Fréttablaðið - 25.10.2004, Side 26
10 25. október 2004 MÁNUDAGUR
Við Hávallagötu 41 er til sölu
falleg 122 fermetra sjö herbergja
sérhæð í þriggja íbúða húsi. 41
fermetra bílskúr fylgir.
Komið er inn í forstofu með
innbyggðum fataskáp en á hægri
hönd er gengið inn í bjart eldhús
með flísum og samliggjandi borð-
stofu með mahoníparketti. Úr
borðstofu er gengið inn í stofu
sem er aðskilin með frönskum
rennihurðum. Einnig er ma-
honíparkett á stofu. Þaðan er út-
gengi á suðursvalir.
Úr forstofunni er gengið inn í
opið sjónvarpsherbergi, en milli
þess og stofu er líka frönsk hurð.
Á holi og sjónvarpsherbergi er
beykiparkett. Til vinstri frá for-
stofu er gestasnyrting með flís-
um á gólfi og gangur inn að
svefnherbergjum.
Tvö barnaherbergi eru með
korki á gólfi og innbyggðum
skápum, hjónaherbergið með
mahoníparketti og innbyggðum
skápum. Frá hjónaherbergi er út-
gengi á svalir, Baðherbergi er
með ljósum flísum á gólfi og
mósaíkflísum á veggjum. Íbúðin
er með frönskum gluggum og
hátt er til lofts. Loftlistar eru í
öllum herbergjum og rósetta í
stofu og sjónvarpsherbergi.
Stigagangur er með teppi og
smíðajárnshandriði. Tvær
geymslur eru í kjallara svo og
sameiginlegt þvottahús.
Í bílskúrnum er heitt og kalt
vatn og frárennslislagnir fyrir
salerni. Nýtt þak er á bílskúrnum
og asbesteinangrun í veggjum.
Nýleg aðalrafmagnstafla er í
húsinu og verið er að klára að
mála húsið að utan. Garðurinn er
gróinn og snýr í suður. Uplýsing-
ar um eignina eru hjá fasteigna-
sölunni Draumahúsum. ■
Húsið er fallegt og virðulegt á góðum stað í Vesturbænum. Innandyra er hátt til lofts og fallegir loftlistar og rósettur prýða stofu
og sjónvarpsherbergi.
Virðulegt hús við Hávallagötu:
Franskir gluggar og rósettur
Ekki fyrir svo löngu opnaði glæ-
nýr Vísisvefur og fasteignavefur í
kjölfarið. Þessi fasteignavefur
hefur nú gengið í gegnum tals-
verðar endurbætur og er óhætt að
segja að hann sé orðinn mun að-
gengilegri fyrir hin almenna
borgara í fasteignaleit.
„Leitarvélin á síðunni er glæný
og gerir hún allt leitarferlið mun
einfaldara og skýrara og með vél-
inni fást sem bestar niðurstöður,“
segir Þorsteinn Eyfjörð hjá
visir.is.
„Vísir er með flestar skráðar
fasteignir af öllum fasteignavefj-
um á landinu samkvæmt talningu
síðustu vikna. Góð reynsla er
komin á síðuna og höfum við feng-
ið mjög góðar viðtökur alls staðar
að. Fleiri og fleiri nýta sér þessa
þjónustu á Vísi þegar leita skal að
fasteign. Við erum að vonum
mjög ánægðir hér hjá Vísi þar
sem vefsíðan hefur heppnast af-
skaplega vel,“ bætir Þorsteinn við
en allar fasteignasölur á landinu
skrá eignir sínar á fasteignasíðu
Vísis um leið og þær eru skráðar
á sölu.
Ásamt því að leita að fasteign-
um við hæfi á Vísi er hægt að
geyma eignir sínar í sérstakri
eignamöppu og vistað sérstök leit-
arskilyrði þannig að leitarvélin
leitar alltaf eftir þeim. ■
Framkvæmdir á Seltjarnarnesi:
Gengu vel í sumar
Íbúar Seltjarnarness hafa verið fram-
kvæmdaglaðir nú í sumar. Fram-
kvæmdir hafa gengið vel þar í bæ
enda veðurfar með eindæmum gott.
Eitt af sumarstörfunum var til dæmis
að ljúka við frágang á Snoppu. Einnig
var lokakaflinn frá Norðurströnd að
bílastæðinu þar malbikaður. Aðstaðan
þar hefur því batnað til muna og um-
ferð um svæðið vaxið í samræmi við
það. Suðurströndin var kantlögð og
einnig var unnið að viðgerðum á úti-
vistarsvæðum, gangstéttum og götum
bæjarins. Bæjarhlið við Nesveg var
einnig reist og því er aðkoman að
bænum vörðuð bæði sunnan og
norðan megin.
Fasteignavefur á visir.is er mjög aðgengilegur og með flestar skráðar eignir á landinu.
Fasteignavefur á visir.is:
Stærstur á landinu
Sími 575 8585 – Spönginni 37 – 112 Reykjavík
Sverrir Kristjánsson
Lögg.fasteignasali
Gsm 896 4489
Jón Pétursson
Sölumaður
Gsm 898 5822
Karl Dúi Karlsson
Sölumaður
Gsm 898 6860
Opið virka daga
frá kl. 09:00-18:00.
www.fmg.is
Samtengd söluskrá sex
fasteignasala - ein
skráning - minni
kostnaður - margfaldur
árangur. www.hus.is
4ra herbergja
ÁLFABORGIR Falleg 4ra herb.,
96,7 fm íbúð með sér inngangi á 3. hæð (2
hæðir) í Grafarvogi. Íbúðin er rúmgóð og
vel skipulögð. Stutt í alla þjónustu. Sér
geymsla. Sér merkt bílastæði. V 14,9 millj.
REYRENGI Björt og rúmgóð 95,2
fm, 4ra herb. íbúð á 3. hæð í litlu fjöleigna-
húsi í Grafarvogi. Íbúðinni fylgir sér stæði í
opnu bílskýli. Suð-vestur svalir. Stutt er í
skóla og aðra þjónustu. V. 14,9 millj.
SÓLVALLAGATA Falleg og björt,
ný uppgerð 111,3 fm, 4ra herb. íbúð á 3.
hæð í Vesturbænum. Parket á gólfum.
ÍBÚÐIN ER LAUS NÚ ÞEGAR. V. 16,9 millj.
FLÉTTURIMI Falleg 4ra herb.,
117,7 fm íbúð á 2. hæð, neðst í botnlanga,
ásamt opnu bílskýli. Tvennar svalir með
glæsilegu útsýni. Sér geymsla. V. 17,9 millj.
3ja herbergja
LAUFENGI Falleg og rúmgóð 85,7
fm, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli
í Grafarvogi. Sér inngangur og sér suður lóð.
Fallegt útsýni. Sturtuklefi á baðherb. Inn af
baðherberginu er þvottaherbergi. Parket,
flísar og dúkur á gólfum. V. 13,5 millj.
VEGGHAMRAR Falleg og rúmgóð
92,4 fm, 3ja herb. íbúð á 2. hæð í litlu fjöl-
býli í Grafarvogi. Sér inngangur. Stofan er
björt og með litlum sólskála. Suður svalir.
Íbúðin er í grónu hverfi og er stutt í skóla og
alla þjónustu. V. 14,4 millj.
2ja herbergja
FANNAFOLD Björt og falleg 70,7
vel skipulögð 2ja herb. íbúð á 2. hæð, auk
21,8 fm bílskúrs. Stórar suð-vestur svalir
með miklu útsýni. Stutt í alla þjónustu.
LAUS STRAX. V. 15,0 millj.
SELJABRAUT Rúmgóð 2ja herb.
íbúð á jarðhæð. Að sögn eigenda er hún
60,6 en hjá FMR 56,8 fm. Stofa, eldhús,
svefnherb., baðherb., sér geymsla og sam-
eiginlegt þvottahús. V. 10,5 millj.
Landsbyggðin
GRUNDARFJÖRÐUR 170 fm.
einbýlishús við Grundargötu. 4 svefnherb.,
stórar stofur, ofl. Laust fljótt. V. 9,6 millj.
STYKKISHÓLMUR Mjög rúm-
góð 157,4 fm íbúð á tveimur hæðum við
Höfðagötu. 2 samliggjandi stofur og 4
svefnherb.. Svalir út af hjónaherb.. Útsýni.
V. 10,5 millj.
ÞORLÁKSHÖFN Gott og vel
skipulagt 125,4 fm, endaraðhús ásamt 42,5
fm. bílskúr við Norðurbyggð. 4 rúmgóð
svefnherb.. Fallegur garður. V. 14,5 millj.
Fyrirtæki
ÓLAFSVÍK Iðnaðarhús við Ennis-
braut, byggt árið 1981, samt. 843,9 fm.
Vandað hús sem hentar undir hverskonar
verkstæðis- og iðnaðarstarfsemi. Góð úti-
aðstaða. Kaffistofa, tvö salerni, fata-
geymsla. Góð starfsmanna-aðstaða.
HVERAFOLD - 3JA
HERB. Vel skipulögð og rúm-
góð 3ja herb., 90,5 fm íbúð í litlu
fjölbýli í Grafarvogi. Parket, dúkur
og flísar á gólfum. Suður svalir
með glæsilegu útsýni. Sér geym-
sla og þvottaherb. með glugga á
jarðhæð. Stutt í skóla og alla
þjónustu. Húsið var allt tekið í
gegn að utan fyrir rúmu ári síðan.
Glæsileg eign. V. 13,8 millj.
STÓRHOLT - 2JA
HERB. Mjög falleg 80,1 fm,
2ja herb. íbúð á efri hæð. Nýlegt
gler og rafmagn. Geymsla/íbúð-
arherb. í kjallara. Sameign nýlega
tekin í gegn. Jarðhæðin sem áður
var verslun, hefur verið breytt í
íbúðir. V. 12,3 millj.
VANTAR ÞIG VERÐMAT?
TÖKUM AÐ OKKUR AÐ GERA VERÐMAT SAMDÆGURS.