Fréttablaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 65
53LAUGARDAGUR 13. nóvember 2004
FRÉTTIR AF FÓLKI
■ TÓNLIST
STAFRÆN TÆKNI Óskarsverðlaunahafinn Tom Hanks sést hér með stafræna nema á
höfðinu sem hann notaði við gerð nýjustu myndar sinnar, Polar Express. Á hinni myndinni
sést hvernig lokaniðurstaðan varð.
Fyrsta hljóðversplata hljómsveit-
arinnar The Who síðan 1982 gæti
litið dagsins ljós næsta vor. Geng-
ur platan undir vinnuheitinu
WHO2 sem vísar að öllum líkind-
um til þess að gítarleikarinn Pete
Townsend og söngvarinn Roger
Daltrey eru einu eftirlifandi með-
limir sveitarinnar.
Þeir félagar ætla að hittast í
næsta mánuði og spila saman þau
lög sem þeir hafa samið undanfar-
ið. Verði plata gefin út með efninu
mun The Who fara í tónleikaferð
snemma á næsta ári. ■
Leikstjórinn Michael Moore erekki af baki dottinn þrátt fyrir að
George W. Bush hafi unnið banda-
rísku forseta-
kosningarnar
á dögunum.
Moore ætlar
að gera
framhald af
hinni um-
deildu heim-
i l d a r m y n d
sinni Fahrenheit 9/11, en í henni var
Bush gagnrýndur harðlega. „51%
Bandaríkjamanna skorti réttar upp-
lýsingar í þessum kosningum og við
viljum upplýsa þá og mennta,“ sagði
Moore. Myndin verður frumsýnd eft-
ir tvö til þrjú ár.
Orðrómur er uppi um aðHollywood-parið Goldie Hawn
og Kurt Russell sé hætt saman eftir
21 árs ástarsamband. Eitthvað hefur
ástarblossinn víst kulnað
þar á bæ undanfarin ár
og kemur skilnaðurinn
því mörgum vinum
þeirra ekki á óvart.
Hawn hefur ferðast
mikið undanfarið og
eytt sífellt lengri
tíma á Indlandi,
Russell til mikils
ama.
Írski hjartaknúsarinn Colin Farrellvar eitt sinn handtekinn í Ástralíu
grunaður um morð. Þegar Farrell bjó
í Sydney árið 1994 var hann
handjárnaður af lögreglunni
og yfirheyrður í fjórar klukku-
stundir. Síðar kom í ljós að
Farrell líktist bara hinum
grunaða og var sleppt
lausum. Farrell var svo
hræddur eftir þetta at-
vik að hann tók
næstu flugvél heim til
Írlands. Síðan þá hef-
ur hann ekki stigið
niður fæti í Ástralíu.
Gagnrýnendur í Bandaríkjunumeru ekki hrifnir af nýjustu mynd
Olivers Stone, Alexander,
sem hefur verið forsýnd
nokkrum sinnum þar í
landi. Tveir þeirra
segja að söguþráð-
urinn sé lélegur og
myndin sé hræði-
lega illa unnin.
Myndin verður
frumsýnd síðar í
þessum mánuði.
Leikarinn Vincent D’Onofrio er aðjafna sig eftir að það leið yfir hann
við tökur á sjón-
varpsþættinum Law
& Order: Criminal
Intent. D’Onofrio,
sem er 45 ára,
hneig niður við æf-
ingar fyrir þáttinn
og var umsvifalaust
fluttur á sjúkrahús. Talið er að hann
snúi aftur í vinnuna í næstu viku.
Leikarinn Dustin Hoffman var tál-dreginn af 35 ára konu þegar
hann var fimmtán ára. Svipar atvik-
inu til söguþráðar kvikmyndarinnar
The Graduate, þar sem Hoffman fór
með aðalhlutverkið. Í viðtali við tíma-
ritið Playboy segir Hoffman að konan
hafi haldið að hún væri
hjá eldri bróður hans.
Þegar hún komst að
sannleikanum þurfti
Hoffmann að flýja af
hólmi kvik-
nakinn.
THE WHO The Who gaf síðast út hljóðversplötu fyrir 22 árum.
Ný plata frá
The Who?