Fréttablaðið - 23.11.2004, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 23.11.2004, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 23. nóvember 2004 23 100% 410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna Íbúðalán Kynntu þér kostina við íbúðalán Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem hentar þér best. Hafðu samband í síma 410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is Getum unnið þá aftur Keflavík leikur við franska liðið Reims á útivelli í kvöld í Bikarkeppni Evrópu í körfubolta en liðið vann fyrri leikinn á heimavelli örugglega. KÖRFUBOLTI Keflvíkingar leika gegn franska liðinu Reims í Bikar- keppni Evrópu í körfuknattleik í Frakklandi í kvöld. Fyrri leikur- inn fór fram á heimavelli Keflvík- inga 3. nóvember sl. og unnu heimamenn öruggan sigur, 93-74. Reimsliðið átti aldrei möguleika í þeim leik gegn frísku liði Keflvík- inga. Falur Harðarson, aðstoðar- þjálfari Keflavíkurliðsins, sagði hugarfarið í liðinu vera gott fyrir átök kvöldsins. „Við höfum sett allt á fullt með það og höfum fulla trú á að við getum unnið þetta lið aftur. Við verðum bara að sjá hvernig það gengur,“ sagði Falur í samtali við Fréttablaðið. Að sögn Fals var lítil sem engin stemning í liðinu í undanúr- slitum Hópbílabikarsins á föstu- daginn var þar sem Keflavík tap- aði fyrir nágrönnum sínum í Njarðvík, 84-78. „Okkar menn voru bara með hugann við leikinn í kvöld, sem eðlilegt er.“ Jón Norðdal Hafsteinsson, leikmaður Keflavíkur, meiddist í leiknum við Njarðvíkinga. Falur staðfesti að Jón hefði ekkert getað æft og að ekki væri vitað að svo stöddu hvort hann yrði með gegn Reims. „Hann er aumur ennþá en það verður bara að koma í ljós hvort hann verði með. Hann var ekki með á æfingu í gær og við sjáum til í kvöld hvernig ástandi hann verður í.“ Reims hefur ekki gengið vel það sem af er í vetur, hvorki í frönsku deildinni né Bikarkeppni Evrópu. Liðið hefur aðeins unnið tvo leiki af níu sem gefur Keflvík- ingum góða von um að hægt sé að leggja franska liðið af velli á nýjan leik.“Við verðum bara að ganga á lagið ef það gengur eitt- hvað illa hjá leikmönnum Reims og við verðum að sjá til þess að þeir nái ekki að rífa sig upp á móti okkur.“ Það vakti mikla athygli eftir leikinn í Keflavík að þjálfari Reims hélt púlæfingu strax eftir leikinn, leikmönnum sínum til mikillar mæðu og ráku margir sem viðstaddir voru upp stór augu. „Hann sagði eftir leikinn að við hefðum ekki komið honum á óvart heldur frekar sínir eigin leik- menn. Það má því búast við að ekkert vanmat verði upp á ten- ingnum í kvöld enda Reimsliðið reynslunni ríkara eftir leikinn í Keflavík,“ sagði Falur Harðarson. smari@frettabladid.is       !"  !                                !                             # !    $%  % & '  &' # #      ( #                        )     #          #)    &     &  #  *#   &    +           #$      !    "   #   $%$                     GUNNAR EINARSSON HJÁ KEFLAVÍK Átti stórleik í fyrri leik liðanna og skoraði 28 stig. Keflavík mætir Reims í Bikarkeppni Evrópu í kvöld. Ástralski sundkappinn Ian Thorpe: Hvíld næstu fjögur árin SUND Ekki er loku fyrir það skotið að sundkappinn ástralski, Ian Thorpe, taki ekki þátt í heims- meistarakeppninni í sundi sem fram fer í Kanada á næsta ári. Telur þjálfari hans að Thorpe þurfi á öllu sínu að halda fyrir Ólympíuleikanna sem haldnir verða í Peking að fjórum árum liðnum. Thorpe mun þannig ekki geta varið titil sinn í 400 metra bringu- sundi en þann titil hefur hann unnið þrisvar í röð undanfarin ár auk þess sem kappinn er fimm- faldur Ólympíumeistari og ein skærasta stjarnan í sundíþrótt- inni í heiminum. Lokaákvörðun verður tekin innan tíðar. Það gæti raunar farið svo að Thorpe keppi ekkert næstu fjögur árin eða þar til Ólympíuleikarnir fara fram. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.