Fréttablaðið - 04.11.2004, Blaðsíða 48
KÖRFUBOLTI Keflvíkingar tóku á
móti franska liðinu Reims í
Bikarkeppni Evrópu í körfuknatt-
leik í Sláturhúsinu í Keflavík í
gær. Keflvíkingar tóku þátt í Evr-
ópukeppninni í fyrra, náðu þá
prýðisárangri og voru staðráðnir í
að byrja keppnina sterkt í ár.
Jafnræði var með liðunum
fyrstu tvær mínúturnar en þá
fóru Keflvíkingar í gang og skor-
uðu 14 stig í röð. Leikur gestanna
riðlaðist töluvert á þessum leik-
kafla enda lék Keflavík sterka
pressu- og svæðisvörn sem gerði
það að verkum að Reims tapaði
boltanum ítrekað. Gunnar Einars-
son fór hreinlega á kostum í fyrri
hálfleik, skoraði alls 22 stig, þar
af 6 þriggja stiga körfur. Þá komst
Magnús Gunnarsson einnig vel
frá sínu og gladdi augað með góð-
um sendingum. Skemmtilegur og
útsjónarsamur leikmaður þar á
ferð.
Leikmenn Reims virtust hálf-
vankaðir og engan veginn með á
nótunum í leiknum. Staðan í leik-
hléi var 53-33.
Heimamenn héldu uppteknum
hætti í seinni hálfleik og náði
franska liðið ekki af neinu viti að
sýna hvers það er megnugt.
Í lokafjórðungnum reyndu
leikmenn Reims hvað þeir gátu til
að höggva í muninn og náðu for-
skotinu niður í fjórtán stig. Þá tók
Magnús Gunnarsson sig til og
skoraði tvær þriggja stiga körfur
í röð og gerði vonir gestanna að
engu. Lokatölur urðu 93-74.
Gunnar Einarsson átti stórleik
hjá Keflvíkingum og þá voru
Magnús Gunnarsson og Anthony
Glover traustir. Ryan Fletcher,
sem á að heita besti maður Reims,
átti erfitt uppdráttar gegn þéttri
vörn Keflvíkinga og lét þar að
auki dómara leiksins fara mikið í
taugarnar á sér. Lið gestanna var í
heild frekar slappt en er þó líklegt
að það geti bitið töluvert fastar frá
sér en í gærkvöld, enda er þar að
finna mjög hæfileikaríka einstak-
linga. „Við erum búnir að spila upp
og ofan fram að þessu en sýndum
það og sönnuðum að við vorum til-
búnir. Þessi leikur gefur okkur
góð fyrirheit. Reims er lið úr A-
deildinni í Frakklandi, einni af
sterkustu deildum Evrópu. Þetta
segir okkur það að það er eitthvað
að gerast í íslenskum körfubolta,“
sagði Sigurður Ingimundarson,
þjálfari Keflavíkur.
„Þetta er atvinnumannalið og
við erum áhugamenn en samt
erum við að spila eins og atvinnu-
menn. Þeir sáu það að þeir áttu
enga von strax frá fyrstu mínutu
og við áttum leikinn allan tímann.
Þeir vanmátu okkur daginn
sem þeir komu hingað. Þeir grín-
uðust með það hvort þetta væri
örugglega liðið sem þeir voru að
fara að spila á móti. Við biðjum
bara kærlega að heilsa þeim,“
sagði Gunnar Einarsson, besti
maður vallarins í gær.
Stig Keflavíkur: Anthony
Glover 33 (9 fráköst), Gunnar Ein-
arsson 28 (8 fráköst), Magnús Þór
Gunnarsson 16 (6 stoðs.), Mike
Mathews 6 (8 fráköst, 3 varin),
Jón Nordal Hafsteinsson 6, Arnar
Freyr Jónsson 2 (5 stoðs.), Sverrir
Þór Sverrisson 2 (4 stoðs.).
smari@frettabladid.is
28 4. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
„Ég er ekki í vafa um að ég hafi valið rétt.“
... sagði knattspyrnumaðurinn Atli Sveinn Þórarinsson. Eftir mörg mögur ár er
orðið eftirsóknarvert að leika hjá Val sem er stórhuga félag og sankar að sér leik-
mönnum þessa dagana rétt eins og félagið sé að versla í Bónus.
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
1 2 3 4 5 6 7
Fimmtudagur
NÓVEMBER
Við hrósum...
... kylfingnum Ólöfu Maríu Jónsdóttur sem gerði sér lítið fyrir í gær
og varð fyrsti íslenski kylfingurinn sem tryggir sér fullan rétt á
Evrópumótaröð kylfinga. Ólöf María er þar með komin í hóp bestu
golfkvenna Evrópu, sem er einstakur árangur.
FÓTBOLTI Atli Sveinn Þórarinsson,
sem var fyrirliði KA-manna í
Landsbankadeildinni í sumar, hefur
skrifað undir þriggja ára samning
við nýliða Vals. Atli Sveinn, sem lék
sautján leiki með KA-mönnum á
síðasta tímabili og skoraði fjögur
mörk, er nú í Svíþjóð en samningur
hans við sænska liðið Örgryte er að
renna út.
Atli Sveinn sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að hann hefði
haft ýmsa möguleika en þegar
hann hefði skoðað dæmið nánar
hefði Valur verið mest spennandi
kosturinn. „Það er mikill kraftur í
félaginu, metnaður í stjórninni,
nýr þjálfari og nýtt og glæsilegt
svæði rís á næstu árum. Allt þetta
hjálpaði mér að velja og ég er
ekki í vafa um að ég hef valið
rétt,“ sagði Atli Sveinn.
Hann kynntist fallbaráttu með
KA-mönnum á síðasta tímabili og
hann sagði aðspurður að það væri
mikil áskorun að gera Val að al-
mennilegu úrvalsdeildarliði. „Það
hefur farið upp og niður úr efstu
deild á undanförnum árum og
auðvitað er það skemmtilegt
verkefni og mikil áskorun að taka
þátt í því að festa Val í sessi í
efstu deild,“ sagði Atli Sveinn,
sem reiknar með að halda sænsk
jól og koma síðan heim strax eftir
áramót.
Atli mikill fengur
Börkur Edvardsson, formaður
knattspyrnudeildar Vals,
sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær
að Atli Sveinn
væri mikill
fengur fyr-
ir félagið.
„Koma hans
er einkenn-
andi fyrir þann
metnað sem er
í félaginu. Við
höfum fengið
f r á b æ r a n
þjálfara sem
laðar til sín
sterka leikmenn
Það er kraftur í
félaginu og menn
finna það. Við höfum
meira að segja þurft
að hafna leikmönn-
um sem hafa
v i l j a ð
koma
og ég
m a n
e k k i
e f t i r
því að
það hafi
gerst á
undanförnum árum hjá Val,“
sagði Börkur.
Atli Sveinn er þriðji leikmaður-
inn sem gengur í raðir Valsmanna
á skömmum tíma en sóknarmað-
urinn Guðmundur Benediktsson
og markvörðurinn Kjartan Sturlu-
son skrifuðu undir tveggja ára
samninga fyrir helgi. Það er
greinilega mikill hugur í
Valsmönnum þessa dagana enda
sagði Börkur við undirritaðan að
félagið myndi styrkja sig enn
frekar á næstunni.
oskar@frettabladid.is
22 STIG Í FYRRI HÁLFLEIK Gunnar
Einarsson, fyrirliði Keflavíkur, átti stórleik í
gær og skoraði 22 af 28 stigum sínum í
fyrri hálfleik. Fréttablaðið/Palli
Atli Sveinn á Hlíðarenda
Skrifaði undir þriggja ára samning við Valsmenn og segir að metnaður
stjórnar, nýr þjálfari og nýtt og glæsilegt svæði hafi ráðið þar miklu um.
■ ■ LEIKIR
19.15 Grindavík og Skallagrímur í
Grindavík í Hópbílabikar karla í
körfubolta.
19.15 Keflavík og Breiðablik
mætast í Keflavík í Hópbílabikar
kvenna í körfubolta.
19.15 Njarðvík og Haukar mætast
í Njarðvík í Hópbílabikar karla í
körfubolta.
19.15 Snæfell og KR mætast í
Stykkishólmi í Hópbílabikar karla í
körfubolta.
20.15 ÍS og Tindastóll mætast í
Kennaraháskólanum í
Hópbílabikar karla í körfubolta.
Fjölnota tæki fyrir allar stærðir fyrirtækja
LJÓSRITUNARVÉLAR
Nýherji hf. · Borgartúni 37 · 105 Reykjavík · Sími 569 7700 · www.nyherji.is
Allt í einu
með Canon
Canon MF-3110
Geislaprentari · Ljósritunarvél · Litaskanni
· Prentar 20 bls. á mín. í 1200 x 600 dpi upplausn.
· 64 mb vinnsluminni.
· CCD litaskanni 1200 x 2400 42 bit.
· USB 2,0 háhraðatengi.
Tilboðsverð: 29.900 kr.
Canon MF-5630
Geislaprentari · Ljósritunarvél · Litaskanni
· Prentar 18 bls. á mín. í 1200 x 600 dpi upplausn.
· 64 mb vinnsluminni.
· CCD litaskanni 1200 x 2400 42 bit.
· USB 2,0 háhraðatengi.
· 50 bls. frumritamatari.
· Stafræn röðun.
Tilboðsverð: 39.900 kr.
Canon MF-5650
Geislaprentari · Ljósritunarvél
Litaskanni · Faxtæki
· Prentar 18 bls. á mín. í 1200 x 600 dpi upplausn.
· 64 Mb vinnsluminni.
· G3 fax – Bls. tekur 3. sek.
· CCD Litaskanni 1200 x 2400 48 bit.
· USB 2,0 háhraðatengi.
· 50 bls. frumritamatari.
· Stafræn röðun.
Tilboðsverð: 55.900 kr.
N
Ý
H
E
R
J
I
/
1
88
ATLI SVEINN ÞÓRAR-
INSSON Genginn til
liðs við nýliða Vals
þar sem hann
mun spila næstu þrjú
árin.
Fréttablaðið/Valli
[ LEIKIR GÆRKVÖLDSINS ]
MEISTARADEILD EVRÓPU
A-RIÐILL
Olympiakos–Monaco 1–0
1–0 Gabriel Schurrer (84.).
Deportivo–Liverpool 0–1
0–1 Jorge Andrade, sjm. (14.).
STAÐAN Í A-RIÐLI:
Olympiakos 4 2 1 1 3–2 7
Liverpool 4 2 1 1 3–1 7
Monaco 4 2 0 2 4–4 6
Deportivo 4 0 2 2 0–3 2
B-RIÐILL
Dynamo Kiev–Real Madrid 2–2
1–0 Ayila Yussuf (13.), 2–0 Maris Verpa-
kovskis (23.), 2–1 Raul (38.), 2–2 Luis
Figo, víti (44.).
Roma–Leverkusen 1–1
0–1 Dimitar Berbatov (82.), 1–1 Vin-
cenzo Montella (90.).
STAÐAN Í B-RIÐLI:
D. Kiev 4 2 1 1 9–5 7
Leverkusen 4 2 1 1 9–6 7
Real Madrid 4 2 1 1 7–7 7
Roma 4 0 1 3 4–11 1
C-RIÐILL
Bayern München–Juventus 0–1
0–1 Alessandro Del Piero (90.).
Maccabi Tel-Aviv–Ajax 2–1
1–0 Barukh Dego (49.), 2–0 Barukh
Dego (57.), 2–1 Daniel De Ridder (88.).
STAÐAN Í C-RIÐLI:
Juventus 4 4 0 0 4–0 12
Bayern 4 2 0 2 5–2 6
Ajax 4 1 0 3 4–7 3
Maccabi 4 1 0 3 2–6 3
D-RIÐILL
Man. Utd–Sparta Prag 4–1
1–0 Ruud van Nistelrooy (14.), 2–0 Ruud
van Nistelrooy, víti (25.), 2–1 Lucas Zel-
enka (53.), 3–1 Ruud van Nistelrooy
(60.), 4–1 Ruud van Nistelrooy (90.).
Lyon–Fenerbahce 4–2
0–1 Selcuk Sahin (14.), 1–1 Mickael Ess-
ien (22.), 2–1 Florent Malouda (53.), 2–2
Tuncay Sanli (73.), 3–2 Honorato da silva
Nilmar (90.), 4–2 Honorato Nilmar (90.).
STAÐAN Í D-RIÐLI:
Lyon 4 3 0 1 11–6 10
Man. Utd. 4 2 2 0 12–5 8
Fenerbahce 4 1 0 3 6–13 3
Sparta 4 0 1 3 2–7 1
NISTELROOY
Skorar hér eitt
af fjórum
mörkum
sínum í gær.
Fyrsti leikur Keflvíkinga í Bikarkeppni Evrópu í vetur var í Keflavík í gærkvöld:
19 stiga sigur á franska liðinu