Fréttablaðið - 19.10.2004, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 19.10.2004, Blaðsíða 22
Ef þú finnur fyrir mikilli streitu, reyndu þá að forðast erfitt fólk sem sogar úr þér alla orku. Reyndu frekar að slappa af, horfa á fyndna mynd í sjónvarpinu eða leika við köttinn þinn. SPARIFATNAÐUR Líkamsrækt er Íslendingum mjög hugleikin og allir vilja koma sér í gott form. Dagana 7. til 13. nóvember fer fram Íslandsmeistaramót Galaxy Fitness í Laugardalshöll. Enn er hægt að skrá sig í keppnina en skrán- ingarfrestur rennur út 1. nóvember. Á mótinu er dæmt eftir mörgum þáttum, eins og til dæmis vöðva- massa, sviðsframkomu, hári, fötum og brosi. Upplýsingar um mótið er hægt að finna á kraftsport.is og í síma 663 1111. Skráning er á herkules@internet.is. Fréttablaðið ákvað að fylgja tveim keppendum eftir á leið sinni á mótið og athuga hvað til þarf til að verða vaxtarræktarmeistari. „Núna er ég að taka mataræðið í gegn. Ég er að klippa út allan skyndibita eins og pítsur og hamborgara sem öllum finnst svo gott. Ég sleppi líka gosi og sælgæti og reyni að borða holl- an mat. Ég reyndar borða á Subway og Nings því þeir bjóða upp á góða heilsurétti. Það er það helsta sem breytist. Síðan er ég að auka hreyfingu og stunda frekar úthaldsþjálfun en styrktarþjálfun. Ég einbeiti mér ekki að því að lyfta þungu heldur auka úthald og tek frek- ar styttri æfingar og fleiri. Ég hef í raun og veru verið að búa mig undir þetta mót síðan á síð- asta móti fyrir ári síðan. Ég tók rispu þar sem ég keppti á átta mótum með sex mánaða milli- bili en ákvað að taka mér frí frá einu móti til að laga eitt og ann- að. Ég tók punktana sem dóm- arar gáfu mér á síðasta móti og lagaði það sem betur mátti fara. Það er orðið rútína hjá mér að fara á æfingu en auðvit- að er mótið alltaf í huganum. Fyrst og fremst er ég að gera þetta fyrir sjálfan mig.“ „Við erum búin að vera á sér- stöku mataræði í tólf vikur og nú er endaspretturinn að byrja, sem er langerfiðastur. Nú þarf ég að taka sífellt meira og meira út úr mataræðinu. Um þessar mundir er ég að taka út krydd, mjólkurvörur og allan aukasykur en lifi nær eingöngu á próteinum, hafragrauti, kjúklingabringum, grænmeti og ávöxtum. Ég reyni samt að hafa mataræðið frekar fjöl- breytt. Núna fer ég í ræktina sjö til níu sinnum í viku og reyni að brenna vel. Ég brenni þrisvar til fjórum sinnum í viku og lyfti síðan seinni partinn. Ég hef verið að móta vöðvana og skera mig niður og nú er komið að því að brenna fitunni í kring- um vöðvana. Þetta er mjög markviss þjálfun en ég æfi í fjörutíu til sextíu mínútur á dag því eftir það er ég orðin löt og æfingarnar skila engum ár- angri.“ Íslandsmeistaramótið í vaxtarrækt: Tveim keppendum fylgt eftir Hefur ekki keppt í eitt ár: Æfir fyrir sjálfan sig Nafn: Ívar Guðmundsson. Aldur: 38 ára. Markmið: Í raun og veru að vera í góðu formi og geta tekið þátt í svona mótum og náð góðum ár- angri. Ég hef lent fjórum sinnum í öðru sæti þannig að mér finnst það viðunandi árangur. Ívar byrjaði að lyfta að einhverju leyti fyrir fimmtán árum en hefur æft reglulega síðustu sjö ár. Nafn: Sólveig Einarsdóttir. Aldur: 27 ára. Markmið í keppninni: Að gera mitt allra besta svo ég komi sátt frá keppni. Auðvitað langar mig að komast áfram en það eru margir góðir keppendur þannig að ég geri mér engar vonir. Sólveig er búin að æfa af fullum krafti í tvö og hálft ár. Sólveig Einarsdóttir æfir nú af kappi fyrir Galaxy Fitness-keppnina. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Sérstakt mataræði í tólf vikur: Reynir að hafa matinn fjölbreyttan Þeir sem gengist hafa undir að- gerð á maga og þörmum í þeim til- gangi að losa sig við aukakílóin eiga á hættu að verða fyrir tauga- skaða í kjölfar aðgerðinnar. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem gerð var við sjúkrahús í Minnesota og fjallað er um rann- sóknina á fréttasíðu BBC. Rannsóknin sýnir að nokkrir sjúklingar kvarta undan sárs- auka, doða og ertingu eftir að hafa látið minnka á sér magann og stytta þarmana. Rannsakendur telja líklegast að skemmdirnar or- sakist af vannæringu vegna þess að líkaminn er ekki eins hæfur til að taka upp næringarefni eftir að- gerðina. Hægt er að koma í veg fyrir þessi vandræði með réttu fæðuvali í kjölfar aðgerðar. Í rannsókninni kemur fram að einn af hverjum sex sem gengust undir svona aðgerð urðu fyrir taugaskaða að einhverju leyti. Þeir sjúklingar sem höfðu fengið stífa ráðgjöf og eftirfylgni varð- andi fæðuval áttu yfirleitt ekki við vandamál að stríða. ■ Aðgerð gegn aukakílóum: Margir verða fyrir taugaskaða Margir láta minnka á sér maga og stytta þarma til að grennast en það getur haft al- varlegar afleiðingar í för með sér. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.