Fréttablaðið - 03.10.2004, Blaðsíða 37
Sauðkindur á sunnudagsrölti.
SJÓNARHORN
30. apríl 2004 FÖSTUDAGUR12
? VISSIR ÞÚ ...
...að Neró, keisari Rómaveldis, sem dó
árið 68 eftir Krist, spilaði meistaralega
vel á sekkjapípu?
...að flautur háttsettra manna í Inka-
veldi voru búnar til úr handleggjum og
sköflungum úr óvinum?
...að hinn breski Oskar Keysell beit í
hamborgara og fann demant sem var
tvö þúsund dollara virði?
...að stysta erfðaskrá sögunnar var skilin
eftir árið 1995 af Bimla Risha í Delhí á
Indlandi en þar stóð „Allt til sonar“?
...að fólk í Bandaríkjunum eyðir tíu millj-
ónum dollara á dag í kartöfluflögur?
...að Thurber Brockband í Reno í
Bandaríkjunum fann nál í heystakki á
níu klukkustundum?
...að árið 1995 seldist breskt penní frá
árinu 1933 fyrir fjörutíu þúsund doll-
ara á uppboði í London?
...að Paragvæ í Suður-Ameríku er eina
landið sem notar ekki peninga úr
málmi?
Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur finnst eig-
inlega ekkert slæmt við sunnudaga.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir feg-
urðardrottning fílar sunnudaga.
Hvað er best við sunnudaga?
Hvað þeir eru afslappaðir, maður
sefur út, vaknar í rólegheitum, fær
sér góðan morgunmat, kíkir í Frétta-
blaðið og tekur daginn rólega. Það
er engin pressa. Þetta eru líka dagar
fyrir fjölskylduna. Svo eru sunnudag-
ar góðir bíódagar og fínir til að klára
í rólegheitum það sem ekki náðist í
vikunni ef mikið var að gera.
En verst? Að þeir eru bara einu
sinni í viku.
SUNNUDAGAR
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM