Fréttablaðið - 24.11.2004, Blaðsíða 44
24 24. nóvember 2004 MIÐVIKUDAGUR
Við hrósum...
...forráðamönnum FH og KR sem ætla ekki að láta stórlið í Evrópu komast upp með að næla í unga og efnilega leikmenn frá Íslandi fyrir lítinn sem engan
pening. Bæði félögin hafa fengið tilboð í sína efnilegustu leikmenn en þeim tilboðum, sem þóttu óásættanleg, hefur verið svarað með gagntilboðum sem enn
hefur ekki borist svar við. Það hefur löngum verið lenska hjá erlendum liðum að ætla að fá íslenska leikmenn nær ókeypis en það er varla til of mikils mælst
að íslensku liðin fái sanngjarna upphæð fyrir sína menn sem þeir hafa alið upp.sport@frettabladid.is
LEIKIR GÆRDAGSINS
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
21 22 23 24 25 26 27
Miðvikudagur
NÓVEMBER
KÖRFUBOLTI Keflvíkingar gerðu sér
lítið fyrir og skelltu franska liðinu
Reims á útivelli í Bikarkeppni
Evrópu í körfuknattleik í gær, 94-
106. Keflavík byrjaði leikinn
gríðarlega sterkt, hitti vel strax
frá byrjun og komst Reims lítið
áleiðis gegn firnasterkri vörn
Keflavíkinga. Magnús Þór Gunn-
arsson og Nick Bradford nýttu öll
þriggja stiga skot sín í fyrsta leik-
hluta sem Keflavík vann, 38-25.
Reims sótti aðeins á í byrjun
þriðja fjórðungs með 8-3 áhlaupi.
Staðan í leikhléi var 53-62,
Keflavík í vil.
Reims ætlaði ekki að láta sitt
eftir liggja og með hinn stóra
Ryan Fletcher í broddi fylkingar
náði liðið að saxa á forskotið og
minnstur varð munurinn í lok
þriðja leikhluta, fimm stig, 83-78.
Minnugir leiksins gegn Bakken
Bears í síðustu viku ætluðu Kefl-
víkingar ekki að missa niður feng-
inn hlut og var Magnús Þór Gunn-
arsson drjúgu undir lokin og kom
Keflavík í þægilega 18 stiga for-
ystu undir lokin sem var allt of
stórt bil fyrir Reims til að brúa.
Lokatölur voru 94-106 og fyrstu
útisigur Keflavíkur í Evrópu-
keppni orðinn staðreynd.
„Þeir komast yfir í byrjun en
um miðjan fyrsta leikhluta erum
við með leikinn í hendi okkar,“
sagði Falur Harðarson, aðstoðar-
þjálfari Keflavíkurliðsins. „Skot-
nýting okkar var mjög góð og leik-
urinn var mjög hraður sem hent-
aði þeim ekkert sérlega vel. Nú er
fyrsti útisigurinn í höfn og þetta
gefur okkur byr undir báða vængi
uppá framhaldið,“ sagði Falur að
leik loknum.
Næsti leikur Keflavíkur er
gegn Bakken Bears í Danmörku 7.
desember nk.
smari@frettabladid.is
NICK BRADFORD HJÁ KEFLAVÍK
Bradford skoraði 29 stig í fyrsta útisigri Keflvíkinga í Bikarkeppni Evrópu í gær.
Keflavík braut blað í sögu félagsins í gærkvöldi
Fyrsti útisigurinn í
Evrópukeppni■ ■ LEIKIR 19.15 Grindavík og Njarðvík
mætast í Grindavík í 1. deild
kvenna í körfubolta.
19.15 Grótta/KR og Þór Ak.
mætast á Seltjarnarnesi í átta liða
úrslitum SS-bikars karla í
handbolta.
19.15 KA og ÍBV mætast í KA-
heimilinu í átta liða úrslitum SS-
bikars karla í handbolta.
20.00 Haukar 2 og HK mætast á
Ásvöllum í átta liða úrslitum SS-
bikars karla í handbolta.
■ ■ SJÓNVARP
17.45 Meistaramörk á Sýn. Sýnt
frá leikjum í Meistaradeild Evrópu
í fótbolta í gærkvöld.
19.30 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Bein útsending frá leik PSV
og Arsenal í Meistaradeildinni í
fótbolta.
19.30 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn 2. Bein útsending frá leik
Werder Bremen og Inter Milan í
Meistaradeildinni í fótbolta.
21.40 Meistaramörk á Sýn. Sýnt
frá leikjum í Meistaradeild Evrópu
í fótbolta.
22.15 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Útsending frá leik Chelsea
og Paris St. Germain í
Meistaradeildinni í fótbolta.
22.20 Handboltakvöld á RÚV. Sýnt
frá leikjum úr SS-bikar karla í
handbolta sem fram fóru fyrr um
kvöldið.
00.05 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Útsending frá leik Werder
Bremen og Inter Milan í
Meistaradeildinni í fótbolta.
Meistaradeildin
A-RIÐILL
MÓNAKÓ–LIVERPOOL 1–0
Saviola (55.).
OLYMPIAKOS–DEPORTIVO 1–0
Djordjevic (68.).
OLYMPIAKOS 5 3 1 1 4–2 10
MÓNAKÓ 5 3 0 2 5–4 9
LIVERPOOL 5 2 1 2 3–2 7
DEPORTIVO 5 0 2 3 0–4 2
B-RIÐILL
R. MADRID–LEVERKUSEN 1–1
Raul (70.) - Berbatov (36.).
D. KIEV–ROMA 2–0
Dellas (sjálfsm. 73.), Shatskikh (82.).
D. KIEV 5 3 1 1 11–5 10
LEVERKUSEN 5 2 2 1 10–7 8
R. MADRID 5 2 2 1 8–8 8
ROMA 5 0 1 4 4–13 1
C-RIÐILL
B. MÜNCHEN–MACCABI 5–1
Pizarro (12.), Salihamidzic (37.), Frings (44.),
Makaay (71., 80.) - Dego (Víti 56.).
JUVENTUS–AJAX 1–0
Zalayeta (15.).
JUVENTUS 5 5 0 0 5–0 15
B. MÜNCHEN 5 3 0 2 10–3 9
AJAX 5 1 0 4 4–8 3
MACCABI 5 1 0 4 3–11 3
D-RIÐILL
MAN. UTD–LYON 2–1
G. Nevill (19.), Van Nistelrooj (53.) - Diarra (40.).
S. PRAG–FENERBAHCE 0–1
Kovac (sjálfsm. 20.).
MAN. UTD 5 3 2 0 14–6 11
LYON 5 3 1 1 12–8 10
FENERBAHCE 5 2 0 3 7–13 6
S. PRAG 5 0 1 4 2–8 1
Kvennalandslið í handbolta
SLÓVAKÍA–ÍSLAND 26–26
Mörk Íslands: Hrafnhildur Skúladóttir 9, Kristín
Guðmundsdóttir 5, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir
4, Hanna G. Stefánsdóttir 3, Dagný Skúladóttir 3,
Jóna Margrét Ragnarsdóttir 1, Ásdís Sigurðardóttir
1.
Stig Keflavíkur: Anthony Glover 29 (12
frák.), Nick Bradford 29 (9 frák.), Magnús
Þór Gunnarsson 25 (7 frák.), Jón Norðdal
Hafsteinsson 10, Gunnar Einarsson 7,
Sverrir Þór Sverrisson 6.