Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 34
Áslaug Brynjólfsdóttir, fyrrver-
andi fræðslustjóri, er 72 ára í dag
og ákaflega upptekin á afmælis-
daginn sinn jafnt sem flesta aðra
daga. Hún fékk fólk í mat í gær-
kvöld í tilefni afmælisins, fer nú í
morgunsárið á kjördæmaþing
Framsóknarflokksins og síðdegis
fer hún á tónleika hjá kvenna-
sveitinni í Langholtskirkju. Í
kvöld fer hún svo í sjötugsafmæli
hjá vinkonu sinni og í fyrramálið
fær hún ættingja til sín í árdegis-
verð. Þá verður kannski hin raun-
verulega afmælisveisla. „Þetta er
svolítið skrítið til frásagnar því
að venjulega er ég heima á af-
mælinu mínu. Það er svona þegar
mikið er að gera,“ segir hún og
hlær.
Áslaug hætti að vinna fyrir
tveimur árum og hefur síðan
verið að sinna ýmsum hugðarefn-
um sínum, fór m.a. í ferðalag til
Hawaii þegar hún hætti að vinna
og svo til Grikklands í sumar.
„Stuttu eftir að ég kom heim
veiktist maðurinn minn og lést
viku síðar úr krabbameini svo að
ég er að jafna mig eftir það. Það
er því gott að hafa mikið að gera
og dreifa huganum. Það er besta
ráð við öllu að hafa nóg að
starfa,“ segir hún.
Áslaug hefur verið ákaflega
virk og áberandi í þjóðfélaginu,
síðustu áratugina fyrst og fremst
sem fræðslustjóri í Reykjavík.
Hún starfaði sem kennari, yfir-
kennari og skólastjóri í Fossvogs-
skóla í tíu ár eða þar til hún varð
fræðslustjóri í Reykjavík 1982.
Henni finnst kennaraverkfallið
hræðilegt. „Það ætti aldrei að
koma til verkfalls heldur ætti að
vera nefnd sem ákveður kennara-
launin og þau ættu að vera góð
því að það er svo mikilvægt að
kennarar séu ánægðir í starfi.
Það smitast til barnanna ef kenn-
arar hafa áhyggjur af framfærslu
sinni,“ segir hún.
Áslaug greip síðast í kennslu
sem forfallakennari í Áslands-
skóla í Hafnarfirði þegar hún
kom þar inn sem skólastjóri fyrir
þremur árum. Henni finnst
óskaplega gaman að kenna og
segist sakna stundum kennslunn-
ar. „Mér finnst kennsla alltaf
vera skemmtilegasta starf sem
ég get hugsað mér,“ segir hún.
ghs@frettabladid.is
34 13. nóvember 2004 LAUGARDAGUR
ROBERT LOUIS STEVENSON
Höfundur Gulleyjunnar fæddist á þessum degi
árið 1850 fyrir 154 árum síðan.
ÁSLAUG BRYNJÓLFSDÓTTIR, FYRRVERANDI FRÆÐSLUSTJÓRI: 72 ÁRA Í DAG
„Vinur er gjöf sem þú gefur sjálfum þér.“
- Það vafðist ekki fyrir Robert Louis Stevenson að maður getur valið
sér vini en ekki ættingja.
timamot@frettabladid.is
ÁSLAUG BRYNJÓLFSDÓTTIR „Það er svo mikilvægt að kennarar séu ánægðir í starfi. Það smitast til barnanna ef kennarar hafa
áhyggjur af framfærslu sinni,“ segir hún.
Óttinn við kommúnista í Banda-
ríkjunum náði töluverðum hæð-
um þennan dag árið 1953 þeg-
ar frú Thomas J. White, sem átti
sæti í námsgagnanefnd í Indi-
ana-ríki, krafðist þess að hvergi
yrði minnst á Hróa hött í náms-
bókum.
Hún taldi slíkt vera hreinan
kommúnistaáróður „vegna þess
að hann stal frá ríkum og gaf til
fátækra. Það er einmitt stefna
kommúnista“.
Viðbrögð ráðamanna í Indiana
við þessari kröfu urðu reyndar
frekar dræm. Ríkisstjórinn lét
þetta mál sig engu varða, en
yfirmaður menntamála hafði
fyrir því að endurlesa bókina
áður en hann komst að þeirri
niðurstöðu að ekki þyrfti að
banna hana. Þó fannst honum
að kommúnistar væru farnir að
„vinna að því að snúa út úr
merkingu sögunnar um Hróa
hött.“
Í Sovétríkjunum skemmtu
menn sér konunglega yfir þess-
ari uppákomu, en þáverandi
fógeti í bænum Nottingham gat
ekki leynt hneykslan sinni: „Hrói
höttur er enginn kommúnisti,“
hrópaði hann.
Frú White svaraði hins vegar
allri gagnrýni á hugmyndir sínar
fullum hálsi.
13. NÓVEMBER 1953 Kröfur
komu fram um að banna umfjöllun
um Hróa hött í bandarískum náms-
bókum.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1956 Hæstiréttur Bandaríkjanna
ógildir lög um aðskilnað kynþátta
í almenningsvögnum.
1940 Frumsýnd er í New York
teiknimyndin Fantasía, sem kom
úr smiðju Walts Disney.
1961 Vladimir Jefimovitsj
Semitsjastrí tekur við sem yfir-
maður sovésku leyniþjónustunn-
ar KGB.
1974 Karen Silkwood ferst í bíl-
slysi í miðri baráttu sinni við við
að upplýsa geislamengun í kjarn-
orkuveri í Oklahoma, þar sem
hún starfaði.
1990 Bandaríski forritarinn Tim
Berners-Lee skrifar fyrstu vefsíð-
una.
„Ég er viss um að vikan hérna á Íslandi eigi eftir að
breyta lífi mínu,“ segir Sebastian Boyle listamaður sem
hefur verið að setja upp sýningu fjölskyldu sinnar í
Hafnarborg alla vikuna, en sýningin opnar í dag kl. 15.
Hann vill ekkert segja til um hvað það er sem muni
valda þessum straumhvörfum, er í raun ekki viss um
það sjálfur, en staðhæfir að það tengist ekki listinni.
„Ég kom hingað á þriðjudag og á leiðinni las ég
stjörnuspána mína í blaðinu og sá að föstudagurinn og
laugardagurinn ættu að vera sérstakir dagar,“ segir
hann kankvís og útskýrir svo að sýningin hefði alls ekk-
ert átt að vera í Hafnarborg heldur hefði það komið
upp fyrir algera tilviljun fyrir tveimur vikum síðan þegar
Sebastian kom hingað til að taka sýninguna niður á
Akureyri.
„Ég kom hingað einn í þetta sinn, en vanalega komum
við öll fjögur að setja upp sýninguna. Mér finnst það
fínt þar sem ég er einn um að taka ákvarðanir án þess
að þurfa að þræta við neinn,“ segir Sebastian og hlær.
Hann segist vera mjög hrifinn af sýningaraðstöðunni í
Hafnarborg og þá sérstaklega vegna þess að þar eru
einnig haldnir tónleikar. „Ég var hérna á tónleikum um
daginn og það minnti mig á sýningu sem við settum
upp sem lítill strákur við svipaðar aðstæður, en þetta
setur listina í alveg nýtt samhengi,“ segir Sebastian.
VIKAN SEM VAR
SEBASTIAN BOYLE SETTI UPP SÝNINGU FJÖLSKYLDU SINNAR Í HAFNARBORG Í VIKUNNI
Dvölin mun valda straumhvörfum
Vildi banna Hróa hött
lést á Landspítalanum Hringbraut aðfaranótt 11. nóvember.
Jarðarförin verður föstudaginn 19. nóvember kl. 13 í Dómkirkjunni.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og bróðir okkar,
Bjarni Ólafsson
Alda Magnúsdóttir
Ólafur Árni Bjarnason Ivette Bjarnason
Erna Björg Bjarnadóttir
Markús Bjarnason
Andri Freyr Halldórsson Michelle Frandsen Ólafsson
Ástríður Jósefína Ólafsdóttir Bjarni Jósef Ólafsson
Frank Niculás Ólafsson Leander Magnús Ólafsson
Haukur Ólafsson Hrefna Ólafsdóttir.
AFMÆLI
Sigurlína Davíðsdóttir háskólakennari
er 62 ára.
Grétar Scheving, Giljaseli 3, er 60 ára.
Maríanna Friðjónsdóttir upptökustjóri
er 51 árs.
Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir er
48 ára.
Þorgeir Örlygsson prófessor er 52 ára.
ANDLÁT
Ólafur Kjartansson, Eyvindarholti, Vest-
ur-Eyjafjöllum, lést miðvikudaginn 10.
nóvember
JARÐARFARIR
14.00 Friðrik Bjarnason bóndi, Hraun-
bóli, Brunasandi, verður jarðsung-
inn frá Prestbakkakirkju á Síðu.
14.00 Guðmundur Sigfússon, Kol-
beinsá, Hrútafirði, verður jarð-
sunginn frá Prestbakkakirkju í
Hrútafirði.
14.00 Hólmfríður Pétursdóttir, Víðihlíð,
Mývatnssveit, verður jarðsungin
frá Reykjahlíðarkirkju.
14.00 Jóhanna Antonsdóttir frá Skeiði,
Hlíðarvegi 45, Siglufirði, verður
jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju.
14.00 Jón Kristinn Kristinsson, Eystra-
Íragerði, Stokkseyri, verður jarð-
sunginn frá Stokkseyrarkirkju.
Tilkynningar um
andlát og jarðarfarir
eru velkomnar á síður
Fréttablaðsins.
Sími: 550 5000
Kennsla er skemmtilegasta starfið
[ BLAÐBERI VIKUNNAR ]
SARA ÓSK RÚNARSDÓTTIR
Hvað heitir blaðberinn?
Sara Ósk Rúnarsdóttir.
Hvað ertu búin að bera út
lengi?
Um það bil átta mánuði.
Hvað ertu með í vasanum?
Síma og kort.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera?
Vera með vinum mínum.
Hvert er þitt mottó?
Veit ekki alveg í augnablikinu ;)