Fréttablaðið - 24.11.2004, Blaðsíða 13
21MIÐVIKUDAGUR 24. nóvember 2004
!"#
$$%#&
!'
(%%)*+'*,
!*
-!")
-!")
HRINGRÁSARBRUNINN Hafþór Þórs-
son vaktmaður varð fyrstur var við
eldinn á svæði Hringrásar við
Klettagarða um klukkan hálf tíu í
fyrrakvöld. Hann var að klára vakt
sem átti að ljúka klukkan tíu og fór
í síðustu eftirlitsferðina. „Ég gekk
út og varð þá var við smá loga í
þakhorninu á skemmunni,“ segir
Hafþór.
Hafþór hringdi strax í neyðar-
línuna þegar hann sá eldinn. Fjór-
um til sex mínútum síðar segir
hann lögreglu og slökkvilið hafa
verið komin á staðinn. „Á nokkrum
mínútum var skemman orðin al-
elda og eldur kominn yfir í dekkja-
hrúguna. Í fyrstu voru miklar
sprengingar inni í eldhafinu. Ég tel
að þá hafi gaskútar verið að
springa en síðan fór að líða lengra
á milli sprenginga,“ segir Hafþór.
Hann fór til að bjarga einni vinnu-
vélinni frá eldinum en vélin var
síðar notuð til að forða eldsmat á
svæðinu frá því að brenna. Að-
spurður segist hann ekki hafa orð-
ið var við mannaferðir á svæðinu,
sem er afgirt. Hann segir ekki að
því hlaupið að komast inn á svæðið
og þaðan inn í skemmuna. Hafþór
er aðeins nítján ára og fannst hon-
um sárt að sjá eldsvoðann á sínum
fyrsta vinnustað, sem hann hefur
starfað á í þrjú ár. - hrs
HAFÞÓR ÞÓRSSON VAKTMAÐUR Ein vinnuvél stóð skammt frá eldinum og þurfti
Hafþór að bjarga henni frá eldtungunum. Síðar var vélin notuð við slökkvistarfið.
Nítján ára vaktmaður varð eldsins var:
Varð alelda á nokkrum mínútum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
HRINGRÁSARBRUNINN Eldur kom
upp á athafnasvæði Hringrásar
fyrir þremur árum í kjölfar
sprengingar sem varð þegar
tankur með sprengifimu efni fór
í brotajárnspressu. Hann náði þó
ekki að breiðast út eins og eldur-
inn sem kviknaði á vinnusvæði
fyrirtækisins í fyrrakvöld.
Árið 2001 reyndist slökkvi-
liðinu ekki unnt að nota vatn til
slökkvistarfa og þurfti að beita
dufttækjum. Tveir starfsmenn
endurvinnslustöðvarinnar voru
þá fluttir á spítala vegna gruns
um reykeitrun. - ghg
Eldur kom upp 2003:
Annar bruninn hjá
Hringrás á þremur árum
FRÁ SLÖKKVISTARFINU.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Að sögn Hauks var eitthvað um
að fólk hleypti ekki lögreglunni
inn. „Fólk þorði ekki að opna fyrir
okkur, hélt að einhver lýður væri á
ferðinni, handrukkarar eða því-
umlíkt. Hins vegar opnaði fólk
þegar það sá að þetta var lögregl-
an,“ segir hann.
Austanstrekkingurinn gerði
það að verkum að svæði sem af-
markaðist af Dalbraut, Rauðalæk,
Laugarnesvegi og Köllunarkletts-
vegi varð hulið reyk á augabragði
og því þurfti að rýma hús á því
svæði. Jón Viðar Matthíasson að-
stoðarslökkviliðsstjóri telur vind-
áttina hafa verið með óhagstæð-
ara móti vegna íbúðahverfanna
sem urðu fyrir reyk. „Það hefði
verið betra ef vindáttin hefði
staðið meira út á sjóinn, sunnanátt
hefði í raun verið best.“
Ef sunnanáttin hefði verið
heppilegust þá er öruggt að norð-
an- eða norðaustanátt hefðu haft
mun alvarlegi afleiðingar. Eins og
sjá má af kortinu á síðunni hefðu
stór íbúðahverfi verið kaffærð í
kolsvörtum eiturgufunum, en ríf-
lega 4.000 manns búa á þessum
slóðum, þar af fjöldi aldraðra. Að-
spurður hvort svo umfangsmiklar
rýmingaráætlanir væru til segir
Haukur að yfirvöld hefðu haft ein-
hver ráð með það. „Við hefðum
notað fjölmiðla til að vekja athygli
á hættunni og jafnframt keyrt um
hverfið með gjallarhorn og annað,
rétt eins og nú. Það er hins vegar
alltaf spurningin hvert farið er
með fólk. Ef ekki hefðu verið nógu
margir strætisvagnar til að flytja
fólkið hefðum við hringt í rútu-
fyrirtæki líka.“
Engum dylst að við öllu verri
aðstæður hefði verið að etja í
norðaustanátt. Byggðin er dreifð-
ari þannig að mun fjölmennara lið
hefði þurft til að vekja íbúa og
koma þeim í öruggt skjól og í stað
þess að ganga íbúð úr íbúð, eins og
á Kleppsveginum, hefði björgun-
arliðið þurft að þræða þröngar
innkeyrslur einbýlishúsanna í
gegnum sótsvartan mökkinn.
Þannig má segja að austanstrekk-
ingurinn hafi verið lán í óláni.
sveinng@frettabladid.is
ALLIR Í STRÆTÓ
Erfitt hefði verið að flytja fólk á brott ef
stærri hluti byggðarinnar hefði verið hulinn
reyk.
GASGRÍMUR KOMU Í GÓÐAR ÞARFIR.
Lögreglan stýrði umferðinni af stakri
skilvirkni þrátt fyrir mökkinn.