lee Bouvier.
1953 Nikita Krushchev var kosinn fyrsti
aðalritari Sovéska kommúnista
flokksins.
1954 Sjónvarpsþættirnir um hundinn
snjalla Lassie hófu göngu sína á
CBS. Síðasti þátturinn fór svo i
loftið 12. september 1971.
1959 Sovétmenn skutu tunglfarinu
Luna 2 á loft og þann 13. sept-
ember varð það fyrsta geimfarið
sem komst til Tungslins.
1983 Arnold Schwarzenegger fékk
bandarískan ríkisborgararétt.
Hann flutti til Bandaríkjanna 14
árum áður.
KARL SIGURÐSSON Er blaðberi vikunnar
hjá Fréttablaðinu. Hann hefur borið út frá
upphafi og finnst skemmtilegast að þvæl-
ast um.
STEVEN BIKO Þessi baráttumaður gegn
aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-
Afríku dó pílsardauða í fengelsi þar í landi
árið 1977.
ÞORVALDUR DAVÍÐ KRISTJÁNSSON Stekkur inn í eitt aðalhlutverkanna í Hárinu í lok
mánaðarins. Hann eyðir því öllum kvöldum í að lesa handritið auk þess sem hann verður
á fullu að kynna myndirnar á Nordisk Panorama í vikunni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R
G
ÍS
LA
SO
N
Dóru Gunnfríðar Brynjólfsdóttur,