Fréttablaðið - 25.10.2004, Qupperneq 12
25. október 2004 MÁNUDAGUR
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
!
"#
$
%
& ) #
*++)
),
#
++)
)-
#
++)
). # /# ++)
0
1"
/
0
2
#
"# 3
4
/#!#
#
"##
# 3
5$
/
" 6
1$/
5$
#
. # +7+8
!
"
#
$
%
#
HRAÐAKSTUR OG ÖLVUN Tveir
voru teknir fyrir hraðakstur í
umdæmi lögreglunnar í Keflavík
á föstudagskvöld og laugardags-
morgun og einn fyrir ölvunar-
akstur aðfaranótt laugardags.
Mældist ökuhraði mest 119
km/klst, þar sem leyfilegur há-
markshraði er 90 km/klst.
FÍKNIEFNI AÐ KVÖLDI Á föstu-
dagskvöld voru tveir rúmlega
tuttugu ára gamlir menn hand-
teknir við fíkniefnaeftirlit. Við
leit á öðrum þeirra fannst eitt
gramm af amfetamíni. Mönnun-
um var sleppt lausum að lokinni
rannsókn og skýrslutöku en sá
sem hafði efnið kvað það hafa
verið til eigin nota.
ÆSINGUR Á SKEMMTISTAÐ Að-
faranótt laugardags var lögregla
kölluð að skemmtistað einum í
Keflavík en þar áttu dyraverðir í
vandræðum með einn samkvæm-
isgestinn. Lögreglumenn urðu að
handtaka gestinn vegna æsings og
ölvunar, en sá fékk að sofa úr sér í
fangaklefa lögreglustöðvarinnar.
UPPBYGGING Þrátt fyrir að mark-
mið í skipulagsmálum höfuðborg-
arsvæðisins séu skýr er erfitt að
uppfylla þau, segir Þorsteinn
Víglundsson, forstjóri BM Vallár,
þjónustufyrirtækis á byggingar-
markaði:
„Það er til dæmis margítrekuð
stefna borgarinnar að þétta byggð
í kringum miðbæ borgarinnar. Þó
er erfitt að átta sig nákvæmlega á
hvaða breytingar er óhætt að fara
út í og hvaða ekki.“
Þorsteinn segir að vegna þess
hve erfiðlega gangi að fá breyt-
ingartillögur samþykktar þegar á
reyni sæki byggingarverktakar í
auknum mæli um byggingarleyfi
fyrir mun hærri byggingar en
þeir hugsi sér að reisa. Sé það
afleiðing þess að skipulagi sé ekki
framfylgt:
„Það er engin leið að meta fyrir
fram hvað er heimilt og hvað ekki.
Rætt er um það meðal verktaka
að þeir viti ekki hvað borgin vilji,
aðeins að það sé minna en þeir
vilji.“
Þorsteinn segir einnig ítrekað
hafa komið upp að eftir að verk-
taka berist athugasemdir við
byggingar og skili inn breytingum
séu gerðar athugasemdir við
atriði sem hafi ekki breyst milli
umfjallana.
Skortur á framfylgni skipulags
sé þó mestur þegar komi að endur-
gerð húsnæða og þegar byggt sé
inn í gömlum bæjarkjörnum. Þar
rísi upp óánægjuraddir íbúanna
sem hafi áhrif á samþykkt skipu-
lag sveitarstjórnanna: „Ef verk-
taki uppfyllir allar meginreglur á
hann ekki að eiga á hættu að vinna
hans sé stöðvuð og tafin.“
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
formaður skipulags- og bygging-
arnefndar Reykjavíkurborgar,
segir óljóst hvað vaki fyrir Þor-
steini með sífelldri gagnrýni á
skipulagsstörf í Reykjavík:
„Það er af og frá að svona sé
unnið. Skipulags- og byggingar-
nefnd vinnur faglega og sendir
hluti í kynningu sem hún vill
kanna viðbrögð við,“ segir Stein-
unn. Áhugi borgarbúa á fram-
kvæmdum í sínu nágrenni sé
alltaf að aukast:
„Það er í anda lýðræðislegs
samráðs að taka mið af athuga-
semdum sem fólk gerir til nefnd-
arinnar út af skipulagsmálum,“
segir Steinunn. Það geti haft
margvíslegra breytinga: „Skipu-
lagsyfirvöld þurfa að taka tillit til
margra þátta. Sjónarmið íbúa,
hagsmunaaðila og verktaka þurfa
öll að vega jafnt.“
gag@frettabladid.is
ÍRAK, AP Lík 51 írasks hermanns
fundust á afskekktum vegi í
austurhluta Íraks í gær, skammt
frá írönsku landamærunum. Að
öllum líkindum var setið fyrir
hermönnunum, þeim skipað að
leggjast á jörðina og þeir skotn-
ir til bana. Mennirnir voru á leið
heim til sín í frí úr æfingabúð-
um þegar atburðurinn átti sér
stað. Talið er að einhver óprútt-
inn aðili hafi lekið upplýsingum
um ferðir þeirra til árásaraðil-
anna. Hermennirnir voru
óvopnaðir og áttu því erfitt með
að verja sig. „Í framtíðinni mun-
um við reyna að fara varlegar
þegar hermenn yfirgefa bæki-
stöðvar sínar. Við munum láta
brynvarða bíla fylgja þeim alla
leið heim til sín,“ sagði Walid al-
Azzawi, hershöfðingi. Bætti
hann því við að þegar líkin fund-
ust hefði þeim verið raðað í fjór-
ar raðir. Bentu verksummerki
til þess að um aftöku hafi verið
að ræða. ■
LÍK HERMANNANNA
Alls fannst 51 lík á afskekkt-
um vegi í Írak, skammt frá
írönsku landamærunum.
Umsátur í Írak:
51 hermaður drepinn
12
Skipulagsstefnu ekki framfylgt
Skýrri stefnumörkun skipulagsnefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er ekki fylgt eftir.
Forstjóri BM Vallár segir að markaðssjónarmið ættu að ráða útliti borgarinnar, ekki sér-
hagsmunir bæjarbúa eða sveitarstjórnarmenn.
SKUGGI 101
Forstjóri BM Vallár segir Skugga 101 við
Skúlagötu og Sjáland í Garðabæ dæmi um
mjög gott skipulag og vill að verktakar fái
að skipuleggja heilu hverfin sjálfir.
PRINS HITTIR BÓNDA
Karl Bretaprins átti gott spjall við bóndann
Paolo Accomo er hann skoðaði vínekrur
hans í bænum Ricco D’Alba á norðurhluta
Ítalíu. Prinsinn er staddur þar í landi í tilefni
alþjóðlegrar Slowfood-matvælasýningar.