Fréttablaðið - 25.10.2004, Side 2

Fréttablaðið - 25.10.2004, Side 2
2 25. október 2004 MÁNUDAGUR SÍF kaupir sér fjórfalt verðmætara fyrirtæki SÍF kaupir franskt fyrirtæki fyrir 29 milljarða króna. Um leið hættir félagið starfsemi í Bandaríkjunum. SÍF framtíðarinnar er evrópskur matvælarisi á sviði kældra matvæla. Félagið verður endurfjármagnað frá grunni í kjölfarið. VIÐSKIPTI Fisksölufyrirtækið SÍF vann um helgina að frágangi kaupa á frönsku matvælafyrir- tæki fyrir 29 milljarða króna. Franska fyrirækið, Labeyrie er samkvæmt kaupverðinu fjórum sinnum dýrara fyrirtæki en SÍF sjálft. SÍF markar sér með kaupunum nýja stefnu og samhliða þeim var tekin ákvörðun um sölu á dóttur- félagi SÍF í Bandaríkjunum, Iceland Seafood Corporation, og fjórðungshlut SÍF í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Áætlaður sölu- hagnaður þeirra viðskipta er 2,8 milljarðar. Þar með er starfsemi SÍF í Ameríku lokið og mun félag- ið einbeita sér að sölu kældra mat- væla á Evrópumarkaði. Sjóvík ehf. kaupir Iceland Seafood fyrir 4,8 milljarða króna. Sjóvík hefur náð góðum árangri við framleiðslu og sölu hvítfisks á markaði í Evrópu og Ameríku og rekur verksmiðjur meðal annars í Kína og Taílandi. SÍF verður endurfjármagnað og endurskipulagt í kjölfarið. „Í raun má segja að hér sé um nýtt félag að ræða,“ segir Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður SÍF. Labeyrie framleiðir kældar matvörur fyrir smásölu. Helstu framleiðsluvörur eru reyktur lax, andalifur, rússneskar pönnu- kökur og smurréttir. Samstæða SÍF og Labeyrie velti rúmum 88 milljörðum króna síðustu tólf mánuði og skilaði fimm milljarða hagnaði fyrir afskriftir og fjár- magnsliði. „Hin nýja samstæða verður gríðarlega öflugt fyrir- tæki með arðsaman rekstur, traustan efnahag, skýra stefnu og mjög sterka stöðu í matvæla- framleiðslu í Evrópu. Þekkt vöru- merki, öflugt vöruþróunarferli og fjölbreytt vöruúrval hinnar nýju samstæðu munu skapa fjöl- mörg tækifæri til sóknar sem við ætlum okkur að nýta,“ segir Jakob Sigurðsson, forstjóri SÍF. Fyrirtækjaráðgjöf KB banka sá um kaupin á Labeyrie. SÍF verður í kjölfarið endurfjár- magnað að fullu með nýju sam- bankaláni og 21 milljarðs hluta- fjáraukningu. KB banki hyggst fjárfesta í félaginu fyrir rúma fimm milljarða króna. Kaupin eru með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda í Frakk- landi, auk þess sem samráð verð- ur haft við frönsk stéttarfélög áður en gengið verður endanlega frá kaupunum. haflidi@frettabladid.is ■ EVRÓPA „Já að sjálfsögðu, heilan helling.“ Katrín Anna Guðmundsdóttir er talskona Fem- inistafélags Íslands sem stendur nú fyrir feminista- viku í annað sinn um þetta leyti árs. Ýmislegt bita- stætt verður gert í vikunni til að vekja athygli á stöðu jafnréttismála og á fimmtudaginn verður gripið til aðgerða sem fram að því eru hernaðar- leyndarmál en einhverjum verður sjálfsagt stríðni í. SPURNING DAGSINS Katrín Anna, ætla konur að stríða í vikunni? FÖGUR FLJÓÐ Ungfrú Jörð, önnur frá vinstri, ásamt öðrum keppendum eftir að hún tók við kórónunni. Ungfrú jörð á Filippseyjum: Brasilískur sigurvegari FEGURÐ Pricilla de Almeda, lækna- nemi frá Brasilíu, var kjörin ung- frú jörð í fegurðarsamkeppni sem haldin var á Filippseyjum um helgina. Í keppninni, sem var fyrst haldin fyrir þremur árum, er reynt að vekja athygli umheims- ins á umhverfismálum. Alls tóku sextíu manns þátt í ár. Fjórar efstu stelpurnar í keppninni fengu titla sem þær eiga að bera. Auk ungfrú jarðar var ungfrú eld- ur valin, ungfrú loft og ungfrú vatn. ■ NÝGRÆÐINGUR Í BRANSANUM Ekki fæst séð að þessi kínverski nautabani kunni ekki til verka. Nautaat í Kína: Í fyrsta sinn KÍNA, AP Ekkert naut drapst þegar fyrsta kínverska nautaatið að spænskum sið var haldið í Shang- hai. Nokkur hundruð spenntir Kínverjar mættu á sýninguna, sem var haldin á fótboltavelli í út- hverfi borgarinnar. Haldið var í kínverskar menningarhefðir með því að drepa ekki nautið. Til að undirstrika það var hvítum flögg- um dreift til áhorfenda en sam- kvæmt spænskri hefð veifa þeir slíkum flöggum ef nautið á að lifa. ■ HRYÐJUVERKAMENN ÁKÆRÐIR Sautján manns sem ætluðu að sprengja upp dómshús í Madríd á Spáni hafa verið ákærðir. Í dóms- húsinu eru meðal annars flutt mál sem upp koma vegna hryðju- verkamanna. HJÁLP TIL DARFUR Evrópusam- bandið ætlar að láta um 7 millj- arða króna af hendi rakna til hjálparstarfs í Darfur-héraði í Súdan. Talið er að um sjötíu þús- und manns hafi látist á svæðinu úr hungursneyð og sjúkdómum á síðustu sjö mánuðum. Milljónatjón í Neskaupstað: Baldvin Þorsteinsson sigldi á bryggju ÁREKSTUR Harður árekstur varð við bryggjuna í Neskaupstað laust fyrir klukkan hálf níu í gærmorgun þegar skip Sam- herja, Baldvin Þorsteinsson EA, sigldi á bryggjuna með þeim af- leiðingum að hún stórskemmd- ist. Baldvin var að koma til lönd- unar í Neskaupstað og lítur út fyrir að skipið hafi komið ívið of hratt að bryggjunni með þeim afleiðingum að pera skipsins gekk eina fjóra metra inn í stál- þil við löndunarbryggjuna og setti stórt gat á það. Að sögn Guðmundar Bjarnasonar, bæjarstjóra í Neskaupstað, er bryggjan nothæf en mikið skemmd þar sem fyllingin undir henni getur skolast burt þegar stálþilsins nýtur ekki lengur við. Strax verður hafist handa við viðgerðir en talið er að tjón- ið skipti tugum milljóna króna. Tryggingafélag skipsins mun bera kostnað af tjóni af þessu tagi. Baldvin Þorsteinsson er eitt stærsta skip flotans og mun ekkert hafa skemmst og ekkert sér heldur á því. Tildrög atviks- ins eru í rannsókn. ■ BALDVIN ÞORSTEINSSON Rólegur við bryggju. ÖFLUGT MATVÆLAFYRIRTÆKI Eftir kaup SÍF á Labeyrie Group í Frakklandi blasir við gjörbreytt félag. Frosinn þorskur í brauði á Bandaríkjamarkað hverfur af sjónarsviðinu og kældar matvörur fyrir evrópska sælkera taka við. Umferðaróhapp: Hljóðkútur í framrúðu LÖGREGLA Hljóðkútur kastaðist af vagni vörubíls í gegnum framrúðu fólksbíls skammt norðan við Borg- arnes um miðjan dag í gær. Kúturinn hæfði farþegann í andlitið og stöðvaðist svo á milli sætanna. Ekki mátti miklu muna að af þessu hlytist alvarlegt slys, að sögn lög- reglu. Farþeginn meiddist lítilshátt- ar og var fluttur á Heilsugæslustöð- ina í Borgarnesi þar sem hann fékk aðhlynningu. Þegar blaðið fór í prentun hafði ekki tekist að hafa uppi á ökumanni vörubifreiðarinnar en hann var að öllum líkindum ekki var við atvikið. -bb HAÍTÍ, AP Einn lögreglumaður var skotinn til bana af skæruliðum á Haítí sem eru hliðhollir forsetan- um fyrrverandi Jean-Bertrand Aristide. Mikil átök voru í landinu í gær og áttu friðargæsluliðar Samein- uðu þjóðanna og óeirðalögregla Haítí fullt í fangi með að hafa heimil á uppreisnarmönnunum. Þrír dagar eru liðnir síðan bráðabirgðastjórnvöld í landinu hétu því að uppræta gengi sem eru sökuð um að hafa staðið fyrir ofbeldinu sem þar hefur geisað í tvær vikur. Alls hafa 56 manns látið lífið í þeim átökum. Stuðn- ingsmenn Aristide segja að lög- reglan hafi byrjað ofbeldið þegar hún skaut tvo mótmælendur til bana þann 30. september í kröfu- göngu þar sem óskað var eftir endurkomu forsetans fyrrver- andi. Hann flúði úr embætti þann 29. febrúar þegar uppreisn var gerð í landinu. Gerard Latourte, forsætisráð- erra bráðabirgðastjórnarinnar, hefur gagnrýnt Sameinuðu þjóð- irnar fyrir að hafa ekki sent nægi- lega marga hermenn til landsins til að stöðva átökin. Alls eru 3.200 friðargæsluliðar starfandi á Haítí í stað 8.700 eins og lofað hafði verið. Átta milljónir manna búa í landinu. ■ Ofbeldishrinan á Haítí heldur áfram: Lögreglumaður skotinn til bana FRIÐARGÆSLA Brasilískir friðargæsluliðar á vegum Sam- einuðu þjóðanna aka um götur Haítí í brynvörðum bílum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.