Fréttablaðið - 25.10.2004, Side 62
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Nissan.
24. október 1975.
Í júní 2005.
30 25. október 2004 MÁNUDAGUR
Félagsmiðstöðvar reyna eftir
mesta megni að hafa ofan af fyrir
unga fólkinu sem annars hangir
heima heilu dagana í verkfallinu.
Flestar eru þær með óbreyttan
opnunartíma en reyna að vera
duglegri en áður að hafa meiri
dagskrá á daginn þegar ungling-
arnir hefðu annars verið í skólan-
um.
„Þetta er auðvitað aukið álag á
okkur starfsmennina því krakk-
arnir eru orðnir pirraðir og
miklu meiri læti í þeim en áður.
Þau eru ekki jafn þreytt á daginn
eins og þau vanalega eru eftir
skólann og þarf því meira til að
halda þeim uppteknum,“ segir
Ottó Tynes í félagsmiðstöðinni
Bústöðum.
Starfsfólk Bústaða hefur
einnig ákveðið að auka leitarstarf-
semi sína sem felst í því að rölta
um hverfið á kvöldin og fylgjast
með krökkunum. „Við höfum
alltaf verið með þessa starfsemi á
föstudagskvöldum en núna eru öll
kvöld eins og föstudagskvöld hjá
krökkunum. Þau geta alltaf sofið
út og því nauðsynlegt að fylgjast
með þeim.“
Félagsmiðstöðin Ekkó er ein-
nig með fulla starfsemi og
óbreyttan opnunartíma. „Fyrstu
þrjár vikurnar var allt brjálað að
gera en það hefur minnkað aðeins
að undanförnu. Það er mikið rót á
krökkunum núna,“ segir Agnes
Sif Andrésdóttir, starfsmaður
Ekkós.
„Þetta er farið að hafa ansi
slæm áhrif á krakkana og ég held
að þeim líði ekki vel. Það eru allir
hundleiðir á þessu.“ Ýmiss konar
skemmtileg dagskrá hefur verið í
boði hjá félagsmiðstöðinni og hafa
unglingarnir meðal annars skipu-
lagt tónleika, Casino-kvöld, Sköp-
unardag, diskótek og um helgina
er leiklistarsmiðja.
„Krakkarnir eru rosalega
þakklátir fyrir að hafa eitthvað að
gera og vilja helst vera að allan
daginn. Þau eru orðin ansi eirðar-
laus þessa dagana,“ segir Agnes.
- sigyn
– hefur þú séð DV í dag?
Barnsföður Thelmu
grunar hver
nauðgaði henni
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnar-
ness er félag áhugamanna um
stjörnufræði á Íslandi og var
stofnað árið 1976. „Við félags-
menn, sem erum um 100-200
manns, hyggjumst nú setja kraft í
starfsemi félagssins og höfum
gefið út fréttabréf,“ segja þeir
Sævar Helgi Bragason og Sverrir
Guðmundsson, umsjónarmenn
fréttabréfsins. Fréttabréfinu er
dreift til félagsmanna en er einnig
dreift á netinu á síðunni
www.stjornuskodun.is.
Í fréttabréfinu er meðal ann-
ars umfjöllun um tunglmyrkva
sem verður aðfaranótt fimmtu-
dags. Tunglmyrkvar verða þegar
tunglið gengur inn í skugga jarð-
ar þegar jörðin er stödd milli sól-
ar og tungls og gerist þetta á
tveggja til þriggja ára fresti.
Myrkvinn sést í heild sinni á Ís-
landi og hefst kl. 00.06 og lýkur
klukkan 06.03.
„Starfsemi félagsins snýst
aðallega um að standa fyrir
stjörnuskoðunarviðburðum og
efla áhugann á stjörnuskoðun
meðal almennings,“ segja þeir
Sævar og Sverrir. „Við í félaginu
höfum að sjálfsögðu brennandi
áhuga á stjörnuskoðun og stefn-
um við tveir báðir á menntun á
því sviði. Við hvetjum að lokum
alla til að kíkja á tunglmyrkvann
aðfaranótt fimmtudags.“ ■
Tunglmyrkvi aðfaranótt fimmtudags
SVERRIR GUÐMUNDSSON OG SÆVAR HELGI BRAGASON Umsjónarmenn nýs
fréttablaðs Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnaness.
FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR Nóg er að gera í félagsmiðstöðvum landsins þessa dagana og reynir starfsfólk að hafa ofan af fyrir unga fólkinu.
Félagsmiðstöðvar: Starfsemi er enn í fullum gangi
Krakkarnir orðnir þreyttir og eirðarlausir
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
...fær hljómsveitin Keane fyrir
stórkostlega tónleika í Hafnar-
húsinu á Iceland Airwaves-hátíð-
inni á laugardag.
HRÓSIÐ
Lárétt: 1 land, 6 sunna, 7 fæði, 8 skáld,
9 stríðni, 10 gljúfur, 12 bein, 14 yrki, 15
komast, 16 belti, 17 beita, 18 bára.
Lóðrétt: 1 duft, 2 uppistaða, 3 verkfæri,
4 kona, 5 rödd, 9 málmur, 11 lítið fjall,
13 veifa, 14 eyða, 17 tveir eins.
Lausn
Lárétt: 1alaska,6sól,7el,8kn,9ert,
10gil, 12rif, 14sem,15ná,16ól,17
agn,18alda.
Lóðrétt: 1aska,2lón,3al,4kerling,5
alt,9eir, 11fell,13fáni,14sóa,17aa.
„Guðfaðirinn er ein af þessum myndum sem standa upp
úr,“ segir Börkur Gunnarsson kvikmyndagerðarmaður,
sem í síðustu viku frumsýndi hér á landi Svarta kaffið sitt
í Háskólabíói.
„Í þessari mynd er frábær sögubygging og alveg yndisleg
fjölskyldubönd þar sem menn eru samt í einhverjum
svörtum bisness. Það sem er svo fallegt í Guðföðurnum
er að þrátt fyrir alla glæpina er þetta mynd um fjöl-
skylduföður sem af fullri einlægni gerir allt fyrir börnin
sín. Coppola nær þarna að gera glæpamenn að góðu
mönnunum.“
Börkur segir myndirnar um Guðföðurinn hafa haft
gríðarleg áhrif á aðra kvikmyndagerðarmenn.
„Út frá þessari mynd hafa komið svo margar góðar
myndir, eins og til dæmis Festen eftir Thomas Vinter-
berg. Þar er fjölskyldubyggingin alveg eins og í Guðföð-
urnum, með sterkan fjölskylduföður til dæmis og mið-
sonurinn veikur.
Francis Ford Coppola gerði þrjár kvikmyndir um sögu
Corleone-fjölskyldunnar. Sú fyrsta, frá árinu 1972, skart-
aði Marlon Brando í hlutverki fjölskylduföðurins Don
Corleone. Meðleikarar hans voru ekki af verri endanum,
kappar á borð við Al Pacino, James Caan og Robert
Duvall að ógleymdri Diane Keaton.
„Fyrsta myndin er auðvitað mest heillandi, kannski af því
að hún braut ísinn. Hún skartaði líka Marlon Brando en
þegar þeir settu hana á markað vissu þeir ekkert hvern-
ig viðtökurnar yrðu.“
Tveimur árum síðar kom næsta mynd, þar sem Marlon
Brando var reyndar fjarri góðu gamni.
Lengi vel héldu menn að myndirnar yrðu ekki nema
tvær, en árið 1990 tók Coppola upp á því að senda frá
sér þriðju myndina, sem mörgum þykir reyndar standa
hinum tveimur nokkuð að baki. Börkur tekur ekki undir
slíkt og vill alls ekki gera upp á milli myndanna þriggja.
„Það eru svo margir sem segja að fyrsta myndin sé frá-
bær, sú næsta sæmileg en sú þriðja ömurleg. En ég er
bara ekki sammála því, mér finnst þær allar frábærar.“
| SÉRFRÆÐINGURINN |
GÓÐA VONDA FÓLKIÐ „Coppola nær þarna að
gera glæpamenn að góðu mönnunum.“
Kvikmyndin: Guðfaðirinn stendur upp úr
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »