Fréttablaðið - 22.09.2004, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 22.09.2004, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 22. september JÓNA BJÖRG JÓNSDÓTTIR Í SAUMA- GALLERÍI JBJ Gaf Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur á dögunum 55 alfatnaði auk annars klæðnaðar á ung börn. Gjöfin kem- ur sér vel nú þegar vetrarstarf Mæðra- styrksnefndar er að hefjast. Úthlutun er á hverjum miðvikudegi frá kl. 14-17. Arabanám- skeiðið að hefjast Jóhanna Kristjónsdóttir fer fljót- lega af stað með námskeið sitt um Menningarheim araba hjá Mími símennt. Jóhanna hefur séð um þessi námskeið undanfarin ár en þau hafa vakið nokkra athygli og ekki síður forvitni. Jóhanna skiptir námskeiðinu þannig niður að í fyrsta tímanum er talað um íslam. Síðan er vikið að konum en staða þeirra er mörg- um hugleikin. „Þess má geta í framhjáhlaupi að bókin mín Arab- íukonur er væntanleg hjá Máli og menningu um miðjan október,“ segir Jóhanna. „Þar fjalla ég um konur í Sýrlandi, Egyptalandi, Jemen og Óman.“ Í þriðja tímanum er vikið að menningu og listum í þessum heimshluta. „Ég byrja á nútíma- sögunni, frá 1918 þegar Bretar og Frakkar skáru þennan heimshluta upp með þeim afleiðingum sem við þekkjum og hefur valdið að hluta til ólgunni sem er ríkjandi enn þann dag í dag.“ Í fjórða tíma er talað áfram um söguna og þá er þátttakendum einnig boðið upp á að gæða sér á arabískum mat. Í fimmta og síðasta tímanum er svo stiklað á Íraksstríðunum tveimur. Skráning á námskeiðin stendur yfir hjá Mími símennt. ■ JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR Ætlar að halda áfram að fræða Íslendinga um menn- ingarheim araba en vinsæl námskeið henn- ar um efnið hefst hjá Mími símennt á næst- unni. Laserprentarar... Laser- prenta rar ...á góðu verði Skeifan Smáralind Akureyri Egilsstaði r Nánari upplýsingar í síma 550 4100 Q1334A HP LaserJet 1300 • 19 bls. á mínútu, fyrsta síða eftir 8 sek • 1200 x 1200 dpi upplausn • Stilling fyrir 50% prentduftsparnað. • 10.000 bls. mánaðarnotkun • Pappírsbakki: 500 bls. 30 umslög • Útbakki: 125 bls. 30 umslög Verð 39.900,- PE16VI Xerox WorkCentre PE16 MFP • 16 bls á mínútu • 16 MB minni • 600 x 600 dpi upplausn • 10.000 bls. mánaðarnotkun • Fax hraði: 33.6 Kbps • Pappírbakkar: 250 inn, 150 út. Verð 59.900,- Prentar Litaskannar Ljósritar Faxar Q2460A HP LaserJet 1010 • 12 bls. á mínútu, fyrsta síða út eftir 10 sek. • 600 dpi upplausn • 5000 bls. mánaðarnotkun • Pappírsbakki: 150 bls. Verð 19.900,- Aukablaðabakki fylgir með að verðmæti 24.900,-

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.