Fréttablaðið - 27.09.2004, Síða 1
● hefur slegið í gegn í körfuboltanum
Jón Arnór Stefánsson:
▲
SÍÐA 23
Verð alltaf sáttur
í Evrópu
● og á næstu plötu.
Hver er Barði?
▲
SÍÐA 30
Spurningunni
svarað í stuttmynd
● er 24 ára í dag.es
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir:
▲
SÍÐA 16
Leikkonan sem
varð leikskáld
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
MÁNUDAGUR
KONUR Í KVIKMYNDUM
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræð-
um, í samstarfi við Nordisk Panorama
kvikmyndahátíðina, býður til málstofu um
konur í kvikmyndum og kvikmyndagerð
klukkan 15, á Hótel Borg.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HIÐ FEGURSTA HAUSTVEÐUR Og
víðast bjartviðri. Hiti 5-12 stig að deginum
en víða næturfrost. Sjá síðu 6.
27. september 2004 – 264. tölublað – 4. árgangur
● hús ● fasteignir
Gaman að
selja hús
Sigrún Gissurardóttir:
LÍTILL VILJI TIL AÐ SETJA LÖG Á
VERKFALL Lítill hljómgrunnur meðal
þingmanna fyrir því að binda enda á kenn-
araverkfall með lögum. Vinstri-grænir úti-
loka það. Sjá síðu 2
VELDUR VARLA VARANLEGUM
SKAÐA Barnasálfræðingur segir ólíklegt
að verkfall valdi fötluðum börnum varan-
legum skaða. Þau geti þó þurft sinn tíma til
að jafna sig. Sjá síðu 4
ERFIÐLEIKAR Á SIGLUFIRÐI Erfið-
leikar eru í atvinnumálum Siglufjarðar. Gíf-
urlegur samdráttur, segir formaður verka-
lýðsfélagsins. Sjá síðu 6
FRÉTTAHAUKUR HLEYPUR Á SIG
Hætt er við að orðstír Dan Rather, frétta-
manns hjá CBS, hafi beðið varanlegan
hnekki. Hann gerði alvarleg mistök í um-
fjöllun um Bandaríkjaforseta. Sjá síðu 8
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 18
Sjónvarp 28
BANDARÍKIN, AP Fellibylurinn
Jeanne, sem farið hefur um
Karabíska hafið undanfarna viku
og valdið dauða um 1.500 manns,
skall á austurströnd Flórída á
miðnætti á laugardag.
Bæirnir Stuart, Fort Pierce og
Vero Beach urðu verst úti og í
gærkvöldi bárust fréttir um að
tveir hefðu látist. Þök rifnuðu af
húsum, rafmagnslínur slitnuðu og
brak frá því síðustu fellibyljir
fóru yfir svæðið fauk um allt.
Meira en milljón heimili urðu raf-
magnslaus. Þak rifnaði meðal
annars af sjúkrahúsi í Stuart og
lak vatn inn á sjúkrastofur. Færa
þurfti fjölda sjúklinga á neðri
hæðir sjúkrahússins.
Í gærkvöldi stefndi Jeanne í átt-
ina að Orlando en þaðan er búist við
að fellibylurinn fari í átt að Georgíu
og Karolínu. Jeanne er fjórði felli-
bylurinn sem fer yfir Flórída á síð-
ustu sex vikum. Hann kom á land á
sama stað og Frances gerði fyrir
þremur vikum. Áður en Jeanne reið
yfir Flórída höfðu tryggingafélög
metið eignatjónið á allt að 18 millj-
arða króna. Sú tala á eftir að hækka.
Fréttablaðið ræddi í gær við
Guðjón Sverrisson sem búsettur
er í Miami. Guðjón sagði Miami
hafa sloppið við fellibylinn.
„Það var allt með kyrrum
kjörum hjá okkur, utan hvað það
rigndi nokkuð hressilega hjá
okkur í morgun,“ sagði Guðjón.
Sjá síðu 2
Fellibylurinn Jeanne skall á austurströnd Flórída um helgina:
Þök rifnuðu og raflínur slitnuðu
Fjarstýrðir bensínbílar
verð frá 39.999.
Startpakkinn fylgir öllum bílum.
Úrval varahluta og aukahluta.
Kringlunni 568-8190
Smáralind 522-8322
SVEITARSTJÓRNARMÁL Forystumenn
sveitarfélaganna og samninganefnd
sveitarfélaganna komu saman til
fundar á föstudag til að ræða stöð-
una í kennaraverkfallinu. Lýst var
trausti á samninganefndinni og
henni falið að halda óbreyttri stefnu
í viðræðum við kennara.
Sífellt fleiri sveitarstjórnar-
menn telja að deilan leysist ekki
fyrr en að ríkið réttir hlut sveitar-
félaganna í tekjuskiptingu þeirra
á milli. Ljóst þykir að sveitarfé-
lögin hafi ekki ráð á að samþykkja
kröfur kennara og ósennilegt er að
þeir dragi úr kröfunum. Lykillinn
að lausn deilunnar virðist því í
höndum ríkisins.
Hins vegar miðar hægt í við-
ræðum nefndar sem fjalla
átti um tekjuskiptingu ríkis og
sveitarfélaga. Hún hefur
starfað í um eitt ár en án árang-
urs. Þetta þykir sumum sveitar-
stjórnarmönnum óásættanlegt
og telja viðmælendur Frétta-
blaðsins að Samband íslenskra
sveitarfélaga, sem á fulltrúa í
nefndinni, hafi ekki beitt nægi-
legri hörku í málinu.
Tvö dæmi eru helst nefnd um
hvernig hallað hefur á sveitarfé-
lögin á undanförnum árum.
Þegar ríkið lækkaði tekjuskatt á
fyrirtæki fjölgaði einkahlutafé-
lögum mikið en að sama skapi
dró úr tekjum
sveitarfélaga.
Talið er að
t e k j u t a p i ð
hafi numið
rúmum millj-
arði króna á
ári undanfarin
þrjú til fjögur
ár.
Þá er nefnt
að sveitarfé-
lögin hafi
þurft að
greiða sífellt hærra hlutfall
húsaleigubóta sem nemi á
þriðjahundrað milljón króna á
ári.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði segir að tryggja þurfi
að ríkið skili til baka fjárhæðum
sem það hafi haft af sveitarfélög-
unum á undanförnum árum.
,,Þetta eru háar upphæðir sem
ríkið hefur haft af sveitarfélögun-
um, jafnt með skattkerfisbreyt-
ingum sem öðrum álögum.“
Stefanía Traustadóttir,
bæjarstjóri í Ólafsfirði, segir að
fjárhagslegur rammi sveitar-
félaganna sé sprunginn og
kröfur kennara rúmist ekki
innan hans. Það líti því ekki út
fyrir að hægt sé að leysa deiluna
án þess að ríkið bæti þar úr.
ghg@frettabladid.is
Ríkið leysi kjaradeilu
kennara úr sjálfheldu
Sífellt fleiri sveitarstjórnarmenn telja að ekki sé hægt að leysa kjaradeilu kennara nema að ríkið
auki tekjur sveitarfélaganna. Fjárhagsrammi sveitarfélaganna sprunginn. Talið að Samband ís-
lenskra sveitarfélaga beiti ekki nægilegri hörku í viðræðum við ríkið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
ÓLGUSJÓR VIÐ TITUSVILLE Eigandi húsbáts sem varð fellibylnum Jeanne að bráð gengur hnípinn eftir hafnarbakkanum í bænum
Titusville í Flórída á meðan húsbáturinn marar hálfur í kafi.
Fjórði bekkur:
Samræmd
próf í óvissu
VERKFALL Óvissa er um samræmd
próf fjórða bekkjar í 180 grunn-
skólum sveitarfélaganna. Prófa á
börnin í stærðfræði og íslensku
dagana 10. og 12. október.
Sigfús Grétarsson, formaður
samninganefndar Skólastjóra-
félagsins sem á í kjaraviðræðum
við sveitarfélögin, segir að sjá
verði til með framkvæmd próf-
anna þegar samningar náist.
Hann segir prófin ætluð til að
leiðbeina skólum um stöðu sinna
nemenda. „Það getur því verið að
prófin verði haldin ef samningar
nást fyrir þann tíma því allir
grunnskólanemendur eru undir
sömu sök seldir.“ ■
LÚÐVÍK GEIRSSON
Tryggja þarf sveitar-
félögum auknar
tekjur.