Fréttablaðið - 25.10.2004, Síða 11
11MÁNUDAGUR 25. október 2004
Félag kvótabátaeigenda:
Nafni breytt með trega
LAGÐIST Á HLIÐINA
Þetta rússneska skip þoldi ekki ágang
vatns og vinda í miklu óveðri sem gekk yfir
Japan fyrir helgi. Skipið lagðist á hliðina
þar sem það lá við bryggju í Takaoka.
SJÁVARÚTVEGUR Félag dagabáta-
eigenda hefur með trega verið
knúið til að breyta nafni sínu í
Félag kvótabátaeigenda að því
er fram kemur í ályktunum
félagsins á aðalfundi sem hald-
inn var í Borgarnesi á laugar-
dag. „Á öndverðu vorþingi síð-
ast liðnu, í hita leiks fjölmiðla-
frumvarps, er knúin á okkur
kvótasetning á óþingræðislegan
og ólýðræðislegan hátt, aðför
sem skerti afla okkar um 20 til
40 prósent,“ segir í ályktuninni.
Á fundinum var ályktað um
fjölda mála sem félagsmönnum
eru ofarlega í huga. Til að
mynda lýsir félagið „furðu sinni
og undrun“ á að forsætisráð-
herra, sjávarútvegsráðherra og
formenn þingflokka skuli ekki
„brjóta odd af oflæti sínu“ og
svara erindi Umboðsmanns Al-
þingis þar sem hann kemst að
þeirri niðurstöðu að í lögum um
skiptaverðmæti og greiðslu-
miðlun innan sjávarútvegsins sé
brotið gegn meðgrein 74. grein-
ar stjórnarskrárinnar um
félagafrelsi. Aðalfundi félagsins
var svo frestað „þar til úrskurð-
ur málaferla vegna greiðslu-
miðlunar-laga er útkljáður í
undirrétti“, eins og segir í álykt-
un fundarins.
- óká
BORGARNES
Aðalfundur Félags kvótabátaeigenda
ályktaði svo á aðalfundi í Borgarnesi um
helgina að öll frjáls félagasamtök í landinu
voru hvött til að styðja við baráttu félags-
ins sem og Sólbaks ehf., með Guðmund
Kristjánsson í framvarðarsveit og vísað til
ákvæða í stjórnarskrá um félagafrelsi.
Leitin að nýjum störfum
Fækkun starfa á fyrri hluta kjörtíma-
bilsins veldur því að störf eru nærri
milljón færri en þau voru þegar Bush
tók við völdum. Forsetinn segir að
besta leiðin til að fjölga störfum sé
að lækka skatta og bæta skilyrði
fyrirtækja, þannig bæti þau hag sinn
og geti ráðið fleira starfsfólk. Lokun
verksmiðja í Bandaríkjunum og flutn-
ingur starfa til útlanda hefur verið í
brennidepli í umræðu Kerry um at-
vinnumál. Hann segist ætla að af-
nema skattaafslátt af hagnaði banda-
rískra fyrirtækja erlendis og veita
frekar skattalækkanir sem ýti undir
sköpun nýrra starfa innanlands.
Með og á móti
fóstureyðingum
Munurinn á stefnu Bush og Kerry í
félagsmálum kemur einna best fram
í afstöðu þeirra til fóstureyðinga.
Að undanskildum undantekningartil-
fellum á borð við nauðgun, sifjaspell
og að móðirin sé í lífshættu er Bush
andvígur fóstureyðingum. Hann er
einnig hlynntur því að tilkynna verði
foreldrum ef dóttir þeirra ætlar í
fóstureyðingu og er talinn líklegur til
að skipa í hæstarétt dómara sem eru
andvígir fóstureyðingum. Kerry hefur
fengið toppeinkunn hjá samtökum
sem berjast fyrir réttinum til fóstur-
eyðingar og núll í einkunn hjá sam-
tökum sem berjast gegn fóstureyð-
ingum. Hann er hlynntur réttinum til
fóstureyðingar og andvígur því að til-
kynna verði foreldrum ef dóttir þeirra
ætlar í fóstureyðingu. Segist aðeins
skipa hæstaréttardómara sem tak-
marka ekki réttinn til fóstureyðinga.
45 milljónir án trygginga
Eitt af einkennum bandaríska kerfis-
ins er að 45 milljónir Bandaríkja-
menn njóta engra heilbrigðistrygg-
inga. Lausnir forsetaefnanna á þessu
eru gjörólíkar. Með því að veita lág-
og millitekjufólki skattaafslátt vill
Bush gera því kleift að kaupa sér
sjálft tryggingar. Þetta er skref í átt
frá því kerfi að fyrirtæki kaupi trygg-
ingar fyrir starfsfólk sitt og áherslan
lögð á val einstaklingsins. Hann vill
líka veita minni fyrirtækjum skatta-
afslátt til að kaupa tryggingar fyrir
starfsmenn sína. Verði Kerry kjörinn
ætlar hann að beita sér fyrir lækkun
tryggingaiðgjalda, sem hafa hækkað
mjög síðustu ár. Það vill hann gera
með því að ríkissjóður greiði fyrir
kostnaðarsömustu meðferðir þannig
að fyrirtæki þurfi ekki að tryggja
starfsmenn sína fyrir þeim. Hann vill
líka að ríkissjóður aðstoði einstök ríki
við að sjá lágtekjufólki og börnum
fyrir tryggingum.
Fíkniefnaneysla:
Ók undir
áhrifum
DALVÍK Ökumaður var stöðvaður á
Dalvík í fyrrinótt, grunaður um að
hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.
Að sögn lögreglu var bíllinn
stöðvaður við venjubundið eftirlit
en sjá mátti á ástandi mannsins að
hann var ekki allsgáður þó ekkert
áfengi fyndist við athugun. Tekin
var blóðprufa úr manninum og er
hún nú í rannsókn.
Í framhaldinu fann lögregla lítil-
ræði af kannabisefnum og neyslu-
áhöldum á dvalarstað mannsins.
Lögreglan á Dalvík segir að mann-
inum hafi verið gert að láta bíllyk-
lana af hendi þarna um nóttina og
hann sendur heim að því loknu. - bb