Fréttablaðið - 12.10.2004, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 12.10.2004, Blaðsíða 24
„Allir leikmenn liðsins gera sér grein fyrir því að liðið hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar hafa verið,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði ís- lenska landsliðsins í knattspyrnu. Fram undan er erfiður leikur við Svía á morgun en íslenska liðið er sem stendur á botni áttunda riðils ásamt Möltu og þörfin orðin afar brýn að ná í stig ætli liðið sér að taka þátt í toppbaráttunni í riðlin- um. Mikið í húfi gegn Svíum Eiður er sjálfur bjartsýnn fyrir leikinn og á ekki von á að óvænt úrslitin úr leiknum við Möltu sitji í leikmönnum en fyrir fram var lagt upp með að næla í þrjú stig í þeim leik. „Það eina sem hægt er að gera þegar úrslit eru ekki að falla eins og best verður á kosið er að gleyma leiknum og horfa fram á veginn. Það er meðal annars mitt hlutverk sem fyrirliða að sjá til þess að aðrir leikmenn séu ekki að eyða of miklum tíma í fortíð- ina. Mér finnst persónulega að það hafi tekist enda eru allir leik- menn liðsins og þjálfarar sér vit- andi um að við skuldum íslensku þjóðinni að við gerum betur og það munum við sannarlega reyna gegn Svíum. Við komum til með að bíða okkar færis í leiknum. Sví- ar hafa á mörgum frábærum leik- mönnum að skipa og stigsmunur á þeirra liði og því íslenska og því finnst mér líklegt að við höldum okkur til baka og beitum skyndi- sóknum. Við verðum dýrvitlausir í leiknum því fyrir utan mikilvægi leiksins í riðlinum er þarna að auki um aðra Norðurlandaþjóð að ræða þannig að heiðurinn og stolt- ið í húfi er meira en ella. Við skuldum okkur sjálfum, Ásgeiri og Loga og þjóðinni allri að spila af okkar allra bestu getu þannig að hvernig sem leikurinn endar getum við borið höfuðið hátt. Fyr- ir utan leikinn gegn Ítalíu höfum við sem lið að undanförnu ekki sýnt hvað í okkur býr og því ætl- um við að breyta á morgun.“ Gengi landsliðsins Flestir knattspyrnuáhugamenn eru sammála um að íslenska landsliðið hafi staðið sig dapur- lega síðustu misseri en fyrir leik- inn gegn Möltu hafði liðið fallið um 30 sæti á árinu á styrkleika- lista Alþjóðaknattspyrnusam- bandsins. Fyrir utan vináttuleik- inn gegn Ítalíu sem vannst 2-0 hefur liðið ekki riðið feitum hesti frá viðureignum sínum um tíma. Eiður segir það klisjukennt en engu að síður staðreynd að ís- lenskir áhugamenn fari á stund- um offari í gagnrýni sinni á liðið. „Það virðast margir vera fljótir að gleyma því að yfirleitt erum við að berjast við þjóðir sem eru margfalt stærri en Ísland og hafa ríka hefð fyrir knattspyrnu. Þjóð- ir eins og Búlgaría og Ungverja- land hafa leikmenn innan sinna raða sem hafa spilað sem atvinnu- menn í langan tíma. Markmiðið er sett mjög hátt og auðvitað stendur hugur til að vinna alla leiki en það er stundum of mikil bjartsýni.“ Hvað fór úrskeiðis gegn Möltu Hvað varðar úrslitin gegn Möltu sem vægast sagt settu markmið Íslands í riðlinum í uppnám segir Eiður að barátta Möltumanna hafi vissulega komið á óvart. „Ég held að tímasetning hafi verið afar óheppileg fyrir okkur. Lið Möltu hafði tapað síðasta leik sínum fyrir Svíum með sjö mörkum og dagskipunin hjá þeim var einfald- lega að koma í veg fyrir að slíkt ætti sér stað aftur. Það var alveg sama hvað við reyndum, þeir voru öllum stundum með hálft lið- ið í vörn og börðust eins og ljón. Auðvitað má segja að það hafi verið fyrirsjáanlegt en án þess að ég ætli að afsaka okkur í þeim leik þá vitum við ósköp vel að við stóðum okkur ekki nógu vel. Það á við um leikmenn og þjálfara. Reyndin er sú að hvort sem um er að ræða hrós eða gagnrýni tökum við slíkt sem hópur og sú gagn- rýni á Ásgeir Sigurvinsson og Loga Ólafsson sem verið hefur uppi á jafn mikið við um okkur leikmennina. Ásgeir og Logi eiga minn stuðning allan og það sama gildir um aðra leikmenn liðsins. Þeir hafa báðir sinnt sínum störf- um fullkomlega.“ albert@frettabladid.is 2 12. október 2004 ÞRIÐJUDAGUR FR É TT A B LA Ð IÐ /D O M E N IC A Q U IL IN A EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN Í BARÁTTUNNI Gengi íslenska landsliðsins hefur ekki verið eins og best verður á kosið að undanförnu en hann lofar því að landsliðsmennirnir sýni þann baráttuvilja gegn Svíum sem gagnrýnendum finnst hafa vantað í mikilvægum leikjum. „Ásgeir og Logi eiga minn stuðning allan og það sama gildir um aðra leikmenn liðsins.· Fyrirliði íslenska landsliðsins, Eiður Smári Guðjohnsen, viðurkennir að hingað til hafi leikmenn liðsins ekki spilað eins og þeir geti best. Á því verði breyting á morgun þegar liðið mætir sjóðheitum Svíum á Laugardals- vellinum og lofar Eiður því að hvernig sem sá leikur fari gangi íslensku leikmennirnir af velli með höfuðið hátt. Skuldum íslensku þjóðinni að gera betur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.