Fréttablaðið - 02.10.2004, Blaðsíða 40
28 2. október 2004 LAUGARDAGUR
Klapparstígurinn hefuralltaf talist til verslunar-gatna en hefur þó í gegn-
um árin sveiflast upp og niður í
verslanafjölda. Nú er hann í enn
einni uppsveiflunni og má segja
að hann sé nýja „hip“ gatan í mið-
borg Reykjavíkur. Þarna hefur
sprottið upp fjöldinn allur af
skemmtilegum litlum verslunum,
galleríum og bókabúðum og ein-
nig leynast ennþá gömul fyrir-
tæki sem hafa verið staðsett
þarna í áraraðir. Það fyrirtæki
sem hefur verið þarna lengst af
þeim og Klapparstígurinn er lík-
lega þekktastur fyrir er Rakara-
stofan en hún hefur verið í göt-
unni öll sín ár, sem eru nú orðin 86
talsins.
„Heildarmynd götunnar hefur
breyst ansi mikið þó þetta hafi í
raun alltaf verið verslunargata. Í
fyrstu voru bara heildsölur hér og
m.a. var Ásbjörn Ólafsson heild-
sali til húsa hér í götunni. Á hverj-
um morgni rölti hann yfir götuna á
náttsloppnum og fékk rakstur hér
á rakarastofunni,“ segir Sigurpáll
Grímsson, einn eigenda stofunnar.
Sigurpáll segir rakarastofuna
vera að sækja í sig veðrið og alltaf
að bætast við nýir og nýir
fastakúnnar. „Ætli svona gamlar
rakarastofur séu ekki bara í tísku
núna hjá unga fólkinu.“
Einnig eru mörg fyrirtæki sem
rétt hafa fengið smjörþefinn af
Klapparstígnum miðað við Rak-
arastofuna. Þau eru m.a. græn-
metisstaðurinn Garðurinn, lista-
verkabúðin Nonnabúð sem hefur
m.a. verið vinsæl hjá stjörnum
sem heimsækja landið, búðin
Ranimosk sem býður upp á notaða
muni og íslenska hönnun ásamt
innfluttum vörum og fornbókasal-
inn Gvendur dúllari sem dregur
heiti sitt af förumanni sem var
frægur fyrir þá iðju sína að setja
puttann í eyrað á sér og söngla
eða dúlla. Þegar komið er hinum
megin við Grettisgötu eru fleiri
nýgræðingar, Bleika dúfan er nýtt
bóka- og netkaffi, fataverslunin
Spútnik sem er flestum íslenskum
ungmennum orðin kunn hefur ný-
lega flutt sig á Klapparstíginn
sem og fornbókaverslunin Bókin
Antikvariat sem hlýtur að fylla
alla yndislegri nostalgíu tilfinn-
ingu með sterkri lykt af gömlum
bókum. Handan við Hverfisgötu
er svo nýuppsprottin hárgreiðslu-
stofan Gel sem einnig heldur uppi
galleríi og einbeitir sér að koma
ungum listamönnum á framfæri.
Á móti henni er svo annað gallerí
og það eina á landinu sem sýnir
einungis ljósmyndir.
Auk þessara grænjaxla og ald-
ursforseta Klapparstígsins má
þar einnig finna verslunina Fífu,
Gallerí i8, vídeóleigu, skemmti-
staði, antíkbúðir, hótel, matsölu-
staði, snyrtivöruverslun, heilsu-
búð, dúkabúð og eflaust leynist
eitthvað fleira í krókum og
kimum þessarar fallegu götu.
Heildarmynd Klapparstígsins er
orðin mjög skemmtileg þar sem
þar er að finna gömul og falleg
hús sem mörg hver eru friðuð inn-
an um yngri og nýtískulegri hús.
Reynt hefur þó verið að halda
gamla svipnum og sumir hlutar
götunnar hafa haldist nánast
óbreyttir í áraraðir.
Skemmtilegt andrúmsloft og
menningarleg stemning eru að
verða einkennandi fyrir Klappar-
stíginn, sem er jafnvel orðin gata
listaspíra og lestrarhesta. Fjölda-
margt er í gangi á þessari gömlu
verslunargötu enn í dag þrátt
fyrir kringlur og annað sem hefur
bæst í hópinn síðan í gamla daga
og verslunareigendur horfa
björtum augum fram á veginn.
Það ætti að gleðja sem flesta sem
er annt um miðbæinn okkar að
hann virðist alls ekki vera á nið-
urleið. Laugavegurinn og hliðar-
göturnar virðast hlaða á sig gall-
eríum, fornbókabúðum, búðum
með notaða muni og hönnuðabúð-
um sem passa alls ekki eins vel
inn í verslunarmiðstöðvarnar.
Þetta er það sem gefur Laugaveg-
inum þá sérstöðu sem hann þarf
til að halda verslunarlífinu gang-
andi þar. Því er um að gera að
halda þessari uppsveiflu í gangi,
leggja leið sína sem oftast í mið-
bæinn og greinilega ekki síst á
Klapparstíginn.
hilda@frettabladid.is
Á KLAPPARSTÍG
ALLT AÐ GERAST