Fréttablaðið - 05.10.2004, Blaðsíða 1
● landsliðshópurinn klár
Íslenska knattspyrnulandsliðið:
▲
SÍÐA 30
Einn nýliði í hópnum
hjá Ásgeiri og Loga
● í stjórnmálum
Jón Ólafsson:
▲
SÍÐA 39
Hlutverk
lyga
● stjórna fræga fólkinu
Sveppi, Auddi og Pétur:
▲
SÍÐA 38
70 mínútur
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
ÞRIÐJUDAGUR
MÁLSTOFA Í Öskju efnir Ökonomia, fé-
lag hagfræðinema, til málstofu í hádeginu
þar sem rætt verður um hugsanlegar
breytingar á lögum um hlutafélög.
DAGURINN Í DAG
5. 0któber 2004 – 272. tölublað – 4. árgangur
● heilsa
Tækjasalurinn
minn staður
Þrúður Vilhjálmsdóttir:
VERKFALL KENNARA Launanefnd
sveitarfélaganna bað um frest á fundi
kennara upp úr klukkan sex í gærkvöldi.
Launanefndin vildi fara yfir hugsanlegar
leiðir til að mæta kröfu kennara um að
fella svokallaða launapotta úr kjarasamn-
ingunum. Sjá síðu 2
RÍKIR GRÆÐA MEST Einstaklingur
með eina milljón í laun sparar rúmar
270.000 krónur á skattalækkun ríkis-
stjórnarinnar miðað við útreikninga Al-
þýðusambands Íslands. Framkvæmda-
stjóri þess telur lækkunina lítt gagnast
tekjulágum. Sjá síðu 6
KOSTNAÐARAUKI Gert er ráð fyrir að
útgjöld embættis forseta Íslands hækki um
20,6 prósent á næsta ári samkvæmt fjár-
lagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Fjárveiting
til forsetaembættisins verður 154,4 milljón-
ir króna. Sjá síðu 8
VÖRUÚRVAL Í RÍKINU Vöruúrval í
verslunum Áfengis- og tóbaksverslunar
ríkisins er ekki háð mati starfsmanna
hennar heldur ræðst það af vali kaup-
enda. Sjá síðu 10
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
HEILBRIGÐISMÁL Fyrir liggur að
skera þarf niður þjónustu á Land-
spítala - háskólasjúkrahúsi eftir
að ljóst varð að sparnaðarkrafa
stjórnvalda á næsta ári nemur í
heild 6-700 milljónum króna, að
sögn Önnu Lilju Gunnarsdóttur,
starfandi forstjóra LSH. Fram-
kvæmdastjórn spítalans kemur
saman í dag til að fara yfir málið
og setjast að nýju yfir tillögur um
hvernig væntanlegum niður-
skurði verður háttað.
„Miðað við útkomuspá ársins í
ár lítur út fyrir að við munum
þurfa að draga saman á næsta ári
um 6-700 milljónir króna,“ sagði
Anna Lilja. Hún sagði að spítalan-
um hefði upphaflega verið gert að
spara um 1.400 milljónir króna á
þessu ári og því næsta. Sú krafa
hefði verið minnkuð um tæpar 500
milljónir á næsta ári. Af sparnað-
arkröfunni í ár hefði tekist að
spara tæplega tvo þriðju hluta.
Eftir stæðu 300-350 milljónir í
halla á árinu. Í fjárlögum væri
gert ráð fyrir ámóta upphæð í
niðurskurði á næsta ári, þannig að
samtals væri krafan upp á 6-700
milljónir.
„Við báðum um að sparnaðar-
krafan sem gerð var í ár yrði lát-
in duga,“ sagði Anna Lilja. „Jafn-
framt að við fengjum rétta upp-
færslu á s-merktu lyfin, sem
hefði þá verið um 10 prósent í
staðinn fyrir 3,5 eins og gert er
ráð fyrir í fjárlögum. Auðvitað
erum við þakklát fyrir að sparn-
aðarkrafan er minnkuð en hún er
erfið samt sem áður. Við töldum
að við myndum geta haldið
nokkurn veginn svipaðri þjón-
ustu ef við hefðum ekki þurft að
lenda í niðurskurði á næsta ári
umfram þessar 300-350 milljónir,
sem standa út af borðinu.“ ■
Heildarsparnaðarkrafa stjórnvalda fyrir næsta ár er 6-700 milljónir:
Þjónusta á LSH verður skorin niður
STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra flutti fyrstu stefnu-
ræðu sína á Alþingi í gærkvöld. Í
ræðu sinni sagði hann að stjórnar-
flokkunum hefði tekist að koma á
stöðugleika í efnahagsmálum,
minnka atvinnuleysi og auka kaup-
mátt launþega verulega. Lýsti
hann því markmiði að kaupmáttur
myndi hafa aukist um 50% frá
valdatöku stjórnarflokkanna þeg-
ar nýtt kjörtímabil hæfist.
Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, sagði
að það sem væri athyglisverðast í
ræðu Halldórs Ásgrímssonar
væri það sem ekki væri í henni.
„Ræðu hans verður minnst fyrir
þögnina um Írak, þögnina um ger-
eyðingarvopnin, þögnina um
ábyrgð Íslendinga, ábyrgð hans
sjálfs á ástandinu þar.“
Davíð Oddsson, utanríkisráð-
herra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, sagði að stjórnarand-
stöðuflokkunum hefði aðeins tek-
ist að komast að samkomulagi um
einn hlut á samráðsfundi sínum
fyrir helgi og það væru Íraksmál-
in, sem væru nógu langt frá
heimahögunum. Kvaðst Davíð
stoltur af því að Ísland hefði lagt
sitt lóð á vogarskálarnar til að
hrekja harðstjórann Saddam
Hussein frá völdum.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, sagðist verða að
endurtaka þau orð sem hann hefði
oft látið falla að stefnuræðan væri
sú ömurlegasta sem hann hefði
heyrt. Sigurjón Þórðarson, þing-
maður Frjálslynda flokksins,
sagði að stefnuræðan bæri þess
merki að engu skipti hver væri
forsætisráðherrann. Halldór og
Davíð hefðu sömu stefnu þótt sá
fyrrnefndi væri stundum fylgj-
andi aðild að Evrópusambandinu.
Hart var tekist á um málefni ör-
yrkja og kennaraverkfallið. Hall-
dór Ásgrímsson sakaði stjórnar-
andstöðuna um að vekja falsvonir
og jafnvel spilla líkum á lausn
kennaraverkfallsins með kröfum
um að ríkið hlypi undir bagga með
sveitarfélögunum til að hægt væri
að hækka laun kennara.
Sjá síður 2 og 4.
a.snaevarr@frettabladid.is
Tekist á um skattamál,
kennara, öryrkja og Írak
Halldór Ásgrímsson sagði enga ástæðu til róttækra breytinga á stjórnarstefnunni í fyrstu stefnu-
ræðu sinni sem forsætisáðherra á Alþingi í gærkvöld. Össur Skarphéðinsson gagnrýndi þögn
hans um Írak, en Davíð Oddsson sagðist stoltur af stuðningi Íslands við Bandaríkin.
JÓMFRÚARRÆÐA HALLDÓRS
Halldór Ásgrímsson flutti fyrstu stefnuræðu sína sem forsætisráðherra á Alþingi í gærkvöld.
25-49 ára
Me›allestur
72%
50%
Fréttablaðið Morgunblaðið
Allt landið
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups ágúst '04
HVASSVIÐRI ALLRA AUSTAST
Víðast stífur vindur en lægir vestan til síð-
degis. Skúrir eða slydduél á Norðaust-
urlandi en bjart sunnan til. Hiti 1-8 stig,
hlýjast suðaustan til. Sjá síðu 6.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
LANDSPÍTALI-HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
Á næsta ári stefnir í mikinn niðurskurð
þjónustu á sjúkrahúsinu.
Faldbúningurinn:
Ber að sýna
virðingu
ÞJÓÐBÚNINGURINN Íslenski faldbún-
ingurinn hvarf úr almennri notkun
um miðja 19. öld og lýsingar af hon-
um hafa aðallega fengist af teikn-
ingum erlendra ferðamanna, auk
nokkurra faldbúninga sem hafa
varðveist. Talsmenn Heimilisiðnað-
arfélagsins, sem ætlar að kynna
þessa arfleið í kvöld, segja mikil-
vægt að búningurinn sé borinn rétt.
Á síðustu fjórum árum hefur áhuga-
mannahópur innan Heimilisiðnað-
arfélags Íslands rannsakað og yfir-
farið þessa gömlu búninga og leitað
leiða til að vinna þá rétt þegar kem-
ur að sniði, skreytingum og frá-
gangi. Alls hafa tuttugu íslenskar
konur saumað sinn eigin faldbúning
á námskeiðum.
Sjá síðu 38
VIÐSKIPTI Hannes Smárason, fyrr-
um aðstoðarforstjóri hjá deCode,
ræður nú einn nærri þriðjungs-
hlut í Flugleiðum. Hann keypti
hlut Jóns Helga Guðmundssonar í
Oddaflugi en þeir áttu saman
Oddaflug sem gerðist kjölfestu-
fjárfestir í janúar.
Jón Helgi og Hannes stóðu
saman að nokkrum fjárfestingum
en vinna nú að því að skipta þeim
upp. Stærsta eign þeirra er ríf-
lega fjögurra prósenta hlutur í
KB banka sem metinn er á um
tólf milljarða.
Sjá síðu 24.
Breytingar hjá Flugleiðum:
Hannes einn í Oddaflugi
VEÐRIÐ Í DAG