Fréttablaðið - 04.11.2004, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FIMMTUDAGUR
FRUMBYGGJAKONUR Ástralski
bókmenntafræðingurinn Anne Brewster
flytur fyrirlestur um bókmenntir ástralskra
frumbyggjakvenna á vegum Rannsóknar-
stofu í kynja- og kvennafræðum í stofu
101 í Odda í Háskóla Íslands klukkan
fimmtán mínútur gengin í eitt í dag.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
4. nóvember 2004 – 302. tölublað – 4. árgangur
mormónar í utah gætu komið til bjargar
Gömul lög torvelda
ættfræði
Oddur Helgason:
▲
SÍÐA 42
FORSTJÓRAR AXLI
ÁBYRGÐ Þingmenn
allra flokka eru sammála
um að olíusamráðið hafi
verið grafalvarlegt sam-
félagsvandamál. Flest
eru þau sammála um að
forstjórarnir þurfi að axla
sína ábyrgð og segja
erfitt að meta hvaða áhrif skaðabótamál
munu hafa. Sjá síðu 6
MARKAÐSSVEIFLUR ÝKTAR For-
stjóri Fjármálaeftirlitsins telur hættu á að
eignatengsl ýki sveiflur á markaði. Hann
segir að í sumum tilvikum hafi ekki verið
hugað nægjanlega vel að fjármögnun
íbúðalána. Sjá síðu 8
ENGAR ENDURBÆTUR Ytri klæðning
Þjóðleikhússins er illa farin af skemmdum.
Stefnan var að ganga í endurbætur þegar
Þjóðmenningarhúsi og Þjóðminjasafni væri
lokið. Slíkt er þó ekki að finna í fjármála-
frumvarpi fyrir næsta ár. Sjá síðu 10
ANDLEGUR MISKI RÁÐI Gunnleifur
Kjartansson, hjá ofbeldisbrotadeild lögregl-
unnar, vill neyðarmóttöku fyrir þolendur
heimilisofbeldis. Hann segir ákvæði í lög-
um um nálgunarbann ekki virka sem skyldi
og á því þurfi breytingar. Sjá síðu 14
Kvikmyndir 38
Tónlist 36
Leikhús 36
Myndlist 36
Íþróttir 36
Sjónvarp 40
● tíska ● heimili ● ferðir ● tilboð
Hannar föt
úr ull
Kolbrá Bragadóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
SV-horninu og Akureyri
Me›allestur á tölublað*
Konur
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups október '04 (Vikulestur á Birtu)
72%
49%
MorgunblaðiðBirta
SNJÓKOMA EÐA ÉL á norðanverðu
landinu. Hangir væntanlega þurr í borg-
inni. Bjartviðri á Suðausturlandi. Varist
vindstrengi við fjöll austan til. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Dagur verði
borgarstjóri
Innan R-listans liggur fyrir tillaga um að Dag-
ur B. Eggertsson taki við starfi borgarstjóra.
Óvíst um árangur af átakafundi í gærkvöld.
ELDGOS „Þegar gosið fór að aukast
um klukkan fimm og við að huga
að heimferð urðum við varir við
titring í jöklinum og vorum að tala
um að þá hefði verið gaman að sjá
jarðskjálftamælana hjá þeim á
Veðurstofunni,“ sagði Jón Ólafur
Magnússon fjallamaður, sem fór á
þriðjudaginn í jeppaferð upp á
Vatnajökul til að sjá Grímsvatna-
gosið í návígi. Hann segir þá
félaga sem lögðu í ferðina þó
aldrei hafa verið í hættu stadda.
„En þetta var alveg magnað og
nokkuð sem maður á aldrei eftir
að upplifa aftur.“
Virkni í Grímsvötnum hefur
minnkað frá því gosið hófst í
fyrrakvöld en talsverð gjóska
fellur enn norðan jökuls. Hlaupinu
í Skeiðará er lokið og vegurinn um
sandana því öllum fær. - óká
M
YN
D
/JÓ
M
VIÐ GOSSTRÓKINN Á þriðjudag fóru nokkrir vanir fjallamenn í jeppaferð upp á Vatna-
jökul til að sjá eldgos í návígi. Ferðin upp á jökul tók fleiri klukkustundir og náðu ferða-
langarnir bæði að festa sig í á og jökulsprungu á leiðinni.
Eldgosið í Grímsvötnum:
Mögnuð upplifun
Bush endurkjörinn með 59 milljón atkvæðum:
Hefjum tímabil vonar
BANDARÍKIN „Við hefjum nú tímabil
vonar,“ sagði George W. Bush
Bandaríkjaforseti þegar hann
ávarpaði þúsundir stuðningsmanna
sinna sem fögnuðu endurkjöri hans.
„Bandaríska þjóðin hefur mælt
og ég er auðmjúkur frammi fyrir
því trausti sem samlandar mínir
hafa sýnt mér. Því trausti fylgir
skylda til að þjóna öllum Banda-
ríkjamönnum,“ sagði Bush, sem
beindi orðum sínum til þeirra sem
kusu mótframbjóðanda hans, John
Kerry. „Ég þarf á trausti ykkar og
samstarfi að halda svo þjóð okkar
megi verða sterkari og betri. Ég
mun gera allt í mínu valdi til að
ávinna mér traust ykkar,“ sagði
Bush og bætti við: „Þegar við kom-
um saman og vinnum saman eru
engin takmörk fyrir því hvað
Bandaríkin geta gert.“
Bush sagði helstu mál seinna
kjörtímabils síns vera að bæta úrelt
skattkerfi, ráðast í endurbætur á
velferðarkerfinu og hafa málefni
fjölskyldu og trúar í fyrirrúmi.
Sigur Bush var stærri en búist
var við. 59 milljónir Bandaríkja-
manna, 51 prósent kjósenda,
greiddu honum atkvæði sitt í kosn-
ingum sem einkenndust af óvenju
mikilli kjörsókn. Hingað til hefur
mikil kjörsókn helst verið talin
gagnast demókrötum en því var
öfugt farið í þetta skipti. Sjá síðu 2
STJÓRNMÁL Tillaga liggur fyrir inn-
an Reykjavíkurlistans um að Dag-
ur B. Eggertsson borgarfulltrúi
taki við starfi borgarstjóra og
Þórólfur Árnason segi af sér
vegna þátttöku í samráði olíu-
félaganna.
Borgarfulltrúar Reykjavíkur-
listans komu saman til fundar í
gærkvöld þar sem rætt var
um framtíð listans. Fundur
stóð enn þegar blaðið fór í
prentun og óvíst um áran-
gur, en vitað að tillaga um
Dag sem borgarstjóra ligg-
ur fyrir. Gert er ráð fyrir
áframhaldandi fundahöld-
um í dag. Árni Þór Sigurðs-
son, forseti borgarstjórnar
og fulltrúi Vinstri grænna á
Reykjavíkurlistanum, er
staddur í Þýskalandi og talið er að
það hafi tafið fyrir um úrlausn
málsins.
Borgarfulltrúar Vinstri
grænna og grasrótin í flokknum
hafa ekki getað sætt sig við
áframhaldandi setu Þórólfs Árna-
sonar sem borgarstjóra. Vara-
þingmaður flokksins sagði við
Fréttablaðið að Þórólfur yrði að
þekkja sinn vitjunartíma og að
borgarstjóri þyrfti að vera hafinn
yfir allan vafa. Þáttur hans í sam-
ráði olíufélaganna varpaði skugga
á samstarfið.
Miklar annir voru hjá fulltrúum
Reykjavíkurlistans vegna málsins
í gær. Fyrst komu þeir saman um
morguninn þar sem fulltrúar
Vinstri grænna voru gagnrýndir
harðlega fyrir að neita að lýsa yfir
stuðningi við borgarstjóra. Að
sama skapi gagnrýndu Vinstri
grænir Önnu Kristinsdóttur, full-
trúa Framsóknar í borgarstjórn,
fyrir ótímabærar yfirlýsingar um
að borgarfulltrúar treystu allir
borgarstjóra; hún hafi ekki haft
umboð til slíks.
Formenn flokkanna standa að
Reykjavíkurlistanum komu svo
saman í hádeginu og
sammæltust um að
flokksmenn fengju að
taka þátt í ákvörðunum
um framtíð listans, í stað
borgarfulltrúa einna.
Fulltrúar flokkanna
funduðu svo síðdegis
hver í sínu lagi með
stjórnum sinna flokks-
félaga. Að þeim fundum
loknum hittust borgar-
fulltrúarnir á skrifstofum borgar-
fulltrúa við Tjarnargötu, gegnt
ráðhúsinu, á meðan Þórólfur
Árnason borgarstjóri og Alfreð
Þorsteinsson, formaður borgar-
ráðs, komu til fundar í ráðhúsinu.
Skömmu síðar gengu borgarfull-
trúarnir allir á fund með borgar-
stjóra þar sem Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir bættist í hópinn. Spurð
hvort Þórólfur nyti enn hennar
stuðnings sagði hún: „Vandamálið
snýst um að Þórólfur er búinn að
starfa sem borgarstjóri, heill í
sínu starfi og heiðvirður. Fyrir
alla sem standa að Reykjavíkur-
listanum snýst málið um hvort
þeir geti staðið vörð um borgar-
stjórann sinn án þess að standa
vörð um þetta samráð olíufélag-
anna sem allir fordæma að sjálf-
sögðu.“ - ghg
DAGUR B.
EGGERTSSON
LEITAÐ AÐ LYKLAVÖLDUNUM
Þórólfur Árnason borgarstjóri og Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins,
koma til fundar í ráðhúsinu í gærkvöld til fundar um framtíð R-listasamstarfsins.
FORSETAHJÓNIN FAGNA
George og Laura Bush fögnuðu sigri
repúblikana, sem var afgerandi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L