Fréttablaðið - 05.11.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
ÍSLENSK ÆSKA Rektor Háskóla Ís-
lands og umboðsmaður barna standa
fyrir málþinginu „Ungir Íslendingar í ljósi
vísindanna.“ Kynntar verða og ræddar
rannsóknir á högum og háttum íslenskrar
æsku. Málþingið verður í hátíðarsal há-
skólans og hefst klukkan 12.45.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
5. nóvember 2004 – 303. tölublað – 4. árgangur
ARAFAT MEÐVITUNDARLAUS Jass-
er Arafat, forseti Palestínu, liggur meðvitund-
arlaus á Percy-sjúkrahúsinu nærri París í
Frakklandi. Völd Arafats hafa verið framseld
að hluta til Ahmed Qureia. Sjá síðu 2
BJARGAÐI SONUM Faðir bar unga
syni sína út úr brennandi húsi fjölskyldunn-
ar í Sandgerði. Ef ekki hefðu verið stein-
steyptir veggir og loftplata í eldhúsinu hefði
farið mun verr. Sjá síðu 2
MINNI LÍKUR AÐ ÞÓRÓLFUR
LEIÐI R-LISTANN Formaður Samfylk-
ingarinnar segir að afstaða verði tekin til
framtíðar Þórólfs Árnasonar þegar skýringar
hans um þátt hans í Olíufélagsmálinu liggi
fyrir. Sjá síðu 6
KRÖFÐUST LOKUNAR Eldar loga enn
í flugeldaverksmiðjunni í Kolding. Einn lést
í sprengingunni. Íbúar í Kolding kröfðust
þess fyrir nokkrum árum að verksmiðjunni
yrði lokað. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 34
Tónlist 38
Leikhús 38
Myndlist 40
Íþróttir 28
Sjónvarp 44
nr. 44 2004
L
Ý
SIR
U
P
P
SK
A
M
M
D
E
G
IÐ
KRISTÍN RÓS
Íþróttastjarna Íslands
+
Súkkulaði
Rautt er heitt
Ofdekur
stjörnuspá fólk tíska bækur persónuleikapróf
ÓN
VA
RP
SD
AG
SK
RÁ
IN
nó
v -
11
. n
óv
Dedda
» upplifði sorgina
í áföngum
Hattar
» komnir á kreik
Íþróttastjarna
Íslands
Kristín Rós Hákonardóttir:
▲
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU DAG
● rautt er heitt ● súkkulaði
VATNSVEÐUR Á LEIÐINNI Fyrst suð-
vestantil en síðdegis víða um land síst þó
norðaustantil. Hitinn er á uppleið og verður
kominn í 5-10 stig síðdegis. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
SV-horninu og Akureyri
Me›allestur á tölublað*
Konur
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups október '04 (Vikulestur á Birtu)
72%
49%
MorgunblaðiðBirta
● tilboð ● matur
Gæs á
lágum hita
Gunnar Karl Gíslason:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Vafi um hæfi
til stjórnarsetu
Forstjórar sem taldir eru bera ábyrgð á samráði
olíufélaganna sitja í stjórnum fyrirtækja. Það
virðist brjóta í bága við lög um fjármálafyrirtæki.
SAMRÁÐ Seta Krist-
ins Björnssonar,
fyrrverandi for-
stjóra Skeljungs,
og Einars Bene-
diktssonar, for-
stjóra Olís, í
stjórnum fjár-
málafyrirtækja
kann að brjóta í
bága við lög um
f j á r m á l a f y r i r -
tæki. Þeir áttu í
markvissu og
skipulögðu samráði í störfum sín-
um hjá olíufélögunum samkvæmt
niðurstöðu Samkeppnisráðs. Taldi
ráðið að olíufélögin hefðu hagnast
um 6,5 milljarða króna á samráð-
inu.
Í 52. grein laga um fjármála-
fyrirtæki er fjallað um hæfis-
skilyrði stjórnarmanna í slíkum
fyrirtækjum. Þar segir að þeir
megi ekki hafa sýnt af sér hátt-
semi sem gefur tilefni til að ætla
að þeir misnoti aðstöðu sína.
Kristinn Björnsson er nú
stjórnarformaður
f j á r f e s t i n g a r -
bankans Straums
en hann og tengd-
ir aðilar eiga tólf
prósent í bankan-
um. Aðspurður
hvort hann ætli að
sitja áfram í
stjórn Straums
segir Kristinn að
hann hafi verið
kosinn til að sitja í
stjórninni og hann
fái ekki séð að lögin komi í veg
fyrir það.
Einar Benediktsson situr í
stjórn Landsbankans sem óháður
en ekki í krafti eignar í bankan-
um. Fréttablaðið hefur ekki náð
tali af honum en hann mun nú
dvelja í útlöndum. Aðalfundur
Landsbankans verður haldinn
eftir um tvo mánuði.
Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit
með lögum um fjármálafyrirtæki.
Stofnunin gefur ekki upp hvort
málið sé til athugunar. - ghg
Grímsvötn:
Krafturinn úr gosinu
ELDGOS „Það gýs nú ennþá,“ sagði
Magnús Tumi Guðmundsson, pró-
fessor í jarðeðlisfræði á raunvís-
indastofnun Háskóla Íslands,
þegar hann var spurður að því í
gær hvort botninn væri dottinn úr
Grímsvatnagosinu í Vatnajökli.
„Krafturinn hefur farið minnk-
andi, en gosið er ekki búið og
svona gos geta rifið sig upp aftur.
Það má nú samt fullyrða að aðal-
krafturinn er farinn úr gosinu, en
yfirleitt er hann alltaf fyrst,“
sagði hann og bjóst allt eins við
einhverri gosvirkni í Grímsvötn-
um í nokkra daga til viðbótar.
Bergþór Bergþórsson, varð-
stjóri í flugstjórnarmiðstöðinni á
Reykjavíkurflugvelli, hafði þó
eftir flugmönnum sem flogið
höfðu yfir gosið að svo virtist sem
allur vindur væri úr því. „Gosið
hefur engin áhrif á flugumferð
lengur,“ bætti hann við. - óká
SÉÐ OFAN Í GÍGINN Greinilega sást ofan í gíginn í Grímsvötnum þegar flogið var yfir í
gær og mátti enn greina nokkra eldvirkni þó svo að mesti krafturinn væri úr gosinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
KRISTINN
BJÖRNSSON
Er nú stjórnarfor-
maður í Straumi.
EINAR BENE-
DIKTSSON
Situr í stjórn
Landsbankans.
Reykjavíkurlistinn:
Þórólfur neitaði að hætta
VERÐSAMRÁÐ Þórólfur Árnason borg-
arstjóri neitaði að láta af störfum
borgarstjóra á átakafundi með
borgarfulltrúum Reykjavíkurlist-
ans í fyrrakvöld. Á fundinum var
lögð fram sameiginleg tillaga borg-
arfulltrúanna um að Þórólfur hætti
störfum.
Boðað var til fundarins vegna
þess að Árni Þór Sigurðsson, full-
trúi Vinstri grænna í borgarstjórn-
arflokki Reykjavíkurlistans, neitaði
að lýsa yfir trausti á Þórólfi eftir
niðurstöðu Samkeppnisráðs um
þátttöku Þórólfs í verðsamráði olíu-
félaganna. Borgarfulltrúar úr röð-
um Samfylkingar og Framsóknar-
flokks lýstu hins vegar yfir stuðn-
ingi við Þórólf. Engu að síður sætt-
ust þeir á tillögu um að Þórólfur
hætti störfum. Það kom mönnum
hins vegar í opna skjöldu þegar
Þórólfur neitaði að segja starfi sínu
lausu. Fundurinn stóð í tæpar fjórar
klukkustundir og eftir mikil átök
varð niðurstaðan sú að Þórólfur
fengi tóm til að kynna sjónarmið sín
fyrir borgarbúum. Viðmælendum
Fréttablaðsins ber engu að síður
saman um að Þórólfur verði látinn
segja af sér á næstu dögum. - ghg
Sjá síðu 4
Tillaga R-listans um að breyta gjaldskrá Leikskóla Reykjavíkur:
Gjöld hækki um allt að 42 prósent
BORGARMÁL Gjaldskrá Leikskóla
Reykjavíkur mun hækka um allt
að 42 prósent samkvæmt tillögu
sem leikskólaráð hefur sam-
þykkt. Borgarráð frestaði af-
greiðslu tillögunnar á fundi sín-
um í gær.
Tillagan að gjaldskrárbreyt-
ingunni felur í sér að einn af
þremur gjaldskrárflokkum
verður felldur niður. Mun breyt-
ingin því einkum hafa áhrif á
fólk í sambúð þar sem annað
foreldrið er í námi og foreldra í
sambúð þar sem annað foreldrið
er öryrki. Samkvæmt núgild-
andi gjaldskrá greiða foreldrar
þar sem annað er í námi 22.200
krónur á mánuði fyrir níu
klukkustunda vistun. Ef breyt-
ingin verður samþykkt mun
gjaldið hækka í 31.330 krónur
fyrir þetta fólk. Gjald fyrir for-
eldra þar sem annað er öryrki
mun hins vegar lækka úr 22.200
krónum á mánuði í 16.120 krón-
ur.
Í bókun R-listans með tillög-
unni segir að vegna mikilla
breytinga á högum og umhverfi
námsmanna frá því núverandi
gjaldskrá var tekin í notkun sé
nauðsynlegt að endurskoða
hana.
Helstu rök fyrir lægra gjaldi
þegar annað foreldri var í námi
hafi verið tekjutenging maka.
Þannig hafi framfærsla náms-
manna skerst ef tekjur fóru
fram úr ákveðnu marki. Þannig
er þessu ekki lengur farið, segir
í bókuninni. - th
FORYSTUMENN LEIKSKÓLA
REYKJAVÍKUR
Bergur Felixson, framkvæmdastjóri Leik-
skóla Reykjavíkur, og Þorlákur Björnsson,
formaður Leikskólaráðs Reykjavíkur, vilja
breyta gjaldskránni vegna breytinga á
högum námsmanna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI