Fréttablaðið - 25.09.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
LAUGARDAGUR
STÓRLEIKUR Í BIKARNUM
FH-ingar, nýkrýndir Íslandsmeistarar í fót-
bolta, mæta KA í undanúrslitum Visa-bik-
arkeppni karla í dag. Leikurinn fer fram á
Laugardalsvellinum og hefst klukkan 14.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VEÐRIÐ BETRA EFTIR HÁDEGI Það
verður hvasst og úrkomusamt í morgun-
sárið sunnan og vestan til en lægir svo, síst
reyndar suðaustan til. Víða skaplegt í kvöld.
Sjá síðu 6
25. september 2004 – 262. tölublað – 4. árgangur
JÖKLARNIR BRÁÐNA Á næstu 100 til
200 árum er talið að jöklar landsins dragist
saman og hverfi. Líklegt er að Snæfellsjök-
ull hverfi fyrst. Sjá síðu 10
MEIRIHLUTI RÍKISSTJÓRNAR ER-
LENDIS Guðni Ágústsson er starfandi for-
sætisráðherra í forföllum þeirra Halldórs
Ásgrímssonar forsætisráðherra og Davíðs
Oddssonar, staðgengils hans í ríkisstjórn-
inni. Sjá síðu 2
KENNARAR GAGNRÝNDIR Engar
undanþágur hafa verið veittar í yfirstand-
andi kennaraverkfalli. Neyðarástand hjá for-
eldrum fatlaðra barna. Sjá síðu 4
FJÖLDI ÚTLENDINGA SEXFALD-
AST Fjöldi útlendinga sem afplána refsi-
dóma í íslenskum fangelsum hefur sexfald-
ast á síðustu fjórum árum. Ástæðan er fyrst
og fremst mikil fjölgun dóma vegna fíkni-
efnabrota. Sjá síðu 6
25-49 ára
Me›allestur
72%
50%
Fréttablaðið Morgunblaðið
Allt landið
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups ágúst '04
Kvikmyndir 40
Tónlist 40
Leikhús 40
Myndlist 40
Íþróttir 36
Sjónvarp 44
Strákarnir okkar:
● á kr-vellinum
Bíódagur
SÍÐA 46 ▲
● bílar
Hannes Emilsson:
▲
Sáluhjálparar eða loddarar?
STJÓRNMÁL Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra fór hörðum orðum
um Hæstarétt í ræðu á málþingi
Lögfræðingafélags Íslands um
eftirlit með störfum stjórnvalda.
Björn fjallaði um hvort ástæða
væri til að setja á fót stjórnsýslu-
dómstól og tiltók þrjá dóma þar
sem honum þótti Hæstiréttur hafa
gert afdrifarík mistök.
Björn sagði fyllilega réttmætt
að velta fyrir sér hvort setja
þyrfti á fót stjórnsýsludómstól
enda væru fingurbrjótar Hæsta-
réttar áberandi og sumir alvar-
legri en aðrir.
„Sumum þeirra hefur ríkis-
stjórnin meira að segja neyðst til
að bregðast við með því að leita
eftir sérstakri lagasetningu til að
draga úr fordæmisgildi dóma,
þegar þeir hafa gengið þvert á
allt, sem viðtekið hefur verið í
stjórnsýslurétti eftir hefðbundum
lögskýringaraðferðum.“
Einn dómanna sem Björn tiltók
var á þá leið að ólöglegt hefði ver-
ið að flytja starfsemi Landmæl-
inga Íslands til Akraness, svokall-
aður Stjörnugríssdómur sem var
á þá leið að umfjöllun starfs-
manna umhverfisráðuneytis hefði
gert ráðherra vanhæfan til að úr-
skurða í málinu var annar og sá
þriðji var á þá leið að minnisblað
ríkisstjórnarinnar til nefndar sem
fjallaði um öryrkjadóm væri opin-
bert plagg. Um þann dóm sagði
Björn meðal annars: „Þennan dóm
nefni ég hér vegna þess, að hann
dregur öðru betur fram, hvað van-
þekking á störfum og starfshátt-
um stjórnvalda getur brenglað all-
ar forsendur fyrir niðurstöðum
dómstóla og haft alvarlegar af-
leiðingar fyrir lagaframkvæmd á
þeim sviðum, sem þær snerta.“
Atli Gíslason, hæstaréttarlög-
maður og varaþingmaður Vinstri
grænna, segir viðbrögð Björns
harkalegri en dómarnir gefi til-
efni til. „Sérstaklega umfjöllun
um Stjörnugríssdóm sem ég met
að sé alveg hárétt niðurstaða hjá
Hæstarétti og byggi á fullkom-
lega réttu mati á vanhæfisreglum
á grundvelli bréfs sem var undir-
ritað fyrir hönd ráðherra. Hin tvö
málin voru umdeild,“ sagði Atli og
bætti við: „Það virtist koma fund-
armönnum á óvart hvað hann var
hatrammur í umtali um þessa
dóma.“
brynjolfur@frettabladid.is
SÍÐUR 26
▲
Ástir unglinga
SÍÐUR 30 & 31
▲
VIÐSKIPTI Lög um að þrengja að
hlutverki starfandi stjórnarfor-
manna fela í sér takmörkun á
rétti hluthafa til að haga málum
með þeim hætti sem þeir telja
best til árangurs fallin. Þetta er
meðal niðurstaðna skýrslu sem
lögmenn unnu fyrir KB banka.
Gunnar Jónsson, aðalhöfundur
skýrslunnar, segir að tillagan sé
ekki til þess fallin að efla hags-
muni hluthafa og markaðarins,
heldur þvert á móti.
„Meðan stjórnin er innan al-
mennra reglna sem ágæt reynsla
er komin á er ekki ástæða fyrir
stjórnvöld að hafa skoðun á því
hvernig menn skipta með sér
verkum.“
Í skýrslunni er bent á að for-
dæmi fyrir slíkum reglum séu fá
og það fordæmi sem sé notað
beint sé frá Danmörku og sett í
kjölfar mikils hneykslismáls og
gjaldþrots. „Það varð mikil tauga-
veiklun út af því máli og það er
tæpast heppileg fyrirmynd.“
Gunnar telur að tillögurnar
muni ekki hafa áhrif á fyrirkomu-
lag í KB banka og bankinn fari í
einu og öllu að leiðbeinandi regl-
um um góða stjórnarhætti.
Sjá bls. 20.
Tillaga viðskiptaráðneytisins um að þrengja heimildir hlutafélaga gagnrýnd:
Lög myndu takmarka rétt hluthafa
Vigdís Finnbogadóttir:
Konur þurfa
jafn há laun
STJÓRNMÁL Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Íslands, sagði á
norrænni jafnréttisráðstefnu í gær
að jafnrétti kynjanna væri ekki
jafnrétti í raun nema konum væru
greidd jafn há laun og körlum fyrir
sömu störf. Vigdís og Tarja
Halonen, forseti Finnlands, voru á
meðal frummælenda á ráðstefnu
sem haldin var í Borgarleikhúsinu í
gær til að minnast þess að þrjátíu ár
eru liðin frá því að norrænt sam-
starf á sviði jafnréttismála hófst.
Vigdís varpaði fram þeirri
spurningu í ræðu sinni hvers vegna
konur einar ræddu um stöðu sína.
„Af hverju eru konur ávallt sendar
á fundi þar sem ræða á stöðu
kvenna í samfélaginu?“ spurði for-
setinn fyrrverandi. Spurningin virt-
ist tímabær. Konur voru í yfirgnæf-
andi meirihluta á ráðstefnunni. ■
FORSETAR HEILSAST
Tvær fárra kvenna í heiminum sem þjóðkjörnar hafa verið forsetar; Vigdís Finnbogadóttir og Tarja Halonen, forseti Finnlands, hittust á
norrænni jafnréttisráðstefnu í Borgarleikhúsinu í gær.
Landlæknir hefur opinberlega varað við
fjórum erlendum gúrúum á síðastliðnum
þremur árum og kallar slíka starfsemi
„óprúttna fjárplógsstarfsemi“.
Á unglingsárunum er stutt í rómantík
og næstu stóru ást. Fréttablaðið spjall-
ar við unglinga um stefnumót og ástir.
Aukablað um
alþjóðlega
hjartadaginn
fylgir
Fréttablaðinu
í dag
Hjálpin fylgir
Fréttablaðinu í dag.Á mótorhjóli um Flórída
Í MIÐJU BLAÐSINS
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Ráðherra gagnrýnir
Hæstarétt harðlega
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir Hæstarétt hafa gert nokkur afdrifarík mistök í dóm-
um sínum. Harkalegri viðbrögð en búast mátti við segir Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður.