Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 28
E mbætti borgarstjórans íReykjavík er senn 100 áragamalt. Í höndum Sjálf- stæðisflokksins og fyrirrennara hans varð það valdamesta emb- ætti landsins. Völd þess hafa legið í því að borgarstjóri er í farar- broddi meirihluta samhentra borgarfulltrúa. Í öllum öðrum stjórnarstofnunum landsins þurfa menn að mynda meirihluta með hrossakaupum eftir kosningar. Í Reykjavík vissu menn að hverju þeir gengu í kosningum: Annars vegar var Sjálfstæðisflokkurinn undir forystu ákveðinnar þekktr- ar persónu, hins vegar andlits- lausir andstöðuflokkarnir, sem þurftu að fengnum meirihluta að koma sér saman um fram- kvæmdastjóra til að hrinda því í framkvæmd sem þeir kæmu sér saman um að loknu karpi og versl- un með stefnu, stöður og sporslur. Glundroðakenningin Meirihluti Reykvíkinga kaus jafn- an að kaupa ekki köttinn í sekkn- um – utan einu sinni, 1978. Glund- roðakenningin – áróður um þá óvissu sem tæki við ef sjálfstæð- ismenn yrðu í minnihluta – verk- aði jafnan í borgarstjórnarkosn- ingum. Í þeim kusu borgarbúar eftir allt öðru mynstri en í alþing- iskosningum. Sjálfstæðismenn höfðu þó ekki alltaf meirihluta at- kvæða – dreifing atkvæða hinna sundurlyndu vinstri flokka var löngum þeim í hag, þar til 1978 að Birgir Ísleifur missti meirihlut- ann með 58 atkvæða mun. Vinstri flokkarnir riðu ekki feitum hesti frá þessu kjörtíma- bili sínu við stjórnvöl borgarinn- ar. Þeir réðu ópólitískan verk- fræðing sem borgarstjóra – þar með fór öll sú reisn og glæsileiki sem yfir embættinu hvílir for- görðum. Þeir reyndu að yfirfæra glamúr embættisins yfir á forseta borgarstjórnar – en tókst ekki, enda átti það embætti að rótera milli þeirra. Í næstu kosningum steinlágu þeir fyrir Davíð, sem enn á ný hóf embættið til þeirrar höfðinglegu virðingar, sem ein- beittur foringi gefur því. En við brottför Davíðs hófst endalaus vandræðagangur í liði Sjálfstæð- isflokksins. Sigur R-listans 1994 Skoðanakönnun sem nokkrir ung- ir menn létu gera í desember 1993 leiddi í ljós að sameiginlegur listi vinstri flokkanna, Alþýðuflokks og Alþýðubandalags, ásamt Fram- sókn undir forystu kvennalista- konunnar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem borgarstjóraefn- is, hefði möguleika á að vinna meirihluta í borginni. Í samninga- umræðum sem á eftir fóru reyndu flokkshestarnir ákaft að endur- taka mistökin frá 1978 og ger- sneyða borgarstjóraembættið innihaldi; borgarstjórinn yrði bara toppfígúra; Ingibjörg gaf ekki kost á öðru en að embættið héldi öllum þeim völdum, sem sjálfstæðismenn höfðu gætt það í tímans rás. Hún hafði sigur, listi var settur saman með prófkjöri með nýstárlegum hætti, hann bar með sér grasrótarbrag, laus við hrossakaup flokkshagsmuna. Og R-listinn sigraði undir forystu Ingibjargar Sólrúnar. Borgarstjórnarkosningarnar 1998 fóru fram í mikilli pólitískri óvissu. Vinstri hliðin var að endurskipuleggja sig í Samfylk- ingu og VG, Framsókn var hins- vegar komin í ríkisstjórnarsam- starf við Sjálfstæðisflokkinn. R- listinn lofaði að endurskipuleggja sig að loknum kosningum í Regn- bogasamtök, einhuga fylkingu, gula, rauða, græna og bláa, sem stæði að baki listanum. Í þjóðsög- um segir að sá sem komist undir endann á regnboganum hljóti eina ósk. Regnbogi R-listans reyndist álíka haldgóður. Auðvitað hafði frammistaða R-listans á undan- gengnu kjörtímabili sitt að segja um úrslit þessara kosninga, en hitt réði sennilega úrslitum að Ingibjörg Sólrún breiddi vængi sína yfir þær sprungur sem voru að myndast og víkka í hinu póli- tíska landslagi. Höfði lamið við stein Fyrir kosningarnar 2002 höfðu vinstri flokkarnir farið í gegnum hina pólitísku skilvindu og voru nú fyllilega aðgreindir í VG og Samfylkingu. Enn lamdi þó R-list- inn höfðinu við steininn og þóttist vera einn flokkur í stað þess að vera kosningabandalag þriggja flokka. Af Regnboganum var eftir sá stubbur, að Ingibjörg Sólrún fékk tvö sæti sem óháður aðili, þótt allir vissu að hún tilheyrði orðið Samfylkingu. Og hinn þrí- eini flokkur vissi vel að Ingibjörg Sólrún var flotholtið sem hann flaut á til áframhaldandi valda. Henni hafði tekist að varpa ljóma á borgarstjóraembættið til jafns við glæstustu foringja Sjálfstæð- isflokksins áður á tíð. Auglýsinga- stofa var fengin til að hanna kosn- ingabaráttuna. Öllum dvergunum sjö var komið undir pilsfald Ingi- bjargar og hún ein trónaði í heil- síðuauglýsingum og spjallþáttum loftmiðlanna síðustu vikur fyrir kosningar. Hún ætlaði að gera þetta og hún ætlaði að gera hitt á næsta kjörtímabili og enginn þyrfti að efa að yrði hún kosin stæði hún vaktina á enda. Enn vann R-listinn sigur – að vísu með dyggum stuðningi Sjálf- stæðisflokksins, sem enn á ný var í pólitískum sjálfsmorðshugleið- ingum í borginni. Prentsvertan var ekki meir en svo þornuð á heilsíðuauglýsingun- um þegar Ingibjörg ákvað að slá til og hlýða kalli Samfylkingarinn- ar, sem var fram sett með þeim hætti að hún átti að fara fram í vonlaust sæti í þingkosningum, en vera samt forsætisráðherraefni flokksins og halda áfram sem borgarstjóri. Ofmetnaðist Ingibjörg Sólrún? Hvað hafði gerst? Hafði hún of- metnast eða gerði hún sér ekki grein fyrir því að R-listinn var nú ekki neinn regnbogi lengur, heldur höfðu litirnir aðskilist og sam- starfsflokkarnir í borginni gátu ekki þolað að hún nýtti sér vin- sældir sínar þar til að reyta af þeim fylgið á landsvísu. Endirinn varð sá að hún hrökklaðist úr emb- ætti borgarstjóra, efldi sennilega eitthvað fylgi Samfylkingarinnar, en sat eftir með sárt ennið að kosningum loknum, varaþingmað- ur og óbreyttur borgarfulltrúi. Eftirmaður var fenginn Þórólf- ur Árnason. En hann var ekki póli- tískur leiðtogi, bara fram- kvæmdastjóri þriggja eða fjög- urra hrossakaupaafla án eigin pólitísks umboðs. Vel liðinn, en ekkert umfram það. Eftir stjórn- arkreppu undanfarinna daga stóð R-listinn frammi fyrir ýmsum kostum. Enginn vafi er á að sá glæsilegasti og besti hefði verið að bjóða Degi Eggertssyni, hinum óflokksbundna, embættið. Hann er að vísu tveimur árum yngri en Davíð Oddsson var þegar hann varð borgarstjóri 34 ára gamall, en örugglega með miklu meiri reynslu í pólitík og félagsmálum og ábyrgri þátttöku í stjórn borg- arinnar – ekki gaspri og upphróp- unum í stjórnarandstöðu. En, nei. Stjórnmálaskýrendur segja að Halldór Ásgrímsson hafi látið það boð út ganga að nú skuli borgin hætta að ala upp framtíð- arforingja fyrir Samfylkinguna. Og tengdasonur Halldórs Ás- grímssonar í stjórn Framsóknar- félags Reykjavíkur-norðurkjör- dæmis krafðist þess að leiðtoginn yrði fenginn utan frá. Það hefur jafnan verið bölvun vinstri manna að reyna að kæfa í fæðingu alla sem hafa burði til forystuhlut- verks, hver fyrir öðrum, og jafn- vel í eigin röðum. R-listinn hafn- aði að vísu þessari kröfu Fram- sóknar og ákvað í staðinn að velja þann úr eigin röðum sem minnst- ur styrr stæði um. Hefur varið klúðrið Steinunni Valdísi Óskarsdóttur þekki ég ekki af öðru en fram- komu hennar í fjölmiðlum sem formanns skipulagsnefndar. Þar hefur hún þurft að verja hvert klúðrið á fætur öðru að undan- förnu og kemur mér fyrir sjónir sem næstmesti kerfiskallinn í borgarstjórnarhópnum á eftir Al- freð. Af þessu dreg ég þá ályktun að það sé samdóma álit borgar- stjórnarhópsins að með Steinunni Valdísi í borgarstjóraembættinu geti þeim – með smáheppni – tek- ist að skrönglast út kjörtímabilið á enda. Eftir það býður hver flokkur fram fyrir sig. Steinunni verður tíðrætt um að það sé seigt í R-listanum límið. Ingibjörg Sólrún var það lím sem hélt fyrirbærinu saman frá upp- hafi. Nú er R-listinn úlfabæli og límið sem heldur hópnum saman er hrært saman af völdum, stöð- um, bitlingum og fyrirgreiðslu. Báðir litlu flokkarnir voru í kreppu undanfarinna daga búnir að hafa samband við Sjálfstæðis- flokk og kanna möguleikana á nýrri límhræru og nýjum meiri- hluta. Og um þetta munu næstu borgarstjórnarkosningar snúast. Þá gæti svo farið að VG, Fram- sókn eða Frjálslyndir réðu úrslit- um um meirihluta, komist í svip- aða aðstöðu og Framsókn í Kópa- vogi undanfarin kjörtímabil, og þá mundi margur feitur bitinn falla þeim flokki í skaut, sem í odda- aðstöðuna kemst og margur hrósa happi að vera laukur í litlum hópi. Aldrei aftur Og þó. Eins og þjóðinni þykir vænt um embætti forseta Íslands og sárnar þegar lítið er gert úr því eða það niðurlægt, þykir Reykvík- ingum vænt um borgarstjóraemb- ættið, kunna því illa að það sé rýrt að innihaldi og reisn, og munu ekki þola að það gangi kaupum og sölum. Reykvíkingar munu áfram vilja fá að kjósa sinn borgarstjóra og liðshóp hans, en ekki eiga um það eftirkaup að kosningum lokn- um hver embættið hreppir. Þótt R-listinn eigi eftir að tóra enn um sinn má um hann segja eins og í dægurlagatextanum al- kunna um Nínu: að „aldrei, aldrei aftur/ aldrei, aldrei, aldrei aftur“ mun hann bjóða fram sem pólitísk eining. ■ 13. nóvember 2004 LAUGARDAGUR28 Upphaf endaloka Reykjavíkurlistans Við brottför Davíðs hófst endalaus vandræðagangur í liði Sjálf- stæðisflokksins. ,, Stjórnmálaskýrendur segja að Halldór Ás- grímsson hafi látið þau boð út ganga að nú skuli borgin hætta að ala upp framtíðar- foringja fyrir Samfylkinguna. ,, NÝR BORGARSTJÓRI Í REYKJAVÍK Steinunn Valdís Óskarsdóttir tekur við embætti borgarstjóra í Reykjavík 1. desember næstkomandi. Í DAG ÁTÖKIN Í BORGARSTJÓRN ÓLAFUR HANNIBALSSON Reykvíkingum þykir vænt um borgar- stjóraembættið, kunna því illa að það sé rýrt að inni- haldi og reisn, og munu ekki þola að það gangi kaupum og sölum. ,, „ÞAÐ GERIST Í REYKJAVÍK“ Forystumenn Reykjavíkurlistans kynna stefnumál sín fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2002. Engan óraði þá fyrir þeirri atburðarás sem fram undan var í stjórn höfuðborgarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.