Fréttablaðið - 29.09.2004, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 – Veffang: visir.is
MIÐVIKUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
RIGNING SUNNAN OG VESTAN
TIL sem fer vaxandi eftir því sem líður á
daginn. Hangir þurr fyrir norðan og austan
fram á kvöld. Hlýnandi veður. Sjá síðu 6
29. september 2004 – 266. tölublað – 4. árgangur
SEX LÍKAMSÁRÁSIR Maður sem sló
annan mann nokkrum sinnum í höfuðið
með öxi á A. Hansen í Hafnarfirði fyrir um
mánuði síðan er ákærður fyrir sex aðrar lík-
amsárásir. Sjá síðu 2
ENGAR UNDANÞÁGUR Enginn hefur
fengið undanþágu til kennslu eftir að verk-
fall grunnskólakennara hófst. Sjá síðu 6
MIKIÐ RÁÐHERRAVALD HÉR Fyrir-
komulag við skipan dómara í hæstarétt er
margvíslegt í nágrannalöndunum. Saman-
burðurinn er flókinn en þó verður ekki bet-
ur séð en að ráðherra hafi meira vald hér á
landi en tíðkast annars staðar. Sjá síðu 8
EINELTI Í FANGELSUM Fangelsis-
málastofnun hefur skorið upp herör gegn
einelti í fangelsum landsins. Sjá síðu 10
▲
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Anna Barner Sarp:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Flytur Bollywood
til Íslands
● nám
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 16
Myndlist 16
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
KEFLAVÍKURVÖLLUR Ákveðið hefur
verið að segja upp að minnsta
kosti sjötta hverjum slökkviliðs-
manni á Keflavíkurflugvelli og
ekki er útséð með að uppsögnum
sé lokið. Þegar hafa 14 fengið upp-
sagnarbréf á undanförnum tveim-
ur mánuðum og mega fjórir í við-
bót eiga von á uppsagnarbréfi
næstu daga, því þeim verður sagt
upp frá og með næstu mánaða-
mótum. Því verða 18 slökkviliðs-
menn af þeim 100 sem eru í
slökkviliðinu án vinnu innan fárra
daga.
Vernharð Guðnason, formaður
Landssambands sjúkraflutninga-
og slökkviliðsmanna, hefur mikl-
ar áhyggjur af ástandinu á Kefla-
víkurflugvelli. „Það hlýtur að
koma niður á starfsemi liðsins
þegar svona mörgum og reyndum
starfsmönnum er sagt upp á svona
stuttum tíma. Uppsagnirnar eru
ekki í samræmi við starfsaldur og
því fer mikil fagleg reynsla og
þekking úr liðinu með þessum
mönnum,“ segir Vernharð.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa slökkviliðsmenn á
Keflavíkurflugvelli áhyggjur af
því að vinnuálag aukist í kjölfar
uppsagnanna. Ekki er enn farið að
reyna á fækkun í liðinu því enn
séu menn að vinna út uppsagnar-
fresti sem eru mislangir. Þeir
segja óvissuna sem fylgir því að
vita ekki hverjir verði látnir fara
næst þrúgandi.
Að sögn Friðþórs Eydal, upp-
lýsingafulltrúa Varnarliðsins, eru
uppsagnirnar liður í hagræðingar-
aðgerðum hjá flotadeild Varnar-
liðsins. Hann útilokar ekki að um
frekari uppsagnir verði að ræða
en vill ekki tjá sig um þær frekar.
Sigurður Arason, aðstoðar-
slökkviliðsstjóri Slökkviliðsins á
Keflavíkurflugvelli, vill ekki tjá
sig um málið.
sda@frettabladid.is
BÍLABÍÓ Á MIÐBAKKA Bílabíó Nor-
disk Panorama verður á Miðbakka Reykja-
víkurhafnar í kvöld klukkan 21. stuttmyndir.
STJÓRNMÁL Kristinn H. Gunnars-
son, þingmaður Framsóknar-
flokksins, mun ekki sitja í þing-
nefndum fyrir hönd flokksins í
vetur. Þingflokkur framsóknar-
manna ákvað það í gærkvöld.
Kristinn sat í fjórum nefndum á
vegum flokksins á liðnum þing-
vetri, þar á meðal sem formaður í
iðnaðarnefnd þingsins.
Hjálmar Árnason, formaður
þingflokksins, sagði að loknum
fundi í gær, að þingmenn flokksins
treystu Kristni ekki lengur til að
fara með trúnaðarstörf í þing-
nefndum. Aðspurður um hvað hafi
valdið þessum trúnaðarbresti
sagði Hjálmar að þar væri ekki um
einhvern einn atburð að ræða.
,,Þetta hefur byggst upp á löngum
tíma, byrjaði sem samstarfsörðug-
leikar en síðan brast hver streng-
urinn á fætur öðrum þangað til al-
gjör trúnaðarbrestur var orðin
raunin. Þetta var eins og hjá hjón-
um sem átta sig á því að ástin,
traustið og vináttan eru horfin.“
Aðspurður hvort þetta veikti ekki
stöðu Framsóknarflokksins í
stjórnarsamstarfinu sagði Hjálm-
ar að fámenn en sterk liðsheild
væri betri en veik og fjölmenn.
Kristinn H. Gunnarsson segist
ekki vera hættur í þingflokknum
eftir atburði gærkvöldsins. ,,Þing-
flokkurinn fann ekki að störfum
mínum í þingnefndunum. Þetta
eru frekar viðbrögð við sjálfstæði
mínu í tveimur málum, fjölmiðla-
málinu og Íraksmálinu. Forystunni
líkar ekki að þingmenn setji fram
skoðanir sem fylgja ekki þeirra
línu. Sér í lagi held ég að þeim hafi
sárnað það þegar ég upplýsti að
þátttaka Íslendinga í hópi hinna
viljugu þjóða í Íraksstríðinu hafi
ekki verið borin undir þingflokk-
inn.
Kristinn segir að þessi breytta
staða í þingflokknum og afstaða
sín verði rædd á vettvangi flokks-
ins. Framundan séu fundir kjör-
dæmasambanda, miðstjórnar og
flokksþing.
Á fundi þingflokksins í gær-
kvöld var ákveðið að Birkir J.
Jónsson tæki við formennsku af
Hjálmari í iðnaðarnefnd og vara-
formennsku í sjávarútvegsnefnd.
Dagný Jónsdóttir tók við varafor-
mennsku af Kristni í efnahags- og
viðskiptanefnd og Hjálmar Árna-
son tók sæti hans sem varaformað-
ur samgöngunefndar.
Siv Friðleifsdóttur, fyrrverandi
umhverfisráðherra, var falin for-
mennska í félagsmálanefnd og
varaformennska í utanríkismála-
nefnd og heilbrigðis- og trygginga-
nefnd.
ghg@frettabladid.is
sjá síðu 13
Uppsagnir á Keflavíkurflugvelli:
Átján slökkviliðsmönnum
sagt upp á flugvellinum
Kristinn fallinn í ónáð
Þingflokkur Framsóknar treystir Kristni H. Gunnarssyni ekki til að sitja í nefndum á vegum
þingsins. Kristinn segir að sjálfstæði hans í tveimur málum hafi valdið óánægju innan
forystu flokksins. Hann ætlar að starfa áfram innan þingflokksins.
36%50%
HREINSISTARF HAFIÐ Á BLÖNDUÓSI Stór hluti af um fimm þúsund fermetra atvinnuhúsnæði brann til kaldra kola á Blönduósi í
fyrrinótt. Tjónið er metið á ríflega hundrað milljónir króna. Gaskútar sprungu og reykurinn náði á Skagaströnd. Sjá síðu 4
Meistaradeildin í gær:
Þrenna hjá
Rooney í
fyrsta leik
FÓTBOLTI Enska undrabarnið Way-
ne Rooney var með engan svið-
skrekk á frumsýningu sinni á
Old Trafford í gær. Rooney skor-
aði þrennu í 6-2
sigri Manchest-
er United á
tyrkneska lið-
inu Fenerbahce
í Meistaradeild
Evrópu. Roon-
ey lék þarna
sinn fyrsta leik
eftir meiðslin
sem hann varð
fyrir á Evrópumótinu í Portúgal í
sumar og þrátt fyrir þriggja
mánaða fjarveru tók það hann
aðeins 17 mínútur að komast á
blað. Öll mörk kappans voru
snilldarlega útfærð og það síð-
asta skoraði hann beint úr auka-
spyrnu. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
SÉRBLAÐ UM
BÍLA FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU
Í DAG
Lúther Gestsson:
Jeppaklúbbur fyrir
alla jeppa
WAYNE ROONEY