Fréttablaðið - 17.09.2004, Blaðsíða 21
21FÖSTUDAGUR 17. september 2004
Óhugnanleg morð:
Myrti unga
bræður
JAPAN, AP Fertugur karlmaður
hefur verið handtekinn, grunað-
ur um að hafa numið tvo unga
bræður á brott og myrt þá.
Lík annars bróðurins, hins
fjögurra ára gamla Kazuto,
fannst á árbakka í gær stutt frá
þeim stað þar sem lík þriggja ára
gamals bróður hans, Hayato,
hafði fundist nokkru áður. Sá
sem grunaður er um morðið bjó
með drengjunum og föður
þeirra. Hann er sagður hafa
verið ósáttur við fyrirkomulagið
og er talið að hann hafi oft beitt
þá ofbeldi áður en hann rændi
þeim og henti fram af brú. ■
!!" # "
$
%
&
'
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ A
F
*
CE
*
!+
*
).
&
*
'
%
*
(
(
*
/*
-
*
'
KAJAKLEIÐANGUR „Það var ágætt
siglingaveður, en sjór fór á vél
vélbátsins, þannig að það drapst á
henni,“ sagði Baldvin Kristjáns-
son, einn kajakræðaranna fjög-
urra sem lentu í miklum hremm-
ingum úti fyrir Grænlandsströnd
við lok leiðangurs Blindrafélags-
ins. Bjarga þurfti sex mönnum
um borð í þyrlu; ræðurunum fjór-
um svo og tveimur Grænlending-
um sem höfðu komið á bátnum til
að sækja þá.
„Við þurftum að skilja bátinn
eftir með öllu sem við höfðum
meðferðis,“ sagði Baldvin í gær-
morgun. „Við stöndum bara á
sandölum og kajakstökkunum.
Allar filmur, símar, vélar og ann-
að sem við vorum með er glatað.“
Þeir voru á heimleið á bátnum
sem sótti þá þegar óhappið varð.
Þeir sendu strax út neyðarkall um
leið og ljóst varð að vélinni varð
ekki komið í gang. Bátinn rak vél-
arvana í dálitlum sjó og miklum
straumi. Þeir settu út rekankeri
og kaðla. Fljótlega fengu þeir að
vita að tvær þyrlur væru lagðar
af stað að bjarga þeim. Einnig var
í nágrenninu ísbrjótur sem átti þá
eftir ófarna eina og hálfa klukku-
stund til þeirra. Bátinn rak hratt í
áttina að landi og skerjum, en
þyrlan kom áður en til þess kæmi.
Mönnunum var bjargað um borð í
hana og flogið með þá í varðskipið
Trinton. Enginn þeirra slasaðist
eða blotnaði. Eftir aðhlynningu
var farið með þá til Qaqortoq, þar
sem þeir dvelja nú á sjómanna-
heimili.
„Jú, víst vorum við hræddir,“
sagði Baldvin spurður um tilfinn-
inguna meðan beðið var eftir þyrl-
unni. „Ég hugsaði að þetta óhapp
hefði þegar gerst og íhugaði hvað
hægt væri að gera til að afstýra
því að lenda í lífsháska. Við gerð-
um það sem við gátum. Við lukum
okkar verkefni, en ég hefði viljað
að það hefði verið með öðrum
hætti, þannig að við hefðum hald-
ið búnaði og þeim gögnum sem við
höfðum safnað.“ Hann sagði að
sumir mannanna hefðu fengið
áfall og þegið áfallahjálp hjá
lækni sem verið hefði um borð í
varðskipinu. Þeir væru nú óðum
að jafna sig.
„Nú ætlum við að rölta í búðir
og kaupa okkur tannbursta, föt og
aðrar nauðsynjavörur,“ sagði
Baldvin. Síðan lá fyrir að gefa lög-
reglu skýrslu.
Söfnunarsími hjá Blindrafélag-
inu vegna leiðangursins er 902
5100, ef fólk vill aðstoða mennina
sem töpuðu öllum sínum búnaði
með bátnum.
jss@frettabladid.is
Blindu kajakræðararnir:
Lentu í lífsháska
LEIÐANGURSMENN
Fjórmenningarnir eru nú staddir í Qaqortoq. Myndin var tekin þegar allt lék í lyndi.
BORGARMÁL Áherslur í samgöngu-
málum borgarinnar byggja á
hugmyndafræði sjálfbærrar
þróunar. Þetta sagði Árni Þór
Sigurðsson, forseti borgarstjórn-
ar, við setningu Evrópskrar sam-
gönguviku í Ráðhúsi Reykjavík-
ur í gær.
Árni sagði að borgaryfirvöld
legðu megináherslu á eflingu al-
menningssamgangna, bættar að-
stæður fyrir gangandi og hjól-
andi vegfarendur og vistvæna
orkugjafa.
Árni sagði umferðarstjórnun
vera öflugt stjórntæki sem gefist
hefði vel erlendis og bætti við:
„Sömuleiðis er brýnt að fyrir-
tæki, stofnanir og skólar beiti
sveigjanlegum opnunar- og
vinnutíma í enn ríkari mæli en
nú er enda getur það haft mikil
áhrif til að jafna álagið í umferð-
arkerfinu,“ sagði Árni Þór. „Sér-
staklega er ástæða til að hvetja
forráðamenn fjölmennra vinnu-
staða, eins og Landspítalans, Há-
skólans og framhaldsskólanna til
að vinna markvisst í þá veru og
Reykjavíkurborg er að sjálf-
sögðu reiðubúin til að leggja því
lið eins og unnt er.“
Þetta er í annað sinn sem
Reykjavíkurborg tekur þátt í
Evrópskri samgönguviku en
meginþema vikunnar í ár er
öryggi barna í umferðinni. Evr-
ópsku samgönguvikunni lýkur á
miðvikudag en þá er bíllausi dag-
urinn og frítt í strætó. ■
Evrópsk samgönguvika er hafin:
Borgin leggur áherslu
á sjálfbæra þróun
ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON
Forseti borgarstjórnar setti Evrópska samgönguviku í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.