Fréttablaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 62
!
" "
#
" $%
&'
(
'#
' #'
)
&'
*
&
+"
)'
&
,
)-
.)
(
%&
(
'
+
&
"
-
/
" &
"
* (
.
(
!
(
01
0 2
"
&'
%2 4
5
2
4 %
&
"
&
6
#%
6
&
*
#
)
7
2+"
*
1
*
8
(
9
9
& 2*
(
2 1
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+
!"#$% &
'( ) "*"+++
( ),%*++
#
-$0
-
) #
,
1
#
,
2,
% "/,
3
4 !
0" #
%
-
5
,
6
#"!
7"/
) 8
)
## "
0
MÁNUDAGUR 8. nóvember 2004 23
Borðtenniskappinn Guðmundur Stephensen gerði það gott í Lettlandi:
Tvöfaldur Norðurlandameistari
BORÐTENNIS Borðtenniskappinn
Guðmundur Stephensen var í
miklum ham á Norðurlandamót-
inu sem fram fór í Lettlandi um
helgina. Guðmundur varð tvöfald-
ur Norðurlandameistari, bæði í
einliðaleik og tvíliðaleik, og er
fyrsti Íslendingurinn sem nær
þeim áfanga.
Guðmundur bar sigurorð af
Eistanum Aleksandrs Smirnov í
úrslitum einliðaleiksins, 4-1.
Guðmundur vann fyrstu þrjár lot-
urnar, 11-5, 11-6 og 11-7 en tapaði
fjórðu lotunni, 9-11. Hann vann
síðan fimmtu lotuna, 11-5, og
tryggði sér sigurinn.
Guðmundur varð einnig Norð-
urlandameistari í tvíliðaleik
ásamst Eistanum Vitel Vainula.
Þeir unnu par frá Lettlandi í úr-
slitum, 3-1.
Íslensku karla- og kvennaliðin
riðu ekki feitum hesti frá liða-
keppninni. Karlaliðið hafnaði í
fimmta sæti af fimm þjóðum og
kvennaliðið í því fjórða af fjór-
um. Karlaliðið tapaði öllum
sínum leikjum, 2-3, og vann
Guðmundur Stephensen
alla sína átta leiki en eng-
inn annar í íslenska liðinu
náði að vinna. Kvennalið-
ið tapaði öllum sínum
leikjum, 3-0.
- ósk
GUÐMUNDUR STEPHENSEN Tvöfaldur Norðurlandameistarari í borðtennis í Lettlandi
um helgina. Fréttablaðið/Tobías
Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að stækka deildabikarkeppnina:
Allir mega vera með á næsta ári
FÓTBOLTI Stjórn KSÍ hefur ákveðið
að bjóða öllum þeim félögum sem
sendu meistaraflokk til keppni á
Íslandsmótinu 2004 að senda lið til
keppni í deildabikarnum 2005 en
þetta kemur fram á heimasíðu
sambandsins.
Undanfarin ár hefur fjöldi liða
takmarkast við 40 karlalið og 12
kvennalið en nú mega öll 60 karla-
liðin og 27 kvennaliðin vera með í
deildabikarnum, sem er aðalund-
irbúningsmót liðanna fyrir kom-
andi Íslandsmót. Sá fyrirvari er
þó gerður um fjölgun liða að
knatthús og gervigrasvellir fáist
fyrir aukinn leikjafjölda.
Leikirnir eiga að mestu að fara
fram í knattspyrnuhúsum á Akur-
eyri, í Kópavogi, Reykjanesbæ og
í Reykjavík en einnig verður leik-
ið á öðrum völlum eftir þörfum.
Í karlabikarnum verður keppn-
inni skipt niður í þrjár deildir en
ekki í tvær eins og undanfarin ár.
Í A-deild keppa 16 efstu liðin í
tveimur átta liða riðlum og úr-
slitakeppni átta liða tekur síðan
við eftir riðlakeppni. Í B-deildinni
verður keppt í fjórum sex liða
riðlum og þar tekur einnig við úr-
slitakeppni á eftir riðlakeppninni.
Fyrirkomulag C-deildarinnar
liggur ekki fyrir fyrr en í ljós
kemur hversu mörg félög taka
þar þátt en keppni í A-hlutanum
hefst þremur vikum fyrra en í
hinum deildunum eða 20. febrúar
en B- og C-deildirnar fara af stað
10. mars.
Í kvennabikarnum verður
keppninni skipt niður í tvær deild-
ir þar sem sex lið leika í A-deild
en önnur lið í B-deildinni. Keppn-
isfyrirkomulagið í B-deildinni
verður eins og með C-deildina hjá
körlunum ákveðið þegar þátttaka
liggur fyrir.
Það á samt að reyna að hafa
neðri deildirnar svæðaskiptar,
það er B- og C-deild karla og B-
deild kvenna enda skiptir það
miklu fyrir ferðakostnað félag-
anna.
Félögin fá ekki langan tíma til
að íhuga þátttöku sína því þátt-
tökutilkynning skal berast KSÍ í
síðasta lagi miðvikudaginn 10.
nóvember.
Mótanefnd sambandsins ætlar
að taka fullt tillit til æfingaferða
til útlanda og því má búast við hléi
í kringum páskana þegar flest ís-
lensku liðin bregða undir sig betri
fætinum.
Það er því ljóst að leikir á veg-
um sambandins kemur til með að
fjölga enn meira en á síðasta tíma-
bili fóru fram 3.979 leikir á vegum
KSÍ í mótum utanhúss, þ.e. í bæði
11 og 7 manna bolta.
- óój
FH-INGAR UNNU Í FYRRA Heimir Guðjónsson lyfir hér deildabikarnum eftir 2-1 sigur
FH á KR í úrslitaleiknum í fyrra.
Toronto Raptors tók á móti Portland í gærkvöld:
Carter vann leikinn
KÖRFUBOLTI Portland Trail Blazers
var í heimsókn í Toronto og atti
kappi við Raptors í NBA-deildinni
í gær.
Leikmenn Blazers máttu prísa
sig sæla að mæta fullmannaðir til
leiks því að framherjinn Zach
Randolph svaf yfir sig og missti
af flugi liðsins til Toronto. Má
kappinn búast við sekt vegna
þessa en hann dó ekki ráðalaus
og fór á eigin vegum yfir
landamærin. Randolph
kenndi vekjara-
klukkunni um að hann
svaf yfir sig, ein
glæný úr afsökunar-
bókinni.
Blazers byrjaði
leikinn betur en
Raptors var þó
aldrei skammt und-
an og náði yfirhöndinni í öðrum
fjórðungi sem liðið vann, 31-18.
Raptors lék vel á þessum kafla og
náði mest 12 stiga forystu. Staðan
í hálfleik var 51-42, heimamönn-
um í vil.
Randolph og félagar í Blazers
neituðu að gefast upp og söxuðu
jafnt og þétt á forskot Raptors.
Aðeins eitt stig skildi liðin að þeg-
ar fjórar sekúndur voru til leiks-
loka. Þá tók Vince Carter til sinna
ráða og skoraði fjögur af síðustu
fimm stigum Raptors meðan að
leikmönnum Portland voru mis-
lagðar hendur og Toronto stóð
uppi sem sigurvegari, 101-97.
Carter var stigahæstur heima-
manna með 25 stig en svefn-
purrkan Zach Randolph fór fyrir
Blazers með 33 stig og 15 fráköst.
- sj