Fréttablaðið - 25.10.2004, Side 10
25. október 2004 MÁNUDAGUR
– hefur þú séð DV í dag?
Landsbankinn
sóaði slysa-
bótunum
mínum í
deCode
– Öryrki eftir þungt höfuðhögg
– Treysti á ráð Landsbankans
– Bankinn stórgræddi á Hinriki
Um helgina var haldin á Þingvöll-
um ráðstefna Norræna samvinnu-
ráðsins í málefnum fólks með
þroskahömlun. Sérstök áhersla
var lögð á stöðu fólks með þroska-
hömlun í þróunarríkjum, en þar
líður þessi hópur fólks víða mik-
inn skort.
Halldór Gunnarsson, formaður
Þroskahjálpar, segir hinar
Norðurlandaþjóðirnar standa
framarlega í þróunaraðstoð en nú
sé komið að Íslendingum að sýna
samstöðu í verki.
„Fatlað fólk, þroskahamlaðir
og fjölskyldur þeirra í þriðja
heiminum eru sá hópur fólks sem
er verst settur í heiminum. Við
viljum vekja athygli á skyldum Ís-
lendinga, því ef við ætlumst til að
aðrir styðji okkur í okkar baráttu
verðum við að gefa eins og við
getum til annarra,“ segir hann.
Sérstakur gestur á ráðstefn-
unni nú var Diane Richler, forseti
Inclusion International, sem er
heimssamband systursamtaka
Landssamtakanna Þroskahjálpar.
- þlg
Þróunaraðstoð:
Íslendingar gefi meira
HÓTEL VALHÖLL
Ráðstefna Norræna samvinnuráðs-
ins í málefnum fólks með þroska-
hömlun fór fram á Hótel Valhöll á
Þingvöllum um helgina.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Nú þegar átta dagar eru tilkosninga í Bandaríkjunumríkir enn mikil spenna um
hver muni halda um stjórnvölinn í
valdamesta ríki heims næstu fjög-
ur árin. Kosningabaráttan hefur að
miklu leyti snúist um stríðið í Írak
og það hvor frambjóðendanna sé
betur til þess fallinn að vernda
Bandaríkin gegn hryðjuverkum.
Þrátt fyrir mun á málflutningi
frambjóðendanna í þessum málum
má telja líklegt að forsetakjörið
ráði meiru um framvindu ýmissa
innanríkismála en hvernig málum
vindur fram í Írak.
Frambjóðendurnir tveir eru
með ólíka sýn í skattamálum og
boða ólíkar lausnir í atvinnumál-
um. Þá eru þeir ósammála um
hvernig taka eigi á því að 45
milljónir manna njóta ekki
sjúkratrygginga.
Einna mestur er þó munurinn
þegar kemur að afstöðu þeirra
til dauðarefsinga og fóstur-
eyðinga, tveggja málefna sem
hafa löngum valdið deilum í
Bandaríkjunum. ■
Umdeildar skattalækkanir
Ef undan er skilin innrásin í Írak og stríðið gegn hryðju-
verkum hefur skattalækkanir borið einna hæst í stjórnar-
tíð George W. Bush. Hann segir að skattalækkanirnar
hafi verið nauðsynlegar til að koma efnahagslífinu af
stað eftir mikinn samdrátt, fyrir utan að peningunum sé
betur komið hjá einstaklingunum sem vinna fyrir þeim
heldur en stjórnmálamönnum. John Kerry hefur gagn-
rýnt skattalækkanir Bush harkalega og segir þær fyrst og
fremst gagnast þeim ríku og að auki hafi verið óábyrgt
að lækka skatta við núverandi kringumstæður því það
eigi þátt í mesta fjárlagahalla í sögu Bandaríkjanna.
Hann segist því ætla að afturkalla skattalækkanir á alla
þá sem hafa meira en 200 þúsund dollara, eða fjórtán
milljónir króna, í laun á ári.
BRYNJÓLFUR ÞÓR GUÐMUNDSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
FORSETAKOSNINGAR Í
BANDARÍKJUNUM
Á öndverðum meiði um dauðarefsingar
Bush var um sex ára skeið ríkisstjóri í Texas, því ríki
Bandaríkjanna þar sem flestar aftökur eiga sér stað.
Hann er fylgjandi þeim og náðaði engan þeirra dauða-
dæmdu manna sem áfrýjuðu málum sínum. Kerry er
andvígur dauðarefsingum nema ef um hryðjuverka-
menn er að ræða og segir ævilangt fangelsi þyngri refs-
ingu en dauðadóm. Hann vill fresta aftökum meðan
rannsakað er hvernig dauðarefsingunni hefur verið beitt.
Hjónaböndin umdeildu
Þegar Hæstiréttur Massachusetts, heimaríki Kerrys, úrskurð-
aði að lög sem bönnuðu hjónabönd samkynhneigðra stöng-
uðust á við stjórnarskrá ríkisins varð réttindabarátta samkyn-
hneigðra að einu helsta deilumáli Bandaríkjamanna.
Bush er andvígur hjónaböndum samkynhneigðra og með-
mæltur því að breyta stjórnarskránni svo þau verði bönnuð
alls staðar í Bandaríkjunum. Hann er andvígur því að sam-
kynhneigðir fái að ættleiða börn.
Kerry er andvígur hjónaböndum samkynhneigðra en andvíg-
ur stjórnarskrárbreytingunni og segir réttast að hvert og eitt
ríki ráði þessu. Hann vill annað sambúðarform sem tryggir
samkynhneigðum pörum stærstan hluta þeirra réttinda sem
hjón njóta.
GEORGE W. BUSH
Bandaríkjaforseti hefur keppst við að lýsa keppinauti sínum sem
vinstrisinnaðri eyðslukló.
JOHN KERRY
Forsetaefni demókrata hefur sakað forsetann um að ana út í stríð
og hyggja ekki nóg að störfum fólks.
Þvers og kruss
í félagsmálum
Þrátt fyrir að George W. Bush og John Kerry hafi deilt hvað harðast um
stríðið í Írak og atvinnumál kemur munurinn á þeim einna best í ljós
þegar litið er til afstöðu þeirra til ýmissa félags- og réttlætismála.