Fréttablaðið - 12.10.2004, Blaðsíða 1
SÉRBLAÐ
UM LANDSLEIK
ÍSLENDINGA OG SVÍA
Í miðju Fréttablaðsins í dag
● landsleikur við svía
Eiður Smári Guðjohnsen:
▲
Sérblað
Skuldum þjóðinni
að gera betur
● í samstarfi
Góðlátlegt grín:
▲
SÍÐA 34
70 mínútur
og Quarashi
● á gauknum
Rafsveppurinn:
▲
SÍÐA 28
Brain Police heldur
hlustunarpartí
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
ÞRIÐJUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÚRKOMUSAMT Á LANDINU Tals-
verð rigning sunnan og vestan og skúrir
fyrir norðan og austan. Hvessir síðdegis á
Vestfjörðum. Milt í veðri. Sjá síðu 6
12. október 2004 – 279. tölublað – 4. árgangur
● heilsa
Allir
velkomnir
Sundkórinn:
BANKI STEFNIR VÉLABORG KB
banki stefnir fyrrum eigendum Véla og
þjónustu. Eigendurnir hafa stofnað nýtt fyrir-
tæki og keppa við bankann um umboðin
sem losnuðu við gjaldþrotið. Sjá síðu 2
AFVOPNUN Í ÍRAK Gert hefur verið
samkomulag við uppreisnarmenn sjía-
klerksins Muqtada al-Sadr. Tugir sprengju-
varpa, sprengiefni og byssur hafa verið af-
hent íröskum stjórnvöldum í Sadr-borg.
Sjá síðu 4
EIGENDUR EFNIS ÓFUNDNIR
Rúmlega tvítugur Lithái var dæmdur í fjórt-
án mánaða fangelsi eftir að hann var tek-
inn með tæp þrjú hundruð grömm af
kókaíni í líkamanum. Hann er talinn vera
burðardýr. Eigendur efnisins eru ófundnir.
Sjá síðu 6
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 30
Tónlist 30
Leikhús 30
Myndlist 30
Íþróttir 26
Sjónvarp 32
VIÐSKIPTI Ævintýraleg hækkun ís-
lenskra hlutabréfa undanfarin
misseri er nánast einsdæmi. Úr-
valsvísitala Kauphallar Íslands
hefur slegið hvert metið á fætur
öðru.
Vísitalan hefur hækkað um 88
prósent það sem af er ári. Hækk-
un hennar frá 8. október 2003 til
sömu dagsetningar í ár er 114 pró-
sent.
Sérfræðingar greiningardeilda
bankanna eru sammála um að
verð hlutabréfa sé hátt og að
áhættan af hlutabréfakaupum fari
vaxandi. Þrátt fyrir þetta halda
bréfin áfram að hækka og fjár-
festar halda áfram að kaupa.
Markaðurinn einkennist af
fögnuði yfir góðum fréttum og
spákaupmennsku. Fjárfestar
treysta á að næsti maður sé tilbú-
inn að kaupa fyrir hærra verð á
morgun en greitt var fyrir í gær.
Ekki er hægt að spá fyrir um
hvernig markaðurinn leiðrétti sig
gagnvart miklum hækkunum að
undanförnu. Snörp lækkun er ekki
í sjónmáli, en afar litlar líkur á að
hlutabréf hækki með sama hætti
og verið hefur undanfarin miss-
eri.
sjá síðu 18
Íslensk framleiðsla
skipar mikilvægan
sess í þjóðlífinu og
mun í vaxandi mæli
standa undir velferð
þjóðarinnar
VERKFALL „Ef ríkisstjórninni kemur
ekki við hvað er að gerast í skólum
landsins þá legg ég til að mennta-
málaráðuneytið verði lagt niður og
það strax,“ segir Eiríkur Jónsson,
formaður Kennarasambands Ís-
lands. Sorglegt sé að heyra ráð-
herra lýsa því yfir að þeim komi
verkfall kennara ekki við.
Hátt á annað þúsund kennara
mætti á baráttufund kennarafé-
laga höfuðborgarsvæðisins í Há-
skólabíói í gær. Á fundinum
greindu forystumenn frá stöðu
samningaviðræðnanna við sveit-
arfélögin, en þær eru í hnút.
Finnbogi Sigurðsson sagði full-
trúa launanefndar sveitarfélag-
anna gera sér vonir um að loka
samningi á sömu launahækkunum
og samið var um við ASÍ-félögin
fyrr á þessu ári:
„Með öðrum orðum á að reyna
að troða okkur í sama pokann þó
löngu sé ljóst að forsendur þeirra
samninga eru brostnar.“
Finnbogi segir kennara hafa
verið knúna eftir margra mánaða
samningaviðræður að leggja nið-
ur störf. „Þetta gerðum við ekki
að gamni okkar, heldur vegna þess
að lítið sem ekkert hefur verið
komið til móts við sanngjarnar og
hófstilltar kröfur okkar. [...] Skila-
boð okkar til launanefndar sveit-
arfélaganna eru einfaldlega þessi:
Farið nú heim í baklandið ykkar
og sækið meiri peninga.“
- gag
Farið og sækið
meiri peninga
Forysta kennara neitar að samþykkja samninga á brostnum forsendum.
Sorglegt sé að ríkisstjórnin segi sér ekki koma við hvað gerist í grunn-
skólunum. Hátt í tvö þúsund kennarar mættu á fund kennarafélaga.
Ísraelsþing sett:
Öskruðu á
Sharon
ÍSRAEL, AP Harðlínuþingmenn köll-
uðu ókvæðisorð að Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, og þing-
menn samþykktu ályktun þar sem
þeir höfnuðu málflutningi hans en
hann hélt fast í þá stefnu sína að
rýma byggðir landtökumanna á
Gaza áður en ár er liðið.
Sharon sætti mikilli gagnrýni á
setningardegi ísraelska þingsins í
gær en stjórn hans hélt þó velli þeg-
ar tvær vantrauststillögur á hana
voru bornar fram í þinginu. Sharon
sagðist ætla að leggja tillögu sína
um brotthvarf frá Gaza fyrir þing-
ið til samþykktar 25. október og
frumvarp um bætur til handa land-
tökumönnum eftir það. ■
Stöðugt met í Kauphöllinni:
Hlutabréfamarkaður á háflugi
Herskipin
fara í nótt
HERSKIP Enn eru eftir skip úr rúss-
neska flotanum fyrir norðaustan
land. Herskipið Pétur mikli held-
ur væntanlega á brott í nótt, ef
marka má orð skipherrans við
Landhelgisgæsluna í gærdag,
þegar hann sagðist ætla af stað
eftir 36 tíma.
Landhelgisgæslan hefur fylgst
með rússnesku herskipunum frá
29. september. „Á sunnudags-
morguninn lét skipherrann á flug-
móðurskipinu Kuznetsov aðmíráli
skipherrann á varðskipinu Tý vita
að skipin færu af svæðinu eftir 24
tíma. Átta tímum síðar hélt flug-
móðurskipið á brott. Tvö önnur
skip héldu af svæðinu í morg-
un.ÝEftir varð herskipið Pétur
mikli, eitt birgðaskip og tvö drátt-
arskip,“ segir Gæslan.
Sjá síðu 10
KONUR OG LEIKHÚS Milli klukkan
tólf og eitt í dag flytur Karen Theodórsdótt-
ir mannfræðingur fyrirlesturinn „Kynja-
heimur leikhúsanna“ um stöðu íslenskra
kvenleikstjóra. Fyrirlesturinn fer fram í Há-
skóla Íslands í stofu 101 í Lögbergi.
ARIEL SHARON
Vill hefja brotthvarf frá Gaza næsta sumar
og ljúka því á tólf vikum.
HÁTÍÐARSALUR HÁSKÓLABÍÓS TROÐFULLUR „Það verður að standa vörð um stöðugleika,“ er það sem Eiríkur Jónsson segir svar
ráðamanna við launakröfum kennara. Hann spyr: „Hvaða fjandans stöðugleika? Er það stöðugleikinn í bensínverðinu? Er það stöðugleik-
inn í hækkun fasteignagjalda? Er það stöðugleikinn í skólagjöldum á háskólastiginu? Það eina sem hefur verið stöðugt hér síðustu mán-
uðina er veðrið.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI