Fréttablaðið - 22.11.2004, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
FER‹ALEIKURINN ER
Á VISIR.IS – TAKTU fiÁTT!
Þú gætir unnið ferð til
Kaupmannahafnar eða London!
edda.is
Einar Kárason
Sagnalist og skemmtun
Ferðasögur Einars
Þessi bók geymir fjóra ferðaþætti
Einars; Leitin að Livingstone um
tóbaksreisu hans með föður
sínum um Suðurland í verkfalli;
Á vegum úti um fiskvinnu í
Færeyjum og puttaferðalag með
Einari Má um Evrópu; Vitringar í
Austurlöndum lýsir sögulegri mannréttindaferð til Jemen,
og Sorgarsinfónía fjallar um áhrifamikla heimsókn til
Auschwitz.
Einar Kárason sýnir á sér nýja hlið í þessari
skemmtilegu og óvenjulegu bók.
Í byrjun 15. aldar hefur Svartidauði
kvistað niður landslýðinn svo innan
við helmingur lifir eftir af þjóðinni.
Unglingspilturinn Natan Fróðason
er einn eftir af munkum Þykkva-
bæjarklausturs og í rás sögunnar
slæst hann í fræga för með Birni
Jórsalafara til Jerúsalem.
Þriðja bókin í hinum frumlega og metnaðarfulla sagnabálki
Péturs, sem hann kallar Skáldsögu Íslands. Sögusviðið er
15. öld, en jafnframt dvalið við nútímann og hann skoðaður
í aldarspegli hins liðna – og öfugt.
Skáldsaga Íslands
Pétur Gunnarsson
KOMIN Í
VERSLANIR
Meinfýsnir
úrtölumenn
Það er útbreidd skoðun meðalmeinfýsinna úrtölumanna að
fundur þeirra Colins Powells og Dav-
íðs Oddssonar sé einhver þýðingar-
minnsti fundur í samanlagðri sögu
alþjóðastjórnmála, og eru þó stjórn-
málamenn í erlendum samskiptum
sérhæfðir í því að hittast af litlu til-
efni og tala mikið en segja fátt.
ERINDI íslenska utanríkisráðherr-
ans vestur um haf var að votta
Bandaríkjunum takmarkalausa holl-
ustu sína og fylgispekt í von um að fá
að naga í friði tægjurnar af beinaleif-
um bandarísku hersetunnar í Kefla-
vík. Allir vita að sú herseta gegndi
ákveðnu hlutverki í varnarkerfi
Bandaríkjanna í Kalda stríðinu. Það
stríð er nú afstaðið og önnur og hlýrri
tekin við í heilsusamlegri fjarlægð
frá Bandaríkjunum. En með sjón-
varpstækni njóta þarlendar mæður
þeirra nútíma hlunninda að geta
fylgst með drengjunum sínum ráðast
af miklu hugrekki inn í guðshús Mú-
hameðstrúarmanna í beinni útsend-
ingu og drepa þá sem þar liggja og
þykjast vera stikkfrí eða sloj.
ERINDI íslenska utanríkisráðherr-
ans vestur um haf hefur örugglega
líka verið að fá staðfestingu á þeim
upplýsingum sem hann hefur látið
Alþingi Íslendinga og íslensku þjóð-
inni í té um styrjaldarreksturinn í
Írak. Meinfýsnir úrtölumenn halda
því nefnilega blákalt fram að íslenski
utanríkisráðherrann hafi logið blygð-
unarlaust að bæði þingi og þjóð, og
það sé fjarri lagi að hann hafi getað
lagt fram nokkurn vott af sönnunar-
gögnum fyrir bjánalegum staðhæf-
ingum sínum í þágu styrjaldarrekst-
urs Bandaríkjanna og þátttöku Ís-
lendinga í þeim alþjóðlegu glæpa-
verkum.
VONANDI kemur utanríkisráðherr-
ann sigurreifur úr þessari vestur-
göngu sinni drekkhlaðinn sönnunar-
gögnum um þau kærleiksverk sem
Bandaríkjamenn segjast vera að vinna
í Asíu í Jesú nafni og Íslendinga. Því
miður tafðist heimferðin lítið eitt
vegna þess að utanríkisráðherranum
var boðið að vera viðstaddur vígslu
bókasafns suður í Litla-Steini í Ark-
ansasfylki, svo að það verður að bíða
enn um stund að utanríkisráðherrann
sanni í eitt skipti fyrir öll að honum sé
sætt í embætti sínu og ákærur mein-
fýsinna úrtölumanna um rangfærslur,
valdníðslu og bein ósannindi séu upp-
spuni og hugarburður. ■
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR