Fréttablaðið - 01.12.2004, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MIÐVIKUDAGUR
FRJÁLS PALESTÍNA KK, Mugison,
Bob Justman, Lára & Delphi, Touch og
Ensími koma fram á útgáfutónleikum
safndisksins Frjáls Palestína klukkan níu í
kvöld á Gauki á Stöng. Ágóði af tónleik-
unum og af sölu disksins rennur til styrkt-
ar æskulýðsstarfi í flóttamannabúðum í
Palestínu.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
1. desember 2004 – 329. tölublað – 4. árgangur
● hóf nám í haust
17 ára polli í
Listaháskólanum
Geir Helgi Birgisson:
▲
SÍÐA 31
SÖGÐ BORGA STÓRFÉ MEÐ
LÍNU.NETI Sjálfstæðismenn segja Orku-
veituna hafa borgað nærri 600 milljónir
með Línu.neti. Sjá síðu 2
ÍHUGAR MEIÐYRÐAMÁL Fyrrverandi
endurskoðandi Tryggingasjóðs lækna var
sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Hann var sakaður um að hafa vanrækt
skyldur sínar. Sjá síðu 2
SAMIÐ UM VERÐ Á BIG FOOD
GROUP Samstaða hefur náðst milli
Baugs og stjórnar Big Food Group um verð
fyrir breska fyrirtækið. Baugur náði að
lækka verðið umtalsvert. Sjá síðu 4
HASSSENDING STÍLUÐ Á FÖÐUR-
INN Ungur maður er ákærður fyrir að
flytja inn fimmtán kíló af hassi með föður
sínum og tveim jafnöldrum. Faðirinn segist
ekki hafa vitað um hassið. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 26
Tónlist 24
Leikhús 24
Myndlist 24
Íþróttir 22
Sjónvarp 30
● jólastemning í firðinum
Hin unga snót
Jólaþorpið:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
ÞURRT Í FYRSTU en slydda eða rign-
ing sunnan og vestan til á landinu þegar
líður á daginn. Hlýnandi veður og víða
frostlaust í kvöld. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Fimmtudagar
Me›allestur dagblaða
Konur
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups október '04
68%
43%
MorgunblaðiðFréttablaðið
MÁLAFERLI Verið er að undirbúa
stefnu gegn Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins fyrir brot á
lögum um framkvæmd útboða
vegna útboðs sem fór fram í
Hveragerði. Þá samdi ÁTVR við
Essó um að áfengisútsalan yrði
rekin í bensínstöð fyrirtækisins.
Auk Essó gerðu þrjú önnur
fyrirtæki tilboð í reksturinn í
Hveragerði og miðaði eitt tilboð-
anna að því að áfengisversl-
unin færi inn í Sunnumörk, ný-
legt verslunarhúsnæði á staðn-
um. Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
framkvæmdastjóri SS verktaka
sem á Sunnumörk, bendir á að
samið hafi verið við Essó þrátt
fyrir að fyrirtækið hafi aðeins
boðið upp á um 40 fermetra hús-
næði, ekki 60 fermetra eins og
skilmálar kváðu á um í útboðs-
gögnum. Hann segir einnig að
enginn af bjóðendum hafi fengið
formlega tilkynningu um niður-
stöðu útboðsins þar með talið
hvað Essó bauð. Það sé klárt brot
á lögum um framkvæmd útboða
og því sé lögfræðingur nú með
málið til skoðunar. Samkvæmt
lögunum skal opna öll tilboð sam-
tímis á þeim stað og tíma sem
kveðið er á um í auglýsingu
eða sérstakri tilkynningu. Bjóð-
endum eða fulltrúum þeirra
skal heimilt að vera viðstaddir
opnun tilboðanna og þar á lesa
upp heildarupphæð tilboðanna.
Sveinbjörn segir að þetta hafi
ekki verið gert. Raunar viti hann
það ekki enn þann dag í dag hvað
Essó bauð. Það sé ólíðandi.
Orri Hlöðversson, bæjarstjóri
í Hveragerði, segir að þetta mál
sé allt með ólíkindum. Fyrir utan
þau málaferli sem nú séu í far-
vatninu sé verið að opna áfengis-
verslunina, opinbera þjónustu, í
fullkominni ósátt við bæjarstjórn
og gegn undirskriftum 800 bæj-
arbúa sem vildu að hún yrði inni í
Sunnumörk. Hann segist taka
undir það með Sveinbirni að ekki
hafi verið staðið rétt að útboðinu.
Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, segist hafa verið í leyfi
þegar útboðið fór fram í Hvera-
gerði og því geti hann ekki
svarað fyrir um framkvæmd
þess. Hann vísaði á Ívar Arndal,
sem var settur forstjóri á þeim
tíma sem útboðið fór fram. Ívar
vildi ekki tjá sig um málið.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins er vel hugsanlegt að fleiri
muni stefna ÁTVR í kjölfarið á
þessu máli í Hveragerði. Athygli
vekur að í öllum þeim tilfellum
var samið við fyrirtæki sem
leigja aðstöðu af Essó.
Sjá síðu 8
- th
Borgarstjóri:
Erilsamur
lokadagur
REYKJAVÍK Þórólfur Árnason, frá-
farandi borgarstjóri, segist sáttari
nú en nokkru sinni áður við
ákvörðun sína að hætta sem borg-
arstjóri. Hans síðasta embættis-
verk í gær var undirritun samn-
ings um stofnun Sjóminjasafns
Reykjavíkur.
Þórólfur segir gærdaginn hafa
verið erilsaman. Hann hafi byrjað
á morgunverðarsamkomu í ráðhús-
inu með starfsfólki. Eftir undirbún-
ingsfund fyrir borgarráð afhenti
hann þrettán nýráðnum embættis-
mönnum borgarinnar ráðningar-
bréf. Deginum hafi síðan lokið með
kveðjuboði með borgarfulltrúum
og embættismönnum. - ghg
Landsvirkjun:
Ríkið kaupi Reykjavíkurborg út
REYKJAVÍKURBORG Viðræður hafa
staðið yfir undanfarnar vikur sem
miða að því að ríkissjóður kaupi
meðeigendur sína, fyrst og fremst
Reykjavíkurborg út úr Lands-
virkjun.
Valgerður Sverrisdóttir iðnað-
arráðherra skýrði frá viðræðun-
um á þingflokksfundum stjórnar-
flokkanna í gær. Hins vegar tókst
ekki að ganga frá viljayfirlýsingu
um málið í gær áður en Þórólfur
Árnason léti af starfi borgarstjóra
en honum var mjög í mun að láta
þetta verða sitt síðasta verk. Hátt-
settur embættismaður vísaði því
hins vegar á bug að viðræðuslit
hefðu orðið: „Þetta mun ganga
upp þótt þessi tímarammi hafi
ekki náðst.“
Reykjavíkurborg hefur um
nokkurra ára skeið viljað selja
hlut sinn í Landsvirkjun. Hug-
myndin hefur verið sú að ríkið
greiði fyrir kaupverðið um það bil
25-30 milljarða króna með því að
taka yfir lífeyrisskuldbindingar
Reykjavíkurborgar og Akureyrar,
til dæmis með útgáfu skuldabréfs.
Ekki hefur verið mikill áhugi á
þessum kaupum hjá ríkinu fyrr en
nú.
Ríkisvaldið telur fyrirtækið 45-
50 milljarða króna virði. Til sam-
anburðar má nefna að ríkið seldi
46% hlut í Landsbankanum á 12
milljarða fyrir tæpum tveimur
árum.
- ás
www.postur.is
3.12.
Síðasti öruggi skiladagur
á jólapökkum
til landa
utan
Evrópu!
ÁTVR stefnt vegna
samnings við Essó
Verið er að undirbúa málsókn á hendur Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins í Hveragerði vegna
brots á lögum um útboð. Tilboðin voru aldrei formlega opnuð að viðstöddum bjóðendum.
Á Suðurlandi eru áfengisverslanir nær undantekningarlaust í húsnæði Essó.
ÞÓRÓLFUR ÁRNASON Síðasta embættisverk Þórólfs sem borgarstjóra var undirritun samnings um stofnun Sjóminjasafns Reykjavíkur.
Stefán Jón Hafstein er í stjórn hins nýja safns.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M