Fréttablaðið - 06.12.2004, Blaðsíða 62
22 6. desember 2004 MÁNUDAGUR
LEIKIR GÆRDAGSINS
HANDBOLTI Haukar luku keppni í
Evrópukeppni bikarhafa í Zagreb
í gær er þeir töpuðu öðru sinni
fyrir Medvescak Infosistem
Zagreb. Á laugardag töpuðu þeir
með eins marks mun, 29-28, en
verr fór í gær er þeir töpuðu með
átta marka mun, 31-23.
Haukar áttu lengi vel tækifæri
á að leggja króatíska liðið en þeir
leiddu með tveim mörkum, 22-20,
þegar fimmtán mínútur lifðu leiks.
Þá skiptu Króatarnir um markvörð
sem lokaði markinu og Haukunum
var pakkað saman á lokamínútun-
um en þeir töpuðu síðustu fimmtán
mínútum leiksins 11-1. Páll Ólafs-
son, þjálfari Hauka, var frekar
svekktur í leikslok en sagði að
sínir menn hefðu verið orðnir
þreyttir undir lokin.
„Þetta var fjórði leikurinn okk-
ar á einni viku og það tekur sinn
toll að spila svona marga leiki og
svo bætast ferðalög ofan á það,“
sagði Páll sem var þrátt fyrir það
ánægður með strákana sína sem
þurftu einnig að leika án Ásgeirs
Arnar Hallgrímssonar sem er
meiddur.
„Þeir börðust eins og ljón allan
tímann og gáfust aldrei upp. Það
var frábær stemning í hópnum og
það er eiginlega synd að okkur
skyldi ekki takast að klára dæmið
þvi þetta lið er ekkert betra en
við. Úthaldið brást okkur aftur á
móti og má segja að við höfum
orðið bensínlausir undir lokin.“
Haukarnir seldu heimaleik
sinn í keppninni sökum slakrar
mætingar á leiki liðanna í Meist-
aradeildinni og það varð þeim
hugsanlega að falli að þessu sinni
því á góðum degi að Ásvöllum
hefðu þeir klárað þetta lið. Mæt-
ingin á leiki liðanna í Króatíu var
döpur en aðeins mættu um 300
manns á hvorn leik og mynduðu
þessir fáu áhorfendur ekki mikla
stemningu í húsinu.
henry@frettabladid.is
Haukum sökkt í Zagreb
Úthald leikmanna Íslandsmeistara Hauka brást í Zagreb í gær. Haukar
leiddu leikinn lengi vel en sprungu undir lokin og töpuðu lokakaflan-
um, 11-1 þar með leiknum, 31-23.
Lögreglan í Detroit hefur staðfestað David Wallace, sem er eldri
bróðir Ben Wallace Detroit hjá
Pistons, hafi tekið þátt í slagsmálun-
um sem brutust út milli leikmanna
og áhorfenda í heimaleik Pistons við
Indiana Pacers Í
NBA-körfuboltan-
um. Wallace sést
í stympingum við
Fred Jones hjá
Pacers. Aðspurður
sagðist Ben Wallace
ekkert vita um málið
og David neitaði að
hafa tekið þátt í slags-
málunum.
Körfuknattleiks-deild Grindavík-
ur hefur gert samn-
ing við bandaríska
leikmanninn Terrel
Taylor og verður
hann löglegur gegn
ÍR á föstudaginn
kemur. Hann kem-
ur í stað Justin
Miller sem þurfti
frá að hverfa vegna veikinda í fjöl-
skyldunni. Þá hefur kvennaliði Grind-
víkinga bæst liðstyrkur en Myriah
Spence, sem lék með Old Dominion
háskólanum í Bandaríkjunum mun
leika sinn fyrsta leik með Grindavík-
urstúlkum á miðvikudaginn þegar
þær heimsækja hinn erfiða heima-
völl Keflvíkinga.
Alex Ferguson,kna t t spy rnu -
stjóri Manchester
United, hefur varað
Chelsea við að
reynsluleysi liðsins
muni kosta það
titilinn. „Chelsea
mun detta niður og
tapa leikjum. Liðið
hefur enga reynslu í að vinna leiki
þegar mest á reynir,“ sagði Ferguson.
Chelsea er í efsta sæti ensku deildar-
innar, fimm stigum á undan Arsenal.
Jón Arnór Stefánsson
skoraði 20 stig og gaf 5
stoðsendingar þegar lið
hans, Dynamo St.
Petersburg, beið lægri
hlut fyrir Khimki
á heimavelli,
1 0 1 - 1 1 4 .
D y n a m o
byrjaði betur
og leiddi sjö stigum
eftir fyrsta fjórðung. Í
seinni hálfleik sneru
gestirnir leiknum sér
í hag og unnu ör-
uggan sigur. Næsti
leikur liðsins er ann-
að kvöld gegn gríska
liðinu Liraklis í Evr-
ópukeppninni.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Enska úrvalsdeildin
CRYSTAL PALACE–CHARLTON 0–1
0–1 Rommedahl (90.)
STAÐA EFSTU LIÐA
CHELSEA 16 12 3 1 31–6 39
ARSENAL 16 10 4 2 42–20 34
EVERTON 16 10 3 3 20–14 33
MAN. UTD. 16 8 6 2 22–10 30
MIDDLESBR.15 7 4 4 24–18 25
A. VILLA 16 6 7 3 21–17 25
LIVERPOOL 15 7 3 5 24–17 24
Ítalska A-deildin
CAGLIARI–CHIEVO 4–2
1–0 Zola (33.), 2–0 Zola, víti (38.), 3–0 Langella
(45.), 3–1 Pellissier (58.), 4–1 Abeijon (59.), 4–2
Amauri (88.).
FIORENTINA–BOLOGNA 1–0
1–0 Maresca (65.).
JUVENTUS–LAZIO 2–1
0–1 Padev (11.), 1–1 Olivera (40.), 2–1
Ibrahimovic (75.).
LECCE–LIVORNO 3–2
0–1 Vigiani (29.), 1–1 Rullo (38.), 1–2
Danielevicius (39.), 2–2 Dalla Bona, víti (55.),
3–2 Giacomazzi (58.).
PALERMO–ATALANTA 1–0
1–0 Brienze (44.).
REGGIANA–BRESCIA 1–3
0–1 Stankevicius (18.), 0–2 Vidal (39.), 1–2
Zamboni (73.), 1–3 Caracciolo (80.).
UDINESE–SIENA 1–0
1–0 Di Natale (16.).
STAÐA EFSTU LIÐA
JUVENTUS 13 10 2 1 25–6 32
AC Milan 14 9 4 1 21–9 31
UDINESE 13 6 4 3 20–13 22
INTER 14 3 11 0 30–22 20
CAGLIARI 13 5 4 4 18–20 19
Spænska úrvalsdeildin
LEVENTE–GETAFE 0–0
MALLORCA–NUMANCIA 3–2
0–1 Tevenet (21.), 0–2 Moreno (56.), 1–2
Delibasic (79.), 2–2 Luis Garcia (80.), 3–2 Luis
Garcia (87.).
RACING SANTANDER–DEPORTIVO 2–2
1–0 Benayoun (22.), 1–1 Luque (49.), 2–1 Jan
Guerrero (86.), 2–2 Pandiani (90.).
REAL ZARAGOZA–ESPANYOL 0–1
0–1 Tamudo (30.).
SEVILLA–ATHLETIC BILBAO 2–0
1–0 Julio Baptista (52.), 2–0 Carlitos (65.).
VILLAREAL–REAL MADRID 0–0
STAÐA EFSTU LIÐA
BARCELONA 14 11 2 1 30–8 35
R. MADRID 14 8 2 4 21–9 26
VALENCIA 14 7 4 3 22–11 25
ESPANYOL 13 7 2 3 15–8 23
Þýska úrvalsdeildin
DORTMUND–SCHALKE 0–1
0–1 Ailton (17.).
KAISERSLAUTERN–MAINZ 2–0
1–0 sjálfsmark (20.), 2–0 Kosowski (56.).
STAÐA EFSTU LIÐA
B. MUNCHEN16 10 3 3 31–18 33
STUTTGART 16 9 3 4 30–17 30
SCHALKE 16 10 0 5 24–20 30
HANNOVER 16 8 4 4 24–15 28
! "#
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ MÖRK HAUKA:
Þórir Ólafsson 7
Jón Karl Björnsson 4
Halldór Ingólfsson 4
Vignir Svavarsson 4
Andri Stefan 3
Gísli Jón Þórisson 1
EVRÓPUÆVINTÝRIÐ Á ENDA Í ÁR Vignir Svavarsson og félagar hans í liði Hauka eru úr leik í Evrópukeppni bikarhafa í handbolta eftir
tvö töp fyrir króatíska liðinu Medvescak Infosistem Zagreb um helgina. Vignir skoraði fjögur mörk í leiknum í gær.