Fréttablaðið - 06.10.2004, Blaðsíða 38
26 6. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
„Þjálfarastaðan hjá KR er ekkert meira spennandi en
hvað annað.“
Guðjón Þórðarson í spjalli við Fréttablaðið í gær.
Við hrósum...
...þeim metnaði sem ríkir innan Íshokkísambands Íslands. Ekki færri en fjögur landslið
munu keppa á heimsmeistaramótum erlendis á næsta ári og er eitt kvennalið þar á með-
al. Er þetta lýsandi dæmi um hvað hægt er að framkvæmda með vilja, metnaði og mikilli
vinnu en mikill vöxtur er í skautaíþróttum um land allt og ekki er langt síðan nýtt lið hóf
þáttöku á Íslandsmótinu í íshokkí.
sport@frettabladid.is
[ LEIKIR GÆRDAGSINS ]
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
3 4 5 6 7 8 9
Miðvikudagur
OKTÓBER Grindavík kemur til greina
Guðjón Þórðarson segir vel koma til greina að þjálfa knattspyrnulið Grindavíkur. Skýrist á
næstu tíu dögum hvort hann tekur við liðinu. Guðjón ræddi líka við KR.
■ ■ LEIKIR
19.15 Grindavík og KR mætast í
Grindavík í 1. deild kvenna í
körfubolta.
19.15 Njarðvík og Keflavík
mætast í Njarðvík í 1. deild
kvenna í körfuknattleik.
20.00 Haukar og Fram mætast á
Ásvöllum í norðurriðlinum hand-
boltadeildar karla.
■ ■ SJÓNVARP
18.20 Olíssport á Sýn.
19.35 European PGA Tour á Sýn.
Sýnt frá móti á evrópsku PGA-
mótaröðinni í golfi.
20.25 UEFA Champions League á
Sýn. Útsending frá leik Arsenal og
Bayern München í meistaradeild
Evrópu árið 2000.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.20 Handboltakvöld á RÚV. Sýnt
frá handboltadeildum karla og
kvenna.
23.15 X-Games á Sýn.
Ofurhugaleikar.
WAYNE ROONEY Á listanum yfir 35
bestu knattspyrnumenn heims árið 2004.
Knattspyrnumaður ársins:
Sjö frá Real
Madrid
FÓTBOLTI Sjö leikmenn spænska
stórliðsins Real Madrid eru á list-
anum yfir þá 35 leikmenn sem Al-
þjóða knattspyrnusambandið hef-
ur tilnefnt fyrir kjör knattspyrnu-
manns ársins hjá sambandinu.
Englendingarnir David Beckham
og Michael Owen, Brasilíumenn-
irnir Ronaldo og Roberto Carlos,
Frakkinn Zinedine Zidane, Portú-
galinn Luis Figo og Spánverjinn
Raul gera allir tilkall til þessa eft-
irsótta titils.
Hinn átján ára gamli Wayne
Rooney er einnig á listanum en
ásamt honum eru Ruud van Nist-
elrooy, Cristiano Ronaldo og Ryan
Giggs frá Manchester United.
Þeir sem þykja líklegastir til að
hreppa titilinn eru hins vegar Thi-
erry Henry hjá Arsenal og Brasil-
íumaðurinn Ronaldinho hjá
Barcelona en hann hefur farið á
kostum á árinu. Tilkynnt verður
um þrjá efstu í nóvember en
knattspyrnumaður ársins verður
valinn 20. desember í Zürich. ■
ÞESSIR ERU TILNEFNDIR
Adriano, Inter Milan Brasilíu
Roberto Ayala, Valencia Argentínu
Michael Ballack, B. München Þýskalandi
Milan Baros, Liverpool Tékklandi
David Beckham, Real Madrid Englandi
Gianlugi Buffon, Juventus Ítalíu
Cafu, AC Milan Brasilíu
Cristiano Ronaldo, Man. Utd Portúgal
Deco, Barcelona Portúgal
Didier Drogba, Chelsea Fílabeinsströnd.
Samuel Eto’o, Barcelona Kamerún
Luis Figo, Real Madrid Portúgal
Steven Gerrard, Liverpool Englandi
Ryan Giggs, Man. Utd Wales
Thierry Henry, Arsenal Frakklandi
Zlatan Ibrahimovic, Juventus Svíþjóð
Oliver Kahn, B. München Þýskalandi
Kaka, AC Milan Brasilíu
Frank Lampard, Chelsea Englandi
Henrik Larsson, Barcelona Svíþjóð
Roy Makaay, B. München Hollandi
Paolo Maldini, AC Milan Ítalíu
Pavel Nedved, Juventus Tékklandi
Alessandro Nesta, AC Milan Ítalíu
Michael Owen, Real Madrid Englandi
Robert Pires, Arsenal Frakklandi
Raul, Real Madrid Spáni
Roberto Carlos, Real Madrid Brasilíu
Ronaldinho, Barcelona Brasilíu
Ronaldo, Real Madrid Brasilíu
Wayne Rooney, Man. Utd Englandi
Andriy Shevchenko, AC Milan Úkraínu
Ruud van Nistelrooy, Man. Utd Hollandi
Theodoros Zagorakis, Bologna Grikkl.
Zinedine Zidane, Real Madrid Frakkl.
FÓTBOLTI Þær sögusagnir hafa verið
lengi á kreiki að Guðjón Þórðar-
son sé á leið til Íslands að þjálfa á
nýjan leik. Hann var fyrst orðað-
ur við KR en eftir að félagið réð
Magnús Gylfason hefur Guðjón
þráfaldlega verið orðaður við lið
Grindavíkur. Jónas Þórhallsson,
formaður knattspyrnudeildar
Grindavíkur, staðfesti í samtali
við Fréttablaðið í gær að forsvars-
menn félagsins hefðu rætt við
Guðjón.
„Við höfum heyrt í Guðjóni og
við ætlum að gefa okkur tíu daga
til þess að klára þetta mál,“ sagði
Jónas en Guðjón kemur einmitt
heim í næstu viku til þess að
fylgjast með leik Íslands og Sví-
þjóðar. Hann mun síðan setjast
niður með forráðamönnum
Grindavíkur eftir leikinn og
fljótlega eftir það kemur í ljós
hvort Grindavík nær að landa
þessum sigursæla þjálfara.
„Við höfum sett Guðjón í for-
gang hjá okkur og ætlum ekki
að ræða við neina aðra þjálf-
ara fyrr en það liggur fyrir
hvort hann kemur til okkur.
Ég er hæfilega bjartsýnn á
að fá Guðjón til starfa hjá
okkur,“ sagði Jónas.
Fréttablaðið náði í
skottið á Guðjóni í gær en
hann er staddur á
Englandi. Við spurðum
hann út í stöðu mála.
„Ég hef talað við
Grindavík og rætt málin
við þá. Þær viðræður
eru ekki komnar á neitt
alvarlegt stig en
Grindavík er vissulega
kostur í stöðunni,“ sagði
Guðjón og bætti
við að annars
væri lítið annað
um málið að
segja. Hann
sagði lítið að
gerast á
l e i k -
mannamarkaðnum á Englandi og
að hann hefði ekki rætt við nein
félög þar í landi upp á síðkastið.
Grindavík er ekki eina liðið á
Íslandi sem hefur rætt við Guð-
jón síðustu vikur því hann var ein-
nig í sambandi við KR-inga áður
en þeir réðu Magnús Gylfason.
„Ég talaði aðeins við KR-ing-
ana enda þekki ég menn eins og
Jónas Kristinsson þar frá því ég
starfaði fyrir félagið á sínum
tíma,“ sagði Guðjón en Jónas
Kristinsson, formaður KR-
Sports, hefur neitað því að hafa
rætt við Guðjón um að taka
starfið að sér. Því var Guðjón
spurður að því hvort það hefði
verið rætt að hann tæki að
sér þjálfun liðsins?
„Það var hluti af því
sem við ræddum um. Það
fór samt aldrei á neitt
stig. Annars á ég oft gott
spjall við KR-inga um ým-
islegt. Samt aðallega um fótbolta
enda eru þeir KR-ingar sem ég
þekki mjög áhugasamir um fót-
bolta,“ sagði Guðjón en hefði
hann viljað taka að sér KR-lið-
ið? „Alveg eins. Ef maður
kemur til Íslands til þess að
starfa þá eru ákveðnir mögu-
leikar í stöðunni en þjálf-
arastaðan hjá KR er ekkert
meira spennandi en hvað
annað,“ sagði Guðjón
Þórðarson.
henry@frettabladid.is
Tekur Viggó Sigurðsson eða Geir Sveinsson við íslenska handboltalandsliðinu?
Málið klárast á næstu dögum
HANDBOLTI Stjórn Handknattleiks-
sambands Íslands mun ganga frá
ráðningu nýs landsliðsþjálfara í
síðasta lagi í byrjun næstu viku.
Þetta staðfesti Guðmundur Ingv-
arsson, formaður HSÍ, í samtali
við Fréttablaðið í gær. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins stendur
valið á milli Viggós Sigurðssonar
og Geirs Sveinssonar eins og upp-
haflega var talið.
„Það er ýmislegt í gangi hjá
okkur,“ sagði Guðmundur Ingv-
arsson leyndardómsfullur að-
spurður um stöðu mála. „Við klár-
um þetta í byrjun næstu viku þótt
ég hefði helst kosið að klára þetta
fyrr. Það gæti reyndar vel farið
svo en þetta verður klárað í næstu
viku í síðasta lagi.“
Guðmundur vildi ekki stað-
festa við hverja hefði verið rætt
en Fréttablaðið heyrði hljóðið í
Viggó Sigurðssyni og hann stað-
festi það að hann hefði rætt við
stjórn HSÍ.
„Ég ræddi við stjórnina á
mánudag og það var bara fínn
fundur. Mér fannst fundurinn
vera jákvæður. Þetta var alvöru
fundur þar sem farið var yfir
hluti eins og leikmannamál og
annað,“ sagði Viggó og bætti við
að hann hefði ekki hugmynd um
hverja aðra stjórn HSÍ hefði rætt
við eða hvort hann væri efstur á
lista stjórnarinnar. „Þeir sögðust
bara ætla að vera í sambandi við
mig aftur en ég hef ekkert heyrt
frá þeim enn sem komið er. Ég
veit ekkert hvað þeir ætla að
gera.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins ræddi stjórn HSÍ við
Geir Sveinsson í gær en ekki náð-
ist í Geir í gær þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir til þess að fá það stað-
fest. henry@frettabladid.is
VIGGÓ SIGURÐSSON Margverðlaunaður þjálfari og líklegur arftaki Guðmundar Guð-
mundssonar.
Á LEIÐ HEIM? Guðjón Þórðarson gæti tekið
við Grindvíkingum. Hann mun ræða við stjórn
Grindavíkur eftir landsleik Íslands og Svíþjóðar
í næstu viku.
NBA:
Scottie Pipp-
en hættur
KÖRFUBOLTI Körfuboltastjarnan
Scottie Pippen hefur tilkynnt
formlega ákvörðun sína að hætta
að spila körfuknattleik í NBA-
deildinni bandarísku. Pippen vann
sex NBA-titla á ferli sínum með
Chicago Bulls þar sem hann spil-
aði lengi við hlið Michael Jordan.
Síðar lék hann einnig tímabundið
með Portland og Houston en sneri
aftur til Chicago á síðasta ári. Þar
spilaði hann aðeins rúmlega 20
leiki áður en hann varð að fara í
uppskurð vegna hnémeiðsla. ■
SS-bikarkeppni kvenna í handbolta
Fram - KA/Þór 30 - 23
FH - Haukar 30 - 34
Víkingur 2 - Víkingur 14 - 48
1. deild karla í körfubolta
Ármann/Þróttur - Breiðablik 61 - 85
HAUKAR UNNU HAFNARFJARÐAR-
SLAG Þrátt fyrir góðan endasprett FH
unnu Haukastúlkur leikinn með fjórum
mörkum.