Fréttablaðið - 25.10.2004, Page 19

Fréttablaðið - 25.10.2004, Page 19
3MÁNUDAGUR 25. október 2004 ECL stjórnstöðvar fyrir hitakerfi E C L 0 1 D B L Danfoss hf Skútuvogi 6 104 Reykjavík Sími 510 4100 • www.danfoss.is Húseigendur! Aukið þægindin og lækkið hitunarkostnaðinn með ECL stjórnstöð á hitakerfið Kynnið ykkur kosti og verð ECL stjórnstöðvarinnar frá Danfoss Þægindi - Öryggi - Sparnaður Nú er kuldinn farinn að smjúga inn um hverja glufu og frostið ekki langt undan. Áður en kólnar óheyrilega mikið er um að gera að drífa sig út á verönd eða svalir og setja fínu og flottu garðhúsgögnin sem þú eyddir offjár í fyrri part sumars inn í geymslu eða bílskúr - eða hvar sem er sem vindar ekki geisa. Sérstaklega mikilvægt er að passa upp á viðarhúsgögnin því það segir sig sjálft að frost, rigning og almennt illviðri leikur viðinn ansi illa. Ekki slóra og kveinka þér yfir haust- verkunum heldur drífðu þig upp úr sófanum, slökktu á sjónvarpinu og gerðu það sem þú þarft að gera. Þér líður miklu betur á eftir. Ísskápur endurnýjaður: Ekki fleygja gamla skápnum Ísskápar bila og gefa sig eins og hvert annað heimilistæki og þá er víst nauð- synlegt að fá sér annan. En einhvern veginn bindist maður sérstökum bönd- um við ísskápinn sinn. Hann fæðir mann og klæðir góðum mat og auðvelt er að missa sig í skæra ljósinu á síð- kvöldum yfir sjónvarpinu. Þó að auðvit- að sé um að gera að skipta út ísskápn- um fyrir nýja og flottari týpu, með eng- ar hrukkur eða grá hár, þá þýðir það ekki að gamli góði kósí ísskápurinn þurfi að algjörlega að fara. Gott ráð er að taka gamla ísskápinn í gegn, taka allt freon úr honum og sprautumála hann í flottum og skærum litum. Hægt er að skreyta hann aðeins að innan líka og þegar yfirhalningunni er lokið er hægt að skella honum út á verönd. Nú á veturna þegar frystirinn fyllist af kleinum, smákökum og tertum fyrir jólin þá er tilvalið að nota gamla ísskápinn undir allt það sem kemst ekki fyrir inni. Jólagosið getur líka dúsað út í gamla ísskápnum sem og klakapokar ef frostið er nóg. Þannig öðlast ísskápurinn endurnýjun lífdaga og þú losnar við samviskubitið yfir nýja módelinu. Skipholti 29a 105 Reykjavík fax 530 6505 heimili@heimili. is sími 530 6500 Stigar, allar gerðir Innihurðir Parket Verkstæðisþjónusta Trésmíði og lökkun Imex ehf. Lyngháls 3 Árbæjarhverfi Sími 567 1300 www.imex.is Tréhúsgögn eru sérstaklega viðkvæm fyrir frosti og því um að gera að drífa þau inn í geymslu. Haustverkin: Ekki gleyma garðhúsgögnunum FYRIR. Litli, sæti ísskápurinn sem þjónar ekki lengur sínum tilgangi. EFTIR. Ekki líkt að sjá gamla ísskápinn sem hefur aldeilis verið tekinn í andlitslyft- ingu. Árni Svavarsson teppahreinsunar- maður á sér uppáhaldshúsgagn sem hann keypti hjá Exo fyrir um það bil tíu árum. „Þetta er sófi sem er orð- inn frægur í fjölskyldunni því hann býr yfir þeim galdri að svæfa fólk. Það hreinlega bregst ekki að þeir sem leggjast í hann eru sofnaðir á innan við tíu mínútum. Við berj- umst oft hart um þennan sófa ég og strákarnir mínir tveir. Annar er reyndar fluttur að heiman, en hann leggst þarna endilangur í hvert skipti sem hann kemur í heimsókn.“ Árni segir hann og konuna sína hafa fallið fyrir sófanum af því að þeim þótti hann svo krúttlegur á sínum tíma. „Reyndar var einhver galli í áklæðinu þannig að ég skipti, en eftir það hefur hann virkað eins og svefntafla á fólk.“ Árni, sem rekur fyrirtækið Skúf sem er teppahreinsunarfyrirtæki, hreinsar ekki bara teppi heldur líka mottur og húsgögn. „Ég er búinn að reka þetta fyrirtæki í 20 ár og er menntaður í þessum fræðum,“ seg- ir Árni hlæjandi. „Við hreinsum gólfteppi, húsgögn og handunnin stök teppi og mottur og veitum við- skiptavinum ráðleggingar um þrif og ekki síst val á teppum, en þar er að mörgu að hyggja,“ segir Árni, sem er mikill talsmaður þess að fólk noti meira teppi sem gólfefni. Hann bendir á könnun sem gerð var í Svíþjóð þar sem kom í ljós að á meðan aukning var á hörðum gólfefnum um 77% fjölgaði astma- tilfellum um 300%. „Fólk heldur að teppi séu verri kostur vegna ryks og þyngra lofts en málið er að velja réttu teppin og meðhöndla þau rétt.“ Uppáhaldshúsgagn: Sófi sem svæfir fólk Sófinn hans Árna er þeirrar náttúru að svæfa fólk sem leggst í hann. SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR »

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.