Fréttablaðið - 25.11.2004, Blaðsíða 76
35FIMMTUDAGUR 25. nóvember 2004
SÍMI: 551 9000 www.regnboginn.is
FRÁBÆR SKEMMTUN
Sýnd kl. 8 og 10.15 B.I.14Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10:15
Ein besta spennu- og grínmynd ársins.
Sýnd kl. 8 og 10.10 B.I.16 Sýnd kl. 5.50 B.I.16
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I.16 Forsýnd kl. 6 m/ísl. tali.
Búið ykkur undir
að öskra.
EINGÖNGU SÝND
UM HELGAR
RITHÖFUNDUR SÝND KL. 8 & 9
STJÓRNSTÖÐIN SÝND KL. 6
GERRIE AND LOUISE SÝND KL. 6
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík
Sýnd kl. 8 og 10.15
Sýnd kl. 6 og 10.15 B.I.14
Sýnd kl. 6 m/ísl. tali
Miðaverð 500 kr.
Sama Bridget. Glæný dagbók.
Sýnd kl. 8 og 10
Frá spennumyndaleikstjóranum Renny Harlin
kemur þessi magnaði spennutryllir sem kemur
stöðugt á óvart. Strangleg bönnuð innan 16.
Kolsvört jólagrínmynd
HHH kvikmyndir.com
HHH kvikmyndir.com
HHH
HL Mbl
HHH1/2 kvikmyndir.is
HHH kvikmyndir.com
HHH Balli / Sjáðu PoppTV
F R U M S Ý N I N G
Raftónlistarsveitin Worm is
Green heldur tónleika í Bíóhöll-
inni á Akranesi á fimmtudags-
kvöld. Þar spila einnig Thor frá
Thule- útgáfunni og plötusnúður-
inn Jonfri frá Akranesi.
Worm is Green er nýkomin úr
fimm vikna tónleikaferð um
Bandaríkin þar sem hún hitaði upp
fyrir hollensku hljómsveitina
Solex. Sú sveit gefur út tónlist sína
hjá hinni virtu Matador-útgáfu.
Að sögn Árna Teits Ásgeirsson-
ar, forsprakka Worm is Green,
spilaði sveitin á 23 tónleikum
vestanhafs við prýðilegar undir-
tektir. „Þetta var mikil keyrsla en
það er ótrúleg reynsla að fara
í svona langan og erfiðan túr,“
segir Árni Teitur. „Við erum samt
alveg til í að fara í aðra svona ferð
og förum líklega aftur til Banda-
ríkjanna og Evrópu á næsta ári.“
Worm is Green er á leið í hljóð-
ver í næsta mánuði til að vinna að
sinni annarri plötu sem kemur lík-
lega út með vorinu. Sú fyrsta,
Automagic, kom út rétt fyrir jólin
2002 og fékk fínar viðtökur. Var
hún meðal annars tilnefnd
í flokknum „Nýliði ársins“ til
Íslensku tónlistarverðlaunanna
árið 2003. Nýtt lag með Worm is
Green, Push play, er að finna á
safnplötunni Frjáls Palestína sem
kemur út 29. nóvember. ■
Fimm vikna tónleikaferð lokið
WORM IS GREEN Frá vinstri: Þorsteinn Hannesson, Árni Teitur Ásgeirsson, Guðríður
Ringsted og Vilberg Hafsteinn Jónsson. Á myndina vantar Bjarna Þór Hannesson.
■ TÓNLIST