Fréttablaðið - 25.10.2004, Síða 55
MÁNUDAGUR 25. október 2004 23
Boston Red Sox og St. Louis Car-dinals áttust við í úrslitum MLB-
hafnboltadeildar-
innar í Bandaríkjun-
um um helgina. Lið-
ið sem fyrst verður
til að vinna fjóra
leiki verður heims-
meistari. Red Sox
vann leikinn 11-9
og komst á spjöld
sögunnar fyrir það
að aldrei hefur opn-
unarleikur heimsúrslita verið með
jafnhátt stigaskor og í ár.
2. nóvember næstkomandi munufulltrúar leikmanna í NHL-ís-
hokkídeildinni funda með eigendum
liða deildarinnar, sem eru þrjátíu
talsins. Bera menn veika von í brjósti
um að geta leyst deiluna, sem staðið
hefur undanfarinn mánuð, en deild-
inni hefur verið slegið á frest meðan
á deilunni stendur. Fram að þessu
hafa 59 leikir farið forgörðum og er
ekki útlit fyrir að flötur finnist á mál-
ið á næstunni. Ekkert hefur verið
fundað um málið síðan í byrjun sept-
ember og sjá íshokkíunnendur ekki
fram á annað en að þurfa að bíða
fram á næstu leiktíð til að seðja ís-
hokkíþorstann sinn.
Steinar Ingimundarson, þjálfariknattspyrnuliðs Fjölnis í 1. deild,
hefur sagt starfi sínu lausu. Steinar,
sem var á mála hjá Fjölni í þrjú ár,
vann liðið upp um tvær deildir á sín-
um tíma. Fjölnir kveður Steinar með
miklum söknuði enda árangurinn
með glæsilegra móti. Að sögn Birgis
Gunnlaugssonar, varaformanns
Fjölnis, leitar félagið nú að manni í
stað Steinars og vonast Fjölnismenn
til að geta fyllt þá stöðu hið fyrsta.
Jayson Williams er einna þekktast-ur fyrir að hafa skotið einkabílstjóra
sinn til bana af gáleysi fyrir nokkrum
árum síðan. Kappinn var sýknaður af
ákæru um manndráp en gæti átt yfir
höfði sér 10 ára fangelsi fyrir að
reyna að þagga atburðinn niður.
Williams lék níu tímabil með New
Jersey Nets í NBA en neyddist til að
setjast í helgan stein vegna meiðsla.
Hann hefur æft með Cleveland
Cavaliers og stefnir að endurkomu í
NBA í vetur. Paul Silas, þjálfari
Cavaliers, sagði að Williams gæti
komið að góðum notum fyrir félagið.
Ekki eru allir jafn ánægðir meðendurkomu Grant Hill í NBA-
deildina en kappinn hefur misst
bróðurpartinn úr síðustu
fjórum tímabilum vegna
ökklameiðsla. Einn af
svokölluðum njósnurum
deildarinnar, sem sjá um
að finna unga efnilega
leikmenn, sagði Hill
hvorki fugl né fisk
miðað við gamla
tíma. „Hann er ekki
með sama sprengi-
kraft og nær ekki
að fara jafn sterkt
upp í stökkskotin. Hann er ekki jafn
hættulegur og í gamla daga,“ sagði
njósnarinn. Hill, sem er 32 ára gam-
all, hefur engu að síður skorað 11,5
stig, tekið 4,7 fráköst og gefið 2,2
stoðsendingar að meðaltali í þeim
fjórum leikjum sem hann hefur tekið
þátt í.
Eitthvað fer fótboltinn illa með menní Þýskalandi en nýlega skráði
Sebastian Deisler hjá Hertha Berlin
sig í geðmeðferð. Félagi hans hjá
Berlínarliðinu, Josip
Simunic, fullyrðir að ann-
ar hver leikmaður í þýsku
úrvalsdeildinni eigi við
þunglyndi að stríða sök-
um álagsins sem fylgir því
að vera í boltanum. „Þeir
vilja bara ekki viðurkenna
það,“ sagði Simunic, sem segist sjálfur
hafa átt slæma tíma á ferlinum. „Sér-
staklega þegar ég lék með Hamburger
SV. Það komu tímar þar sem ég svaf
ekki í allt að viku í senn.“
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Meistarar í aflraunum
Dalvegi 6-8 · 201 Kópavogur
Sími 535 3500 · Fax 535 3509
www.kraftvelar.is
Formúla 1 í Brasilíu:
Montoya hlutskarpastur
KAPPAKSTUR Juan Pablo Montoya
vann síðasta kappakstur ársins í
Formúlu 1 sem fram fór í Bras-
ilíu í gær. Var þetta jafnframt
fyrsti sigur hans á tímabilinu en
Finninn Kimi Räikkönen kom
næstur og heimamaðurinn
Barrichello varð þriðji.
Þetta var fyrsti sigur Willi-
ams-liðsins síðan í ágúst í
Þýskalandi þegar Montoya sigr-
aði einnig en veðurfarið í Sao
Paulo hafði sitt að segja fyrir
keppnina. Gerði mikla rigningu
áður en keppnin hófst og gafst
lítill tími til að íhuga dekkjaval
áður en lagt var af stað. Gat
Räikkönen nýtt sér það einna
best og náði forystu eftir þrjá
hringi. Þegar aftur byrjaði að
rigna eftir 30 hringi náði
Montoya að rífa sig fram úr og
hélt fyrsta sætinu til endaloka.
Heimsmeistarinn Michael
Schumacher endaði í sjöunda
sæti eftir að hann hóf keppni í
átjánda sæti eftir árekstur í æf-
ingum fyrir keppnina. ■
MONTOYA ÁSAMT BARRICHELLO
Rigning setti svip sinn á síðasta Formúlu 1
kappaksturinn á þessu tímabili en úrslitin
höfðu lítið að segja þar sem Michael
Schumacher hafði löngu áður tryggt sér
heimsmeistaratitilinn.