Fréttablaðið - 25.10.2004, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 25.10.2004, Blaðsíða 38
22 25. október 2004 MÁNUDAGUR „Nýju lögin eiga að skapa meira öryggi og festu á fasteignamark- aðnum. Þau gera stórauknar kröfur til menntunar og reynslu fasteignasala og við bindum mikl- ar vonir við að það skili betri og traustari vinnubrögðum innan stéttarinnar,“ segir Björn Þorri Viktorsson, formaður Félags fast- eignasala, um ný lög um fasteigna- sala sem tóku gildi 1. október síð- astliðinn. Hann segir að nú verði stúdentspróf skilyrði til að komast á námskeið til löggildingar fast- eignasala, svo og 12 mánaða starfsreynsla. Skipuð hafi verið prófnefnd sem móta muni sérstakt námskeið fyrir verðandi fasteigna- sala í samvinnu við Háskóla Ís- lands. Lögin rýmka líka reglur um stofnun útibúa. Nú má fasteigna- sala stofna útibú innan síns sveit- arfélags, sem áður var bannað. Hins vegar hafa faglegar kröfur í útibúunum aukist með tilkomu lag- anna þannig að þar verður nú að vera starfandi löggiltur fasteigna- sali eins og á öðrum fasteignasöl- um. „Annars væri þetta bara eins og að koma á tannlæknastofu þar sem væri enginn tannlæknir,“ segir Björn Þorri til skýringar. Fyrirtæki í fasteignaviðskipt- um þurfa að vera í eigu löggiltra fasteignasala, að minnsta kosti að meirihluta til, og lögin ná líka yfir meðferð fjármuna því hér eftir verður fé viðskiptavina haldið að- skildu frá eigin fé fasteignasölunn- ar. Þá kveða þau á um virkt eftirlit með fasteignaviðskiptum. Þriggja manna eftirlitsnefnd sem í eiga sæti lögmaður, endurskoðandi og löggiltur fasteignasali mun heim- sækja allar fasteignasölur reglu- lega og hefur nefndin vald til að veita fasteignasölum áminningu, svipta þá löggildingu og jafnvel loka skrifstofum þeirra ef um al- varleg brot á viðskiptareglum er að ræða. „Við vonumst til að með nýju lögunum verði sú lausung sem viðgengist hefur í starfs- mannahaldi í starfsgreininni ein- nig upprætt. Þar hefur verið tals- vert um ágóðatengda verktaka- vinnu en nú verður hún í raun bönnuð.“ gun@frettabladid.is Björn Þorri Viktorsson, formaður Félags fasteignasala, bindur miklar vonir við nýju lögin. Ný lög um fasteignasala: Eiga að skila traustari vinnubrögðum Helgi Bjarnason er framkvæmdastjóri Draumahúsa. Nafn og vinnustaður: Helgi Bjarnason viðskiptafræðingur, starfar sem fram- kvæmdastjóri Draumahúsa sem voru að flytja fyrir skömmu í Mörkina 4. Hversu lengi hefur þú verið fast- eignasali? Draumahús tóku til starfa í febrúar 2004 og það var í fyrsta sinn sem ég hafði bein afskipti af fasteigna- sölu. Áður vann ég í öryggisgeiranum. Hvers vegna fórstu í fasteigna- bransann? Ég sá tækifæri til að bjóða seljendum og kaupendum nýja og betri þjónustu á fasteignamark- aðnum. Draumahús brutu blað í sögu fasteignaviðskipta á Íslandi og ég vil hjálpa fólki að spara og koma sem best út úr fasteignaviðskiptunum. Skemmtilegast við starfið? Skemmti- legast er að sjá hversu glaðir við- skiptavinir okkar eru þegar þeir spara sér stórfé með því að selja hjá okkur. Aðalsparnaðurinn er fólginn í fastri söluþóknun þar sem allt er innifalið. Fyrsta eignin sem þú seldir? Blokk- aríbúð í Álftamýri sem fékk sölu- þóknunina gefna í tilefni opnunar Draumahúsa. Uppáhaldshverfið? Að gera upp á milli hverfa á höfuðborgarsvæðinu er mér bara lífsins ómögulegt. Það er lífleg sala hjá okkur í öllum hverf- um höfuðborgarsvæðisins, þannig að ég geri ráð fyrir að hver og einn kaupandi finni sjarmann í sínu hverfi. Hvar myndir þú vilja búa ef ekki í Reykjavík? Ég bý í Mosfellsbæ, hef búið þar í fjögur ár og kann mjög vel við mig. Flottasta húsið? Mér finnst erfitt að dæma um það. Mér finnst hús sem er að verða að heimili viðskiptavinar alltaf fallegast. Flottasta húsið er ekki hús heldur tilfinning, eiginlega húsið sem ég var að selja núna rétt áðan. Hvernig myndir þú lýsa þinni íbúð? Ekki til sölu núna en þegar hún fer á sölu verða hringmyndir af henni á netinu til að kaupendur sjái sjálfir hvernig hún lítur út. Helgi Bjarnason hjá Draumahúsum: Flottasta húsið er heimili SÖLUMAÐUR VIKUNNAR ATH Skoðun eignarinnar er ekki skuldbinding til sölu. Landið Selfoss-Hörðuvellir. Nýkomið í sölu einkar glæsilegt 365 fm einbýli auk 42 fm bílskúrs á besta stað á Selfossi. Fallegar innréttingar og gólfefni. Nánari uppl. á skrif- stofu. Verð tilboð. 3ja herb. ANDRÉSBRUNNUR - GRAFARHOLT 3JA heb. íbúð á 2. hæð ásamt stæði í bílageymslu. Rúmgóð stofa með útgangi út í garð, geymsla og þvottahús innan íbúðar, rúmgott opið elhús, baðher- bergi flísalagt í hólf og gólf.Verð: 16,9 millj. ákv: ca 12 millj. 2ja herb. DIGRANESVEGUR.- SUÐ- URHLÍÐAR KÓP. Mjög rúmgóð 2ja herb. 89 fm neðri sérhæð með sérinngangi og suður garði. Nýlegt parket á stofu, herb. og eldhúsi. Flísalagt baðherb. Snyrtileg hvít innr. Þvottahús og geymsla innaf íbúð. Mjög góð eign á sólrík- um stað. V. 13.9 m. Sumarbústaðir SUMARHÚS - KLAUSTUR. Skemmtilega hannaður 60,8 fm sumarbústaður í landi Efri Víkur við klaustur.Byggður 2004 FULLINNÉTTAÐUR MEÐ ÖLLUM HÚSGÖGNUM Stutt í veiði, einstakt útivistarsvæði. Verð 8,4 millj. Uppl. gefur Ólafur í S:530-4600/ 864-1243 Atvinnuhúsnæði ÞINGHOLTSSTRÆTI Glæsilegt 468,5 fm húsnæði sem er ný tekið í gegn að innan. Húsnæðið er á tveimur hæðum. Hentar afar vel fyrir félagasamtök eða annan atvinnu- rekstur. Ýmis skipti ath. Allar nánari uppl á skrifstofu. IÐNBÚÐ GARÐABÆ Í einkasölu 573 fm atvinnuhúsnæði og tvær íbúðir 72 fm hvor íbúð. Um er að ræða heila húseign með stóru malbikuðu plani. Gott langtímalán. V. 56 m. ATVINNUHÚSNÆÐI - VAGNHÖFÐI. Gott 240 fm atvinnuhúsnæði + 60 fm geymsla í kjallara á þessum vinsæla stað á Höfðanum. Mikil lofthæð, gott bílsatæða- pláss. TILBOÐ ÓSKAST. Uppl gefur Ólafur í S:530-5600/ 864-1243 Sigurður Örn Sigurðason löggiltur fasteignasali ÓSKALISTINN Höfum ákveðna kaupenur að eftritöldum eignum: –––––––––– 3ja herbergja íbúð á svæði 101. má þarfnast lagfæringar. –––––––––– Fjársterkir kaupendur óska eftir 150 til 200 fermetra hæð eða húsi í Fossvogi. –––––––––––- 3ja til 4ra herbergja íbúð í bökk- unum verð allt að 13 milj. –––––––––––- Rað eða parhúsi í Seljahverfi v. allt að 26 millj fyrir gott hús. –––––––––––- Vantar 4-5 svefniherbergja hús, íbúð eða hæð hellst í kringum Langholtsskóla verð allt að 20 milj. –––––––––––––––- Vantar einbýlishús í Grafarvogi verð allt að 35 millj. –––––––––––––––- Birnu vantar 4 herbergja íbúð í Kópavogi, hellst í kringum smárahverfið, verður að vera á jarðhæð. Verð allt að 18 millj. –––––––––––––––– Lindu vantar 4ra herbergja íbúð í sala eða lindahverfi hellst með bískýli. –––––––––––––––– Bergþóru vantar 4ra svenih. húsnæði á svæðinu í kringum Hvassaleitisskóla. Svæði 103 eða 108. Verð allt að 25 mill. SELJENDUR FASTEIGNA ATH. Vegna mikillar sölu hjá okkur und- anfarið vantar okkur allar stærðir og gerðir af eignum á skrá. Framundan er er mjög lífleg tíma- bil í fasteignaviðskiptum þarsen nýir valkostir í lánamálum standa til boða.. Ef þú ert að huga að sölu á fasteign þinni vinsamlegast hafðu samband við okkur hjá EIGNALISTANUM. Við komum til þín skoðum og verðmetum eign- ina og ræðum sölumöguleika. ATH Skoðun eignarinnar er ekki skuldbinding til sölu. SKIPASUND: Mjög snyrtileg efsta hæð í þríbýlishúsi.Sérinngangur. Tvö svefni- herbergi, stofa og borðstofa. Stórt eldhús með nýlegri innréttingu, gott flísalagt bað- herbergi með nýlegri innréttingu og sturtu- klefa. V: 15,9 millj. KRISTNIBRAUT- GRAFAR- HOLTI Mjög skemmtilega skipulögð 4ra herb. íbúð á jarðhæð í þessu barnvæna hverfi. 3 svefniherbergi, stórt baðherbergi, þvottahús innan íbúðar og afgirt verönd út frá stofu.V: 20,5 millj. EIGNALISTINN VANTAR ALLAR GERÐIR AF EIGNUM Á SÖLUSKRÁ OKKAR Íbúðir - Hús - Hæðir- Iðnaðarhús- næði - Fyrirtæki - Sumarhús - Sumarhúsalóðir. MIKIL SALA, MIKIÐ FJÖR, EIGNALISTINN ÖRUGG MIÐLUN FASTEIGNA Sigurður Ö. Sigurðarson viðsk.fr. og lögg.fast. Ágústína G. Pálmarsdóttir skjalavinnsla Guðfinna Sverrisdóttir ritari Ólafur Þór Gíslason sölumaður Gsm 864 1243 Kolbrún Eysteinsdóttir viðsk.fr. Sími 530 4603
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.