Fréttablaðið - 24.11.2004, Blaðsíða 19
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 6
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 92 stk.
Keypt & selt 28 stk.
Þjónusta 45 stk.
Heilsa 8 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 12 stk.
Tómstundir & ferðir 5 stk.
Húsnæði 28 stk.
Atvinna 22 stk.
Tilkynningar 5 stk.
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagurinn 24. nóv.,
329. dagur ársins 2004.
Reykjavík 10.26 13.15 16.03
Akureyri 10.30 12.59 15.28
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Kalli Bjarni verður heima hjá sér um jólin í
fyrsta skipti. „Við ætlum að vera í okkar
eigin húsi og bjóða ættingjunum og halda
okkar eigin jól. Við höfum alltaf verið
heima hjá foreldrum okkar eða einhverjum
öðrum en nú verðum við gestgjafarnir.
„Þau hjónin eru ekki alveg búin að ákveða
hvaða jólamat þau ætla að bjóða fjölskyld-
unni upp á en Alla hallast helst að kalkúni
og Kalli Bjarni samþykkir það. Annars eiga
þau því að venjast að jólamaturinn sé fjöl-
breyttur, eitthvað fyrir alla. Þau fara í
kirkju klukkan sex og svo borða þau
jólamatinn og opna pakka milli rétta. Eftir-
rétturinn er Ris a la mande með tilheyrandi
möndlugjöf.
Kalli Bjarni verður á fullu alla aðvent-
una að árita nýju plötuna sína og fylgja
henni eftir og á ekki eftir að hafa mikinn
tíma til að undirbúa jólin. Þó er hann harð-
ákveðinn í einu: „Ég vil helst að við búum
jólaskrautið að mestu leyti til sjálf. Dóttir
okkar hefur einstaklega gaman af því að
föndra og dunda sér eitthvað og ég get
alveg föndrað þó ég segi sjálfur frá.“
Fyrsta aðfangadagskvöldið heima verður
því örugglega haldið við óvenjufallegt og
vel skreytt jólatré. ■
Býr til skrautið sjálfur
jol@frettabladid.is
Ora jólasíldin 2004 er komin
á markað en hún er sérlegin
fyrir jólin. Í fyrra var það í fyrsta
skipti sem Ora kynnti árgangs-
síldina sem er sér-
legin fyrir hver jól.
Stendur til að
kynna nýja tegund
á hverju ári fyrir
jólin og er nýr
miði settur á
krukkuna í hvert
sinn. Í ár er miðinn
jólagrænn og er sér-
lega smekklegur við
sinneps-, pipar- og
paprikufræin sem bragðbæta
og skreyta löginn sem síldin er
í. Í fyrra var síldin í rauðum
legi, en blár miði prýddi krukk-
urnar.
Í Fjölskyldu- og húsdýra-
garðinum verður settur upp
jólamarkaður frá 28. nóvember
til 23. desember. Sett verða
upp átta 6 fermetra hús sem
hugsuð eru fyrir einstaklinga
eða félagasamtök sem vilja
selja handverk eða annað sem
tengist jólunum og góðar gjafa-
vörur. Leiga á húsunum er
engin en í staðinn er ætlast til
þess að sala verði í húsunum
daglega á tímabilinu frá 13.30
til 17.00. Mikið verður um
skemmtilegar uppá-
komur og verður
meðal annars
boðið upp á hest-
vagnaferðir í 100
ára gömlum skreytt-
um hestvagni. Jóla-
saga verður lesin frá
1.desember í Undra-
veröld og guðsþjón-
ustur verða á aðventu-
dögunum. Frá 12. desem-
ber koma jólasveinar í heim-
sókn daglega kl.13.30.
Verslunin Saumur og merk-
ing hefur nú opnað í Smára-
lind á móti versluninni Pink.
Verslun þessi býður upp á
frábært úrval af stórskemmti-
legum vörum sem tilvalið er
að gefa í jólgjöf. Þar fást til
dæmis sérmerktar könnur,
bolir, músamottur, húfur, hand-
klæði, flísteppi og sængurver.
Einnig fást þar glæsilegir skírn-
arkjólar og ungbarnasængur-
verasett.
Fjölskyldan: Súsanna Margrét, Aðalheiður Hulda Jónsdóttir, Kalli Bjarni og Maríus Máni.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
fyrir jólin
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Þegar presturinn
spurði hvort ég
vildi fara til himna
sagði ég nei því
mamma var að
koma að sækja mig!
Aðventukransar af öllum gerðum
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Kalli Bjarni heldur jól á eigin heimili í fyrsta sinn.
Jólavefur Vísis
Vefur sem hefur að geyma allt það sem viðkemur
jólunum.
Skemmtilegar jólamyndir er að finna á jólavefnum inni á Vísi.is.
Á Vísi.is hefur verið opnaður
jólavefur þar sem er að finna
ýmislegt fróðlegt og skemmti-
legt efni er tengist jólunum á
einn eða annan hátt. Vefurinn er
uppfærður daglega.
Efnið á vefnum er af ýmsum
toga og má þar nefna uppskrift-
ir, fréttir, jólalög, tillögur að jóla-
gjöfum og margt fleira.
Allar uppskriftir er birtast á
síðum Fréttablaðsins um jólin
munu birtast á vefnum þar sem
þær eru aðgengilegar og auðvelt
er að prenta þær út. Auk þess er
talið niður til jóla og má sjá stutt
myndbrot af föndurgerð. Allir
sem halda jól geta nýtt sér efni
vefsins á einn eða annan máta
enda af nógu að taka. ■
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA NÁM FERÐIR JÓL MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ NEYTENDUR o.fl.