Fréttablaðið - 05.11.2004, Blaðsíða 25
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 7
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 127 stk.
Keypt & selt 40 stk.
Þjónusta 34 stk.
Heilsa 11 stk.
Skólar & námskeið 3 stk.
Heimilið 15 stk.
Tómstundir & ferðir 5 stk.
Húsnæði 21 stk.
Atvinna 34 stk.
Tilkynningar 5 stk.
299*
399
*Algengt verð í matvöruverslunum
*
ar
gu
s
–
0
4-
05
60
Reykofnar til heimilisnota
BLS. 4
Góðan dag!
Í dag er föstudagurinn 5. nóv.,
310. dagur ársins 2004.
Reykjavík 9.25 13.11 16.57
Akureyri 9.20 12.56 16.31
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
heimili@frettabladid.is
Blöndunar-
tækjaveisla er út
þessa viku í Byko. Af-
sláttur fer alveg upp í
50% af völdum tækjum,
til dæmis baðtækjum sem
lækka úr 20.905 kr. í 10.452 kr.
og blöndunartækjum í hand-
laug lækka úr 10.415 kr. í 5.728
kr. Þetta eru tæki af gerðinni
Damixa. Öll önnur blöndunar-
tæki í versluninni eru á 25% af-
slætti en veislunni lýkur nú um
helgina.
Haustlínan í herrabuxum er
á 20% afslætti í Vinnufatabúð-
inni á Laugavegi enda er til
siðs á þeim bæ að halda
buxnadaga tvisvar á ári. Þarna
eru þýskar flauelsbuxur og
einnig danskar, auk þess sem
gallabuxur í þekktum merkj-
um eins og Lee, Ranger og
Wrangler eru á boðstólum.
Five unglingabuxur fást einnig
þannig að allir aldurshópar
ættu að fá eitthvað við sitt
hæfi.
Gunnar Karl Gíslason er einn af landsins snjöllustu kokkum.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í TILBOÐUM
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Ég er svo þreyttur á
því að fara á klósettið.
Tæmist ég ekki
einhverntíma?
Steikt gæs
Gæsin er brúnuð á pönnu og
eldamennskan kláruð í ofni.
Kjarnhiti skal verða um 45 gráður,
þá er hún enn fallega rauð í miðj-
unni. Því lægri hiti, því lengri tími
og fallegri steiking. Ekki skemmir
fyrir að elda hana með nokkrum
timian og rosmarin greinum.
Kryddið með salti og pipar.
Eplið
Epli er skorið í hæfilega stærð og
eldað í smjöri og sykri líkt og um
sykurbrúnaðar kartöflur væri að
ræða.
Kartaflan
Kartafla er skorin í hæfilega
stærð og elduð í miklu smjöri
ásamt hvítlauk og timian uns
hún er orðin meyr. Krydduð með
salti og pipar.
Rótargrænmetið
Gulrætur, sellerírót og rófur er
eldað í eldföstu móti með ólífu-
olíu, hvítlauk og timian greinum
við lágan hita uns allt er orðið
meyrt. Þá er grænmetið stappað
og smakkað til með salti.
Timianrjómi
Rjóminn er soðinn niður með
timian, skarlottulauk og hvítlauk.
Smakkaður til með salti, pipar og
nokkrum dropum af sherry-ediki
eða ferskum sítrónusafa.
Rauðkálið
Byrjið á því að gylla sykur í potti,
hellið út á sykurinn rauðvíni og
sjóðið ögn niður. Bætið með ögn
af negulnöglum, kanil og eini-
berjum en gætið þess þó að fjar-
lægja þau eftir suðu. Setjið rauð-
kálið út í og sjóðið uns kálið er
meyrt. Þyki kálið of súrt er gott
að bæta ögn af góðu hunangi út
í og síðan er kálið kryddað með
salti og pipar.
Sósan
Brúnn sósugrunnur, lagaður af
beinum frá gæsinni er bættur
með pistasíum og bláberjum.
Gott er að rífa smá af ferskum
pistasíum og sáldra yfir réttinn.
Steikt gæs:
Lágur hiti og
langur tími
Gæsaveiðitímabilið stendur yfir og væntanlega eru ýmsir
komnir með fugl í frystinn sem bíður þess að verða mat-
reiddur og borinn á borð. Við báðum Gunnar Karl Gíslason
sósumeistara á Vox í Nordica hóteli að gefa okkur góð ráð
um meðferð slíkrar bráðar og brást hann vel við því.
Gæsarétturinn sem hann matreiddi er einmitt á seðlinum
hjá honum núna og verður það á næstunni. En hér er upp-
skriftin þannig að nú getur hver sem er byrjað að brasa. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.