Fréttablaðið - 22.10.2004, Blaðsíða 19
19FÖSTUDAGUR 22. október 2004
SPÁNN, AP Foringja hryðjuverka-
mannanna sem myrtu nær 200
manns í hryðjuverkaárásunum í
Madríd í vor var sleppt úr fangelsi
fyrir mistök fyrir tveimur árum
síðan.
Allekema Lamari, einn sjö
manna sem sprengdu sig í loft upp
þegar lögreglan umkringdi þá 3.
apríl, er talinn hafa verið foringi
mannanna sem gerðu sprengju-
árásirnar á lestarstöðvum í
Madríd.
Lamari var fyrst handtekinn
árið 1997 vegna gruns um tengsl
við alsírsk hryðjuverkasamtök.
Fjórum árum síðar var hann
dæmdur til fjórtán ára fangelsis-
vistar. Í apríl 2002 ákvað undirrétt-
ur hins vegar að milda dóminn yfir
honum og sleppa honum úr haldi
tveimur mánuðum síðar nema
Hæstiréttur Spánar legðist gegn
því. Hæstiréttur hafnaði milduðum
dómi þremur vikum áður en sleppa
átti Lamari. Einhverra hluta vegna
tók það mánuð að koma þeim skila-
boðum hæstaréttar til lægra dóm-
stigsins og því var honum sleppt úr
haldi. ■
Ólympíuverðlaunahafi:
Auglýsir
sígarettur
KÍNA, AP Kínverski ólympíumeistar-
inn Xi Liang hefur samið við stærs-
ta tóbaksframleiðanda Kína um að
auglýsa sígarettur fyrirtækisins.
Xi skaust upp á stjörnuhimininn
þegar hann vann gullverðlaunin í
110 metra grindahlaupi á Ólympíu-
leikunum í Aþenu í sumar. Hann
varð fyrsti Kínverjinn til að vinna
spretthlaup á Ólympíuleikum og er
gríðarlega vinsæll í heimalandi
sínu. Talið er að 350 milljón Kín-
verjar reyki. Sjúkdómar sem tengj-
ast reykingum verða algengari og
er talið að tvær milljónir Kínverja
muni látast af völdum reykinga á
næstu tveimur áratugum. ■
Hryðjuverkamennirnir sem gerðu árásirnar í Madríd:
Forsprakka sleppt fyrir mistök
FLÝJA SPRENGINGUNA
Myndir af fólki á flótta undan sprengingum
á Atocha-lestarstöðinni í Madríd 11. mars
voru gerðar opinberar í vikunni.
HALDA Í TÚRBANANA
Jasvir og Bikramjit Singh neita að taka nið-
ur túrbanana sína í skóla og er því meinað
að mæta.
Íslamskar stúlkur:
Reknar út af
slæðunum
FRAKKLAND, AP Sjö stúlkur hafa
verið reknar úr frönskum skólum
vegna þess að þær neita að hlýða
lögum sem banna þeim að bera
íslamskar slæður í skólum.
Nokkur hundruð nemar, aðal-
lega íslamskar stúlkur en einnig
síkar, neituðu að virða bannið þeg-
ar það tók gildi í byrjun skólaárs en
flestir þeirra hafa síðar gengist inn
á að bera ekki slæður eða túrbana í
skólanum. Enn eru þó 72 dæmi um
nemendur sem neita að fara að
banninu og voru þeir fyrstu reknir
úr skóla í vikunni. „Þeir hafa eyði-
lagt líf mitt,“ sagði hin tólf ára
Khouloud í viðtali við Le Monde
eftir brottrekstur sinn. ■
25 ára fangelsi:
Verktaki
sakfelldur
TYRKLAND, AP Tyrkneskur bygginga-
verktaki hefur verið dæmdur í 25
ára fangelsi. Hann var fundinn
sekur um glæpsamlegt kæruleysi
við byggingu húsa sem hrundu í
jarðskjálfta fyrir fimm árum með
þeim afleiðingum að nær 200
manns létust. Alls létust 17 þúsund
manns í jarðskjálftanum.
Sérfræðingar sögðu að verktak-
inn Veli Gocer hefði blandað sjávar-
sandi og steinvölum saman við
steypu og notað blönduna til að
byggja hús. Saksóknarar kröfðust
sexfaldrar hámarksrefsingar, fimm
ára fyrir hvert sex húsa sem
hrundi. ■
Samkomulag:
Semja um
hjálparstarf
HJÁLPARSTARF ABC hjálparstarf
hefur samið við Þróunarsam-
vinnustofnun Íslands um sam-
starf í hjálparstarfi við fátæk og
munaðarlaus börn í fjórum lönd-
um þar sem Þróunarsamvinnu-
stofnunin starfar nú þegar.
Löndin eru Malaví, Mósambík,
Namibía og Úganda.
ABC hjálparstarf og Þróunar-
samvinnustofnunin vinna þegar
sameiginlega að hjálparstarfi í
Kitetikka í Úganda. Þar hafa fjár-
framlög stofnunarinnar verið not-
uð til byggingar heimavistar fyrir
munaðarlaus börn. Auk starfsemi
ABC hjálparstarfs starfa samtök-
in á Indlandi og í Filippseyjum. ■