Fréttablaðið - 17.09.2004, Blaðsíða 48
■ ■ LEIKIR
17.30 Þór og Völsungur mætast á
Akureyrarvelli í 1. deild karla í
knattspyrnu.
17.30 Valur og Fjölnir mætast á
Hlíðarenda í 1. deild karla.
17.30 HK og Stjarnan mætast á
Kópavogsvelli í 1. deild karla.
17.30 Haukar og Breiðablik mætast
á Ásvöllum í 1. deild karla í
knattspyrnu.
17.30 Njarðvík og Þróttur mætast á
Njarðvíkurvelli í 1. deild karla í
knattspyrnu.
19.15 Stjarnan og Valur mætast í
Ásgarði á Íslandsmóti karla í
handbolta.
19.15 Víkingur og Grótta/KR
mætast í Víkinni á Íslandsmóti
karla í handbolta.
19.15 Selfoss og ÍBV mætast á
Selfossi á Íslandsmóti karla í
handbolta.
20.00 KA og Þór mætast í KA-heim-
ilinu á Íslandsmóti karla í hand-
bolta.
20.00 Afturelding og Fram mætast
að Varmá á Íslandsmóti karla í
handbolta.
■ ■ SJÓNVARP
12.05 Ryder-bikarinn í golfi á Sýn.
Það eru lið Bandaríkjanna og
Evrópu sem leika um
Ryder-bikarinn í golfi
en allir mótsdagarnir
eru í beinni á
Sýn. Keppnin
er haldin í
Detroit 17. - 19.
september en þetta er
í fyrsta skipti sem Sýn
er með beina
útsendingu frá mótinu.
Ryder-bikarinn á sér
langa sögu sem
nær aftur til fyrri
hluta síðustu aldar
en þess má geta
að Evrópuliðið
hafði betur
síðast. Paul McGinley tryggði sig-
urinn árið 2002 með eftirminni-
legu pútti á 18. holu.
18.00 Upphitun (Pregame Show) á
Skjá einum. Í Pregame Show hit-
tast breskir knattspyrnuspekingar
og spá og spekúlera í leiki helgar-
innar í enska boltanum.
36 17. september 2004 FÖSTUDAGUR
Við mælum með...
... að forráðamenn Fylkis bjóði upp á pakkatilboð á leik Fylkis og KR sem
fram fer um næstu helgi og skiptir nákvæmlega engu máli. Ekki væri
vitlaust að þeir sem kaupi miða fái einnig frítt í Árbæjarlaugina og jafn
vel eitt afgangshraun af lager Nóatúns. Með þessu útspili á Fylkir góðan
möguleika að ná 200 manns á þennan „spennandi“ leik.sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
15 16 17 18 19 20 21
Laugardagur
SEPTEMBER
Við mælum með...
... að stjórn ÍBV í knattspyrnu taki knattspyrnumanninn Kristinn Tómasson „á
leigu“ og sendi hann til Akureyrar á sunnudag. Kristinn gerði út um meistar-
avonir FH-inga árið 1989 með eftirminnilegu marki og nærvera hans á leik
KA og FH á sunnudag gæti skotið Hafnfirðingum skelk í bringu og þá er
aldrei að vita hvað gerist. Menn verða að vera frumlegir þegar titill er í boði.
FÓTBOLTI FH og þýska félagið,
Alemannia Aachen, mættust á
Laugardalsvelli í gærkvöld í
UEFA-bikarnum en leikurinn í
gær var fyrri viðureign liðanna.
FH-ingar gerðu sér fyrirfram
nokkrar vonir um að ná
hagstæðum úrslitum í þessum
leik en það var ljóst strax í
upphafi að þær vonir voru byggð-
ar á mjög veikum grunni.
Það var skammt liðið af
leiknum þegar þýska liðið var
búið að taka yfirhöndina í
leiknum. Þeir pressuðu Hafn-
firðingana stíft út um allan völl og
FH-ingar réðu ekkert við þessa
pressu Þjóðverjana.
Leikmenn Aachen sóttu síðan
hratt upp kantana þar sem
bakverðir FH-inga – Freyr
Bjarnason og Guðmundur
Sævarsson – voru í tómu tjóni en
þeir réðu nákvæmlega ekki neitt
við hraða vængmenn Aachen.
Stíflan brast strax á 12. mínútu
þegar fyrrverandi framherji
Liverpool, Erik Meijer, skallaði
boltann fyrir fætur Kai Michalke
sem skoraði auðveldlega. Markið
verður að skrifast að hluta til á
Tommy Nielsen sem var stein-
sofandi í teignum og var engu
líkara en hann hefði lítið sem
ekkert sofið kvöldið áður.
FH-ingar voru varla búnir að
jafna sig á þessu áfalli þegar
Michalke skoraði aftur tveim
mínútum síðar. Það var við fáa að
sakast í það skiptið enda var
afgreiðsla Michalke af dýrari
gerðinni en hann skaut óverjandi
skoti frá vítateig sem Daði
Lárusson átti aldrei möguleika á
að verja.
Vonuðust margir til þess að
FH-ingar myndu spýta í lófana
eftir seinna markið en það var
öðru nær. Þjóðverjarnir tóku öll
völd á vellinum og Erik Meijer
skoraði þriðja markið skömmu
fyrir hlé. Tommy Nielsen svaf
aftur illilega á verðinum í það
skiptið en hann og félagi hans,
Sverrir Garðarsson, voru í engu
sambandi og hvorugur dekkaði
Hollendinginn stóra.
Það var ekki sjón að sjá FH-
ingana í fyrri hálfleik. Þeir voru
víðs fjarri sínu besta. Náðu aldrei
upp neinu spili, voru ragir og þar
að auki langt frá því að vera eins
líkamlega sterkir og Þjóð-
verjarnir. Það er skemmst frá því
að segja að síðari hálfleikurinn
var ákaflega lítið fyrir augað.
Þjóðverjarnir drógu sig nokkuð til
baka enda með ákaflega vænlega
stöðu. FH-ingar reyndu af veikum
mætti að sækja en komust lítt
áleiðis fyrr en á 85. mínútu er Atli
Viðar Björnsson snéri af sér varn-
armann Aachen og skoraði gott
mark.
Það mark reyndist skamm-
góður vermir því Aachen skoraði
fjórða mark sitt á 89. mínútu er
Alexander Klitzpera skallaði í
markið eftir sendingu frá
áðurnefndum Michalke. Síðasti
naglinn í kistu FH-inga kom síðan
á 93. mínútu er Reiner
Plasshenrich skoraði í FH-markið
af stuttu færi.
Það verður að játast að lið
Aachen er talsvert sterkara en
menn héldu. Það er gríðarlega vel
skipulagt, líkamlega sterkt og
boltinn gengur vel innan liðsins.
Það gat vart verið tilviljun ein
sem réð því að þeir komust í úrslit
þýsku bikarkeppninnar.
FH-ingar geta verið stoltir af
frammistöðu sinni í keppninni
enda komust þeir lengra en flestir
áttu von á í upphafi. Það er erfitt
að hrósa einhverjum leikmönnum
liðsins fyrir utan Daða Lárusson
markvörð.
Leikskipulag liðsins gekk
engan veginn að þessu sinni og
var furðulegt að þjálfarar FH-
liðsins skyldu ekki stilla Ármanni
Smára Björnssyni upp í fremstu
víglínu með Allan Borgvardt fyrir
aftan. Það kom ekkert út úr
Borgvardt einum fremstum enda
fékk hann enga hjálp frá Jónasi
Grana Garðarssyni. Hafn-
firðingar geta nú einbeitt sér að
næsta verkefni og spurning hvort
þessi skellur komi til með að hafa
áhrif á þá í leiknum mikilvæga
gegn KA á sunnudag.
henry@frettablaðið
ÖLL SUND LOKUÐ Hinn bráðefnilegi Emil Hallfreðsson komst lítt áleiðis gegn sterkum
varnarmönnum Alemannia Aachen á Laugardalsvelli í gær.
Fimleikafélagið flengt
Þýska 2. deildarliðið, Alemannia Aachen, kjöldróg slaka FH-inga á
Laugardalsvelli í gær og vann stórsigur, 5–1.
Fáðu flott
munnstykki
Ronny Johnsen mættur í slaginn á nýjan leik:
Fyrsti samningur Souness
FÓTBOLTI Varnarmaðurinn Ronny
Johnsen hefur gert skammtíma-
samning við Newcastle. Þar með
er hinn 35 ára gamli Norðmaður
orðinn fyrsti leikmaðurinn sem
nýráðinn framkvæmdastjóri fé-
lagsins, Graeme Souness, gerir
samning við.
Souness er að reyna að bæta í
götin í vörn Newcastle en félagið
seldi einmitt á dögunum sinn hel-
sta varnarmann, Jonathan Wood-
gate, til Real Madrid fyrir litlar 15
milljónir punda.
Ronny Johnsen var leystur
undan samningi hjá Aston Villa
eftir síðasta tímabil en þessi
reynslumikli norski landsliðsmað-
ur lék lengi vel með Manchester
United og átti þar afar góðan
tíma.
Hann kom til félagsins árið
1996 á sama tíma og annar Norð-
maður, Ole Gunnar Solskjær, og
vann á næstu árum til margra titla.
Hápunkturinn var án efa tímabilið
1998-1999 þegar Manchester
United varð Englandsmeistari,
bikarmeistari og landaði sigri í
Meistaradeildinni.
Á NÓG EFTIR Gamla brýnið Ronny
Johnsen hefur ekki lagt árar í bát.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N