Fréttablaðið - 25.10.2004, Side 1

Fréttablaðið - 25.10.2004, Side 1
Sv hornið og Akureyri Me›alnotkun fjölmiðla Konur Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups mars og ágúst '04 Meðallestur dagblaða. Uppsafnað meðaltal virkra daga í sjónvarpi. Uppsafnað yfir viku í tímaritum. ● með nýrri stúku Eggert Magnússon: ▲ SÍÐA 20 Lofar ódýrari miðum ● þreyttir krakkar Kennaraverkfall: ▲ SÍÐA 30 Fullar félags- miðstöðvar ● aðfaranótt fimmtudags Stjörnuskoðunarfélag: ▲ SÍÐA 30 Tunglmyrkvi MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 MÁNUDAGUR DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG OG ENN ER HANN AÐ NORÐAN... Með dálitlum éljum norðanlands en nokkuð björtu syðra. Sjá síðu 4 25. október 2004 – 292. tölublað – 4. árgangur ● hús ● fasteignir Endurbyggir Klapparstíg 11 Friðbert Friðbertsson: SÍF KAUPIR Í FRAKKLANDI SÍF kaupir franskt fyrirtæki fyrir 29 milljarða króna. Um leið hættir félagið starfsemi í Bandaríkjunum. SÍF framtíðarinnar er evr- ópskur matvælarisi á sviði kældra matvæla. Félagið verður endurfjármagnað frá grunni. Sjá síðu 2 VERÐUR ÁFRAM Á SJÚKRAHÚSI Íslendingur fékk sprengjubrot í fót og neðri hluta líkamans við sprengjuárásina í Kabúl. Skrifstofustjóri Íslensku friðargæslunnar, segir ekki meiri ógn þó Íslendingarnir séu klæddir sem hermenn. Sjá síðu 4 STJÓRNLAUSAR LEYFISVEITING- AR Brotalamir eru á leyfisveitingum til fiskeldisstöðva. Kerfið þykir mjög flókið og hægvirkt. Fyrirtæki nýta sér gloppur í kerf- inu til að minnka kostnað. Sjá síðu 6 HESTURINN SLÆR Í GEGN Íslenski hesturinn sló í gegn á stórsýningu og keppni í Bretlandi, að sögn Jónasar R. Jóns- sonar, umboðsmanns íslenska hestsins. Sjá síðu 8 ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Kvikmyndir 30 Tónlist 30 Leikhús 30 Myndlist 30 Íþróttir 22 Sjónvarp 32 SPRENGJUÁRÁS Eyrún Björnsdóttir, eiginkona Stefáns Gunnarssonar, íslenska friðargæsluliðans sem slasaðist í Kabúl á laugardag, segist hafa það þokkalegt eftir að hún náði í Stefán og gat talað við hann. Sprengjuárásin átti sér stað á laugardagsmorgun en hún náði ekki tali af honum fyrr en í fyrrinótt. Eyrún segir að tekin verði ákvörðun í vikunni um hvort Stef- án verði sendur heim. „Ég vonast til þess að hann komi bara heim,“ sagði Eyrún í viðtali við Frétta- blaðið í gær. Stefán og Eyrún eiga tvö börn, tíu ára gamla stelpu og sextán ára strák, og segir hún þau sakna pabba síns mikið og hafa áhyggjur af honum. „Mér fannst þetta heldur óraunverulegt á laugardaginn. Mér varð alvarleikinn ljós þegar ég sá fréttirnar um kvöldið,“ sagði Eyrún. Afgönsk stúlka og bandarísk kona létust í árásinni. Stefán fékk sprengjubrot í fót og neðri hluta líkama og slasaðist mest þriggja Íslendinga sem urðu fyrir sprengjuárásinni. ■ KJARADEILA Samninganefndir grunnskólakennara og sveitar- félaganna funda með Halldóri Ás- grímssyni forsætisráðherra klukkan tíu fyrir hádegi. Ráð- herra verða kynnt sjónarmið deilenda og farið verður yfir stöð- una. Óvíst er hvort ræddar verði hugmyndir um að vísa deilunni í gerðardóm. Lára V. Júlíusdóttir, hæstarétt- arlögmaður og sérfræðingur í vinnudeilum, telur gerðardóm koma til greina. „En niðurstaða dómsins færi náttúrlega eftir því uppleggi sem hann fengi,“ sagði hún og benti um leið á þann mögu- leika að ríkissáttasemjari legði fram miðlunartillögu. „Slík tillaga yrði þá lögð undir alla félags- menn, ekki bara samninganefnd- ina. Ég hef hins vegar ekki heyrt neinn nefna miðlunartillögu í þessu sambandi, en það er vafa- laust vegna þess að sáttasemjari telur það alveg vonlaust.“ Lára taldi ólíklegt að lög yrðu sett á verkfallið, bæði hefði þjóðin feng- ið ofanígjafir frá Alþjóðavinnu- málastofnuninni fyrir slík afskipti og slík afgreiðsla gæti orðið tíma- frek í þinginu. „En ef menn eru í alvöru að hugsa um einhverja kjaradómsleið sýndist manni að þeir ættu að reyna að setjast niður og velta fyrir sér forsendum.“ Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir hugmyndir um gerðardóm ekki hafa verið ræddar í hópi kennara. Hann vill ekki útiloka þá leið en bendir á að huga þurfi að mörgu. „Til dæmis hvort dómurinn á að taka á öllum pakkanum eða bara launaliðnum. Forsendurnar sem dómnum yrði gert að starfa eftir liggja ekki fyrir,“ segir hann. Samninganefnd kennara fundar klukkan eitt, en að sögn Eiríks hafði verið boðað til þess fundar áður en forsætisráðherra boðaði deilendur til sín. Birgir Björn Sigurjónsson, for- maður samninganefndar sveitar- félaganna, sagðist ekki hafa miklar væntingar til fundarins með for- sætisráðherra og taldi hann frekar til upplýsingar fyrir ráðherra. Þá átti hann ekki sérstaklega von á að gerðardómsleiðina bæri á góma. „Mér sýnist sú umræða meira í fjölmiðlum,“ segir hann, en leiðin hefur ekki verið rædd á vettvangi sveitarfélaganna. „Sjálfur hefði ég ekki haldið að þetta væri fær leið. Oftar en ekki þýðir gerðardóms- leið að að minnsta kosti annar deilenda er óánægður, ef ekki báð- ir,“ segir hann og telur að ekki yrði síður flókið að ná saman um for- skrift til kjaradóms en um forsend- ur kjarasamnings. - óká Gerðardómur ófær nema deilendur komi sér saman Kennarar útiloka ekki gerðardóm en formaður launanefndar sveitarfélaganna telur þá leið ólíklega til árangurs. Forsætisráðherra hefur boðað deilendur til fundar og kennarar funda sjálfir. Lög á deiluna eru talin ólíkleg. GLAÐST YFIR BOLTANUM Áhangendur Manchester United fögnuðu innilega seinna marki liðsins í leikslok gegn Arsenal á veitinga- staðnum Ölveri í Glæsibæ í gær. Manchester United vann leikinn 2-0 á Old Trafford-leikvanginum. SÍF kaupir Labeyrie: 29 milljarða króna kaup VIÐSKIPTI Lokafrágangur á kaupum SÍF á franska matvælafyrirtækinu Labeyrie fyrir 29 milljarða króna var unninn um helgina. Samkvæmt kaupverðinu er Labeyrie fjórum sinnum dýrara fyrirtæki en SÍF. Samhliða kaupunum var tekin ákvörðun um sölu á dótturfélagi SÍF í Bandaríkjunum og fjórðungshlut SÍF í Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna. Labeyrie framleiðir kældar matvörur fyrir smásölu. Helstu framleiðsluvörur eru reyktur lax, andalifur og rússneskar pönnukök- ur og smurréttir. Fyrirtækjaráðgjöf KB banka sá um kaupin á Labeyrie. SÍF verður í kjölfarið endurfjár- magnað að fullu með nýju sam- bankaláni og 21 milljarðs hlutafjár- aukningu. KB banki hyggst fjár- festa í félaginu fyrir rúma fimm milljarða króna. Sjá síðu 2 EINELTI TIL UMRÆÐU Klukkan 12.15 í dag flytur Ragnar Ólafsson fyrirlest- urinn „Viðbrögð þolenda við einelti í skól- um og á vinnustað“ á vegum Rannsókna- stofnunar í hjúkrunarfræði við Háskóla Ís- lands. Fyrirlesturinn verður fluttur í stofu 103 í Eirbergi við Eiríksgötu 34 í Reykjavík. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI Eyrún Björnsdóttir, eiginkona Stefáns Gunnarssonar: Varð alvarleikinn ljós í kvöldfréttum STEFÁN GUNNARSSON Eiginkona Stefáns varð rólegri þegar hún heyrði í Stefáni í fyrrinótt. Hún segir hann hafa borið sig þokkalega vel.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.