Fréttablaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 09.11.2004, Blaðsíða 22
Í rannsókninni Hvað einkennir syfjaða framhaldsskólanema kemur fram að dagsyfja hrjáir marga unglinga. Sterk tengsl eru milli dagsyfju annars vegar og tíðrar áfengisneyslu, merkja um áfengissýki og að unglingar kvarti um kvíða og hafi lélega sjálfs- mynd. Stúlkur vantar að meðaltali um klukkutíma á sólarhring upp á svefn en pilta um fjörutíu mínútur. Er maginn vandamál? Stress, þreyta og sérstakur matur getur sett magann úr jafnvaægi. Óþægindi lýsa sér oft sem nábítur, brjóstsviði, vindgangur, harðlífi og niðurgangur. Þetta þykir öllum afar óþægilegt og líður þá illa í öllum líkamanum. Silicol fæst í apótekum F í t o n / S Í A F I 0 0 9 1 3 8 Guðrún er búin að kenna í dansstúdíói World Class í Laugum síðan stöðin var opnuð í janúar. Guðrún Inga danskennari: Lífsnauðsynlegt að dansa „Dans er stórgóð alhliða þjálfun. Þar er einbeiting, þol, styrkur og liðleiki allt æft á jafnan hátt. Dansinn léttir líka lundina og er rosalega skemmtileg íþrótt,“ segir Guðrún Inga Torfadóttir, dans- kennari hjá Dansstúdíói World Class í Laugum í Laugardal. Guðrún er búin að dansa frá því hún var fjögurra ára og getur hreinlega ekki lifað án hreyfing- arinnar. „Ég útskrifaðist af nú- tímadansbraut í Listdansskólan- um árið 2002. Eftir það fór ég í starfsnám hjá Íslenska dansflokk- inum en kláraði það ekki þar sem ég er líka að læra lögfræði í Há- skólanum í Reykjavík, en ég klára BA-gráðu þar næsta vor. Fyrir mér er lífsnauðsynlegt að dansa og ég fæ fráhvarfseinkenni ef ég geri það ekki. Ég mun aldrei hætta að dansa.“ Dansstúdíóið í Laugum er rek- ið af dansaranum og danskennar- anum Nönnu Ósk Jónsdóttur. Það er rekið sjálfstætt og var opnað um leið og líkamsræktarstöðin. Boðið er upp á margs konar dans- tíma í stúdíóinu en Guðrún kennir þar freestyle og jazzfunk. Einnig er hægt að sækja tíma í salsa, breakdansi og nútímadansi ef nægileg skráning fæst. Tímunum er skipt eftir aldri og eru þeir jafnt fyrir byrjendur og lengra komna. „Nær allir vöðvar eru þjálfaðir í dansi. Það er allt unnið út frá miðju því öll orkan er í maga og baki. Dans er líka mikil fótavinna en jafnframt alhliða líkamsþjálf- un því maður þarf að nota hend- urnar líka,“ segir Guðrún, sem vill að nemendur geri danssporin að sínum eigin. „Ég vil ekki bara sjá nemendur gera eins og ég. Þegar þeir eru búnir að læra spor- in þá vil ég að þeir gefi sitt í það og geri þau að sínum eigin. Þetta er skapandi eins og hver önnur list. Til að dansinn sé skemmtileg- ur er mikilvægt að láta miklar til- finningar í hann.“ Margir velta því fyrir sér hvernig fari saman að vera bæði laganemi og danskennari. „Mér finnst stórkostlegt að kenna með náminu og nauðsynlegt að dansa til að halda mér í bæði góðu lík- amlegu og andlegu formi. Vissu- lega eru þetta andstæður en það hentar mér vel. Lögfræðin er hug- arleikfimi og akademísk en dans- inn mjög líkamlegur og andlegur. Það eru miklar tilfinningar í dansi og það greinir hann frá öðrum íþróttagreinum.“ lilja@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.