Fréttablaðið - 31.10.2004, Side 23

Fréttablaðið - 31.10.2004, Side 23
5 ATVINNA Hæfingarstöðin við Skógarlund Óskar að ráða þroskaþjálfa til starfa frá og með 1. des- ember n.k. eða eftir samkomulagi. Um er að ræða 100% starf sem skiptist í annars vegar 50% stöðu almenns þroska- þjálfa á Deild skapandi starfs og hins vegar 50% deildarstjórastöðu á Ungmennadeild. Hæfingarstöðin er fyrir fullorðið fatlað fólk sbr. 26. grein laga um málefni fatlaðra er hefur þann tilgang að draga úr áhrifum fötl- unar og auka færni hins fatlaða til þátttöku í daglegu lífi. Hlutverk Hæfingarstöðvarinnar er að veita því fólki (létta vinnu, þjálfun, ummönnun og afþreyingu) sem þarf vegna fötlunar sinnar sérhæfða og einstaklingsmiðaða þjónustu. Laun eru samkvæmt samningi Þroskaþjálfa- félags Íslands og Launanefndar sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 15.nóvember og skal umsóknum skilað til forstöðuþroskaþjálfa Margrétar Ríkarðsdóttur, Hæfingarstöðinni við Skógarlund, 600 Akureyri. Nánari upplýsingar gefur forstöðuþroskaþjálfi í síma 462-1754 og 462-1755 alla virka daga kl. 08:00 til 16:00. Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is Svæðisstjóri á norðurlandi ISS Ísland - Ármúla 40 - 108 Reykjavík - Sími 5 800 600 - Fax: 5 800 666 - www.iss.is Tryggvabraut 10 - 600 Akureyri - Sími 460 6250 - Fax: 462 7842 Fagmennska í áratugi Umsóknum sé skilað til skrifstofu ISS Ísland ehf, Ármúla 40, 108 Reykjavík, merkt “Svæðisstjóri” fyrir kl: 17:00 þann 8. nóvember 2004. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Jón Trausti Leifsson í síma 5 800 600. ISS Ísland ehf. er stærsta fyrirtæki landsins á sviði daglegra ræstinga og þrifa í matvælaiðnaði, fyrirtækið hefur starfað í yfir 24 ár. ISS Ísland er leiðandi fyrirtæki á Íslandi á sviði fasteignaumsjónar. Fyrirtækið hefur tekið að sér að reka til 25 ára nýtt og glæsilegt húsnæði fyrir rannsóknir og nýsköpun við Háskólann á Akureyri. Hjá ISS Ísland starfa yfir 630 manns á aldrinum 17 - 80 ára. Starfsmenn fá kennslu, þjálfun, bestu áhöld og efni sem völ er á. Einnig fá starfsmenn stuðning frá ræstingar-, þrifa- og flokkstjórum. Vegna aukinna umsvifa leitar ISS Ísland ehf að svæðisstjóra til að stýra uppbyggingu og rekstri fyrirtækisins á norðurlandi. Hjá ISS á Akureyri starfa nú yfir 130 starfsmenn Starfssvið; -Stýra uppbyggingu og rekstri -Sala og markaðsmál -Starfsmannamál Menntunar og hæfniskröfur; -Iðnrekstrarmenntun eða sambærilega menntun -Frumkvæði, metnaður og skipulögð vinnubrögð -Sjálfstæði og færni í mannlegum samskiptum Múrarar og verkamenn Flísalagnir ehf. óska eftir að ráða múrara vana flísalögnum og verkamenn til vinnu. Upplýsingar veitir Grettir Einars- son í síma 897-3436. Einnig er hægt að senda umsóknir á flisar@flisar.is Framkvæmdarstjóri Sölufyrirtæki í Evrópu leitar að framkvæmdarstjóra. Um tímabundið verkefni er að ræða, með möguleika á framtíðarstarfi. Umsækjandi þarf að geta hafið störf strax. Reynsla af stjórnun og kunnátta í ensku og frönsku eða þýsku er algjört skilyrði. Fjármálakunnátta er mjög æskileg. Sendið umsókn ásamt ítarlegu yfirliti um nám og fyrri störf á netfangið: frkv.stj@visir.is Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Laust starf Leikskólinn Krakkaborg Hraungerðishrepp, auglýsir eftir leikskólakennara inn á deild. Ef ekki fæst leik- skólakennari til þessa starfs kemur til greina að ráða leiðbeinanda. Umsóknir berist með netpósti á: leikskoli@simnet.is eða í síma 482-3085. Umsóknarfrestur er til 4. nóvember. Þórdís Bjarnadóttir leikskólastjóri.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.