Fréttablaðið - 25.10.2004, Síða 51
MÁNUDAGUR 25. október 2004
Uppeldisbókin - Að byggja uppfærni til framtíðar er komin út hjá
Skruddu. Efni bókarinnar byggir á
viðurkenndri þekkingu og traustum
rannsóknum innan sálfræðinnar, sér-
staklega á sviði hugrænnar sálfræði
og atferlissálfræði en er þó mjög að-
gengileg fyrir alla. Hún er skrifuð með
foreldra í huga og nýtist því bæði for-
eldrum sjálfum og öðrum sem starfa
við kennslu barna, uppeldi og uppeld-
isráðgjöf. Bókin var sérstaklega valin
til að verða grunnur námskeiða fyrir
foreldra og námskeiðsleiðbeinendur
sem haldin verða á vegum Miðstöðv-
ar heilsuverndar barna á næstunni.
Bókin er eftir bandaríska barnasál-
fræðinga, dr. Edward R. Christopher-
sen og dr. Susan L. Mortweet og er
þýdd af Gyðu Haraldsdóttur barna-
sálfræðingi og Matthíasi Kristiansen
þýðanda.
NÝJAR BÆKUR
Flosi Ólafsson hefur ekki setið auð-um höndum og sendir nú frá sér
bók annað árið í röð.
Hér er um að ræða
krassandi literatúr að
hætti höfundar og
hefur bókin fengið
nafnið Heilagur sann-
leikur. Bókin fjallar að
miklu leyti um konur
enda hafa þær frá
fyrstu tíð verið eitt
helsta áhugamál höf-
undar, alveg frá því að hann man fyrst
eftir sér. Eða eins og segir í ritverkinu
Heilagur sannleikur: „Ég minnist þess
að þegar félagar mínir í Miðbæjar-
skólanum voru í bófahasar, Tarsan-
leikjum eða þá að smíða flugvéla-
módel og safna frímerkjum, þá lá ég
einhverstaðar á afviknum stað og
hugsaði um kvenfólk. Þegar ég var
níu og tíu ára grét ég mig í svefn á
hverju kvöldi, tættur af ástarsorg og
aldrei útaf sama kvenmanninum. Ég
var með kvenfólk á heilanum. Og er
enn. Það gefur augaleið að maður
sem lungann af heilli öld einbeitir sér
að jafn afmörkuðu umhugsunarefni
og konan er, fer ósjálfrátt að öðlast
meiri þekkingu á fyrirbrigðinu en hin-
ir sem eru sífellt að hugsa um eitt-
hvað annað en kvenfólk.“
Skrudda gefur bókina út.
NÝJAR BÆKUR
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Þingholt
Veislusalur fyrir öll
tilefni
Spennandi matseðlar og
veitingar
Skoðið verðið á
www.holt.is
• • •
• • •
• • •