Fréttablaðið - 24.11.2004, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 24. nóvember 2004
Danfoss hf
Skútuvogi 6 Sími 510 4100
www.danfoss.isÞægindi - Öryggi - Sparnaður
Húseigendur!
Aukið þægindin og lækkið hitunarkostnaðinn
með ECL stjórnstöð á hitakerfið
Kynnið ykkur kosti og verð
ECL stjórnstöðvarinnar frá Danfoss
ECL stjórnstöðvar fyrir hitakerfi
Jólaskreytinganámskeið Garð-
yrkjuskólans verða tvö í ár, bæði
haldin í húsakynnum skólans að
Reykjum í Hveragerði. Hið
fyrra verður laugardaginn 27.
nóvember og hitt laugardaginn
4. desember og standa þau bæði
frá kl. 10 til 16.
Leiðbeinandi verður Júlíana
Rannveig Einarsdóttir, fagdeild-
arstjóri á blómaskreytingabraut
skólans. Á fyrra námskeiðinu út-
búa þátttakendur aðventukransa
og jólaskreytingar og 4. desem-
ber verða hurðaskreytingar og
jólaskreytingar teknar fyrir.
Þátttökugjald er kr. 7.500 og
verður pizzuveisla í hádeginu.
Greiða þarf 3.500 króna staðfest-
ingargjald við skráningu sem er
óendurkræft en fjölmörg stétt-
arfélög taka þátt í greiðslu nám-
skeiðsgjalda sem þessa. Skrán-
ing og nánari upplýsingar um
námskeiðin fást á skrifstofu
skólans í síma 480-4300 eða hjá
endurmenntunarstjóra í síma
480-4305 og í netfanginu
mhh@reykir.is ■
Kennsla í gerð aðventukransa
Sýnishorn af því sem gert er á nám-
skeiðunum.
Garðyrkjuskólinn á Reykjum heldur tvö námskeið
í skreytingum.
Hátíðlegir aðventukransar
Fyrir þá sem ekki hafa tíma
til að búa til krans.
Aðventukransar tilheyra svo
sannarlega undirbúningi jól-
anna. Gaman er að gera eigin
krans en ekki hafa allir tíma til
þess. Þá er gott að geta keypt sér
krans.
Nóg er úrvalið í blómabúðum
eins og sjá má á síðunni. Blóma-
verkstæði Binna er þekkt fyrir
glæsilega aðventukransa eins og
meðfylgjandi myndir sýna.
Hefðbundnir grenikransar
standa alltaf fyrir sínu en fjöl-
breytnin í keyptum krönsum er
æði mikil og grenikransar sjald-
séð sjón. ■
Glæsilegir og hátíðlegir kransar frá
Blómaverkstæði Binna.
- mest lesna blað landsins
Á FIMMTUDÖGUM
Fyrir áhugafólk um falleg heimili
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
{ Aðventuljósin }
* Fyrsta kertið er Spámannskertið, sem minnir á fyrirheit spámannanna
* um komu frelsarans.
* Annað kertið er Betlehemskertið, sem heitir eftir fæðingarbæ Jesú.
* Þriðja kertið er Hirðakertið, nefnt eftir hirðingjunum sem fyrstir fengu
* fregnir um fæðingu Jesú.
* Fjórða kertið er Englakertið, sem minnir á englana sem fluttu fréttina*
* um fæðingu Jesú.